„Hókuspókushagstjórn“ sem bitnar verst á almennu launafólki

Rík­is­stjórnin hefur enga fram­tíð­ar­sýn fyrir almenn­ing, segir for­maður Sameykis. „Hennar áhugi bein­ist að því að hlaða meira og hraðar undir ríka og fína fólkið og koma í veg fyrir þann óþverra að almenn­ingur skuli mynda tærnar sínar á Tene.“

Þórarinn Eyfjörð er formaður Sameykis.
Þórarinn Eyfjörð er for­maður Sameykis.

„Frábært útspil Seðla­bank­ans í miðjum kjara­samn­ings­við­ræðum á almennum mark­aði. Húrra fyrir þér!“

Þetta skrifar Þórarinn Eyfjörð, for­maður Sameykis, í leið­ara í nýjasta tölu­blaði Tímarits Sameykis, um ítrek­aðar stýri­vaxta­hækk­anir Seðla­bank­ans und­an­farna mán­uði. Þórarinn gagn­rýnir rík­is­stjórn­ina og seðla­banka­stjóra harð­lega og segir þau stunda „hók­u­spók­us­hag­stjórn“ sem bitni verst á almennu launa­fólki. Stýri­vaxta­hækk­anir komi verst niður á ungum barna­fjöl­skyldum og lág­launa- og milli­tekju­fólki sem er að reyna að koma sér upp heim­ili og byggja bjarta fram­tíð.

Sameyki stétt­ar­fé­lag í almanna­þjón­ustu varð til við sam­ein­ingu Starfs­manna­fé­lags Reykja­vík­ur­borgar og SFR stétt­ar­fé­lags í almanna­þjón­ustu þann 26. jan­úar 2019. Félagið þjónar rúm­lega 12 þús­und félags­mönnum um land allt.

[adspot]

„Fólkið í fíla­beins­turn­inum hefur engan áhuga á högum almenn­ings og heldur því fram í sínum berg­máls­helli að þjóðin liggi afvelta undan ströndum Afríku tak­andi tásu­myndir af sér á snjall­sím­ana sína,“ skrifar Þórarinn og vísar þar til umdeildra ummæla seðla­banka­stjóra. „Þetta segir Ásgeir Jónsson að sé raun­veru­leik­inn hjá þjóð­inni og það stjórni stýri­vaxta­hækk­unum hans með góð­fús­legu sam­þykki Katrínar & Co.“

Erfið staða hjá einstæðum foreldrum

Mat­vöru­verð og hús­næð­is­lán hækki stöðugt og rekstur heim­ila rjúki upp. Laun dugi ekki lengur til fram­færslu.

Hann bendir á að fjórða hvert heim­ili í land­inu, rúm­lega 38 þús­und manns, áttu erfitt með að ná endum saman árið 2021 og að ástandið hafi svo versnað á þessu ári. Í þessum hópi séu m.a. yfir helm­ingur heim­ila ein­stæðra for­eldra á Íslandi. Kjara­samn­ingar eru að sigla í strand, skrifar Þórarinn, og stjórn­völd sem eiga að bera ábyrgð á rík­is­fjár­málum hendi þeirri ábyrgð á almenn­ing. Á sama tíma séu tekju­stofnar rík­is­ins van­nýttir; banka­skattar, fjár­magnstekju­skattar, auð­legð­ar­skattar, hval­reka­skattar og hækkun auð­linda­gjalda.

„Rík­is­stjórn íhalds og nýfrjáls­hyggju leggur til að rekstur sam­fé­lags­ins, inn­við­anna, komi lóð­beint úr launa­umslagi almenn­ings á sama tíma og verð­mæt­ustu eignir okkar eru afhentar útvöldum. Það er vaðið áfram á móti þjóð­ar­vilja og mjólk­ur­kúnum slátrað. Íslands­banki hagn­að­ist um rúma 30 millj­arða 2020 og 2021. Þennan hagnað ætlar Bjarni Bene­dikts­son að færa útvöldum til fram­tíðar. Húrra fyrir þér!“

[adspot]

Þórarinn segir „með miklum ólík­indum“ að stjórn­völd hagi sér „eins og þeim komi ekki við hvað er að ger­ast á vinnu­mark­aði“. Flestallir kjara­samn­ingar séu að losna á næstu fjórum mán­uðum og stærstu stétt­ar­fé­lög lands­ins standi nú í við­kvæmum kjara­samn­ings­við­ræðum á almennum mark­aði.

„Ef núver­andi stjórn­völd hefðu ein­hvern snefil af áhuga á að styrkja sam­fé­lag okkar á þess­ari stundu, myndu þau kynna metn­að­ar­fullar aðgerðir til að vernda þá verst stöddu í sam­fé­lag­inu, hug­myndir um stór­tækar aðgerðir í hús­næð­is­málum, gagn­gerar breyt­ingar á skatt­kerf­inu og á tekju­lík­ani ríkis og sveit­ar­fé­laga, umpólun á auð­linda- og fisk­eld­is­gjaldi, o.fl., o.fl.,“ skrifar Þórarinn. „En rík­is­stjórnin hefur enga fram­tíð­ar­sýn fyrir almenn­ing í land­inu. Hennar áhugi bein­ist að því að hlaða meira og hraðar undir ríka og fína fólkið og koma í veg fyrir þann óþverra að almenn­ingur skuli mynda tærnar sínar á Tene.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár