Samningar SGS og SA í höfn: Kauptaxtar hækka um að lágmarki 35 þúsund

Kaup­taxtar hækka frá 1. nóv­em­ber í ár um að lág­marki 35.000 krónur á mán­uði. Hag­vaxt­ar­auka sem átti að koma til greiðslu 1. maí verður flýtt. Samn­ingar hafa náðst milli Starfs­greina­sam­bands­ins og Samtaka atvinnu­lífs­ins.

Frá undirritun samninganna í dag.
Frá und­ir­ritun samn­ing­anna í dag.

Samn­inga­nefnd Starfs­greina­sam­bands Íslands (SGS) hefur und­ir­ritað nýjan kjara­samn­ing við Samtök atvinnu­lífs­ins vegna starfa á hinum almenna vinnu­mark­aði. Sautján af nítján aðild­ar­fé­lögum SGS und­ir­rit­uðu samn­ing­inn í húsa­kynnum rík­is­sátta­semj­ara í dag. Um er að ræða svo­kall­aðan skamm­tíma­samn­ing en gild­is­tími samn­ings­ins er frá 1. nóv­em­ber til 31. jan­úar 2024. „Þess má geta að þetta er í fyrsta sinn sem kjara­samn­ingur á almennum vinnu­mark­aði gildir frá sama tíma og sá eldri rennur út og í því eru fólgin mikil verð­mæti fyrir launa­fólk,“ segir í til­kynn­ingu á vef SGS.

Samkvæmt samn­ingnum, sem enn a eftir að kynna fyrir félags­mönnum, hækka kaup­taxtar frá 1. nóv­em­ber í ár um að lág­marki 35.000 krónur. Að auki felur samn­ing­ur­inn í sér lag­fær­ingu á launa­töfl­unni, sem gerir það að verkum að hækkun getur orðið allt að 52.000 kr. á mán­uði.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði við RÚV að henni heyr­ist af sam­tölum sínum við for­ystu­menn SGS og SA, að samn­ing­arnir séu mjög metn­að­ar­fullir þótt þeir séu til skamms tíma.

Merki­legt sé að samn­ingur taki við af samn­ingi sem sé ekki algengt á íslenskum vinnu­mark­aði. „Við verðum svo bara að sjá hvernig gengur og verðum að vona að nú þegar ísinn hefur verið brot­inn að það finn­ist far­sæl lausn í öðrum kjara­við­ræðum.“

Það skipti miklu máli að vera kom­inn með þennan samn­ing í dag. „Ég vona að sjálf­sögðu að aðrir finni lausnir þó að þær séu til skamms tíma, eðli­lega, vegna óvissunnar í efna­hags­málum.“

VR, Land­sam­band íslenskra versl­un­ar­manna (LÍV) og sam­flot iðn- og tækni­greina að þau hefðu tekið höndum saman í kjara­við­ræðum sínum við SA. Innan þess sam­flots eru um 59 þús­und félags­fólk.

Bónusar í fiskvinnslu hækka um 8 prósent

Samkvæmt samn­ingi SGS og SA hækka laun þeirra sem ekki taka laun eftir kaup­töxtum, þ.e. eru á mán­að­ar­launum, um 33.000 kr. frá 1. nóv­em­ber. Desember- og orlofs­upp­bætur taka jafn­framt hækk­unum. Des­em­ber­upp­bót á árinu 2023 verður 103.000 kr. og orlofs­upp­bót verður 56.000 kr. á orlofs­ár­inu sem hefst 1. maí 2023. Kjara­tengdir liðir samn­ings­ins hækka um 5% frá 1. nóv­em­ber og þá hækka bónusar og akkorð í fisk­vinnslu um 8 pró­sent sem mun skila fisk­vinnslu­fólki á bil­inu 6.000-34.000 kr. hækkun á mán­uði.

Hagvaxtarauka flýtt

Einnig náð­ist sam­komu­lag um flýt­ingu hag­vaxt­ar­auka sem þýðir að hag­vaxt­ar­auk­inn sem átti að koma til greiðslu 1. maí 2023 verður flýtt og verður hann að fullu efndur með hækkun 1. nóv­em­ber. Það mun skila ávinn­ingi sem nemur 78.000 kr. eða tæpum 6.000 kr. á mán­uði og er hann með­tal­inn í áður­nefndum taxta- og mán­aða­launa­hækk­unum. Jafn­framt var gert sam­komu­lag um að með þess­ari hækkun og flýt­ingu komi ekki til frekara end­ur­mats á hag­vaxt­ar­auka skv. kjara­samn­ingnum frá 2019.

Kjara­samn­ing­ur­inn er fram­leng­ing á Lífs­kjara­samn­ingnum sem gilti frá 2019-2022. Samn­ings­að­ilar eru sam­mála um að samn­ing­ur­inn styðji við kaup­mátt launa auk þess að veita heim­ilum og fyr­ir­tækjum fyr­ir­sjá­an­leika á miklum óvissu­tímum. Samn­ing­ur­inn geti þannig byggt undir stöð­ug­leika og skapað for­sendur fyrir lang­tíma­samn­ingi.

Nú tekur við kynn­ing og atkvæða­greiðsla um samn­ing­inn meðal félags­manna. Tilkynnt verður um afgreiðslu samn­ings­ins mánu­dag­inn 19. á að liggja fyrir ekki síðar en mánu­dag­inn 19. des­em­ber næst­kom­andi.

Eftirfarandi félög eiga aðild að samningnum:

AFL Starfs­greina­fé­lag, Aldan stétt­ar­fé­lag, Báran stétt­ar­fé­lag, Drífandi stétt­ar­fé­lag, Eining-Iðja, Framsýn stétt­ar­fé­lag, Stétt­ar­fé­lagið Samstaða, Verka­lýðs- og sjó­manna­fé­lag Bol­ung­ar­víkur, Verka­lýðs- og sjó­manna­fé­lag Kefla­víkur og nágrennis, Verka­lýðs- og sjó­manna­fé­lag Sand­gerðis, Verka­lýðs­fé­lag Akraness, Verka­lýðs­fé­lag Snæ­fell­inga, Verka­lýðs­fé­lag Suð­ur­lands, Verka­lýðs­fé­lag Vest­firð­inga, Verka­lýðs­fé­lag Þórs­hafnar, Verka­lýðs­fé­lagið Hlíf og Stétt­ar­fé­lag Vest­ur­lands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár