Samningar við Starfsgreinasambandið langt komnir – Reynt að fá VR um borð

Verið er að reyna að klára gerð kjara­samn­inga við Starfs­greina­sam­bandið um 20 til 40 þús­und króna launa­hækk­anir, auknar starfs­þrepa­greiðslur og flýt­ingu á útgreiðslu hag­vaxt­ar­auka. Samn­ingar eiga að gilda út jan­úar 2024.

Vilhjálmur Birgisson er formaður Starfsgreinasambands Íslands.
Vil­hjálmur Birg­is­son er for­maður Starfs­greina­sam­bands Íslands. Mynd: Skjáskot/RÚV

Viðræður Samtaka atvinnu­lífs­ins og Starfs­greina­sam­bands­ins um gerð kjara­samn­inga eru á loka­metr­unum. Umræddur samn­ingur á að gilda út jan­úar 2024 og yrði því til skemmri tíma en vant er þegar kjara­samn­ingar eru gerðir.

Heim­ildir Kjarnans herma að unnið sé að því öllum árum að fá VR, stærsta stétt­ar­fé­lag lands­ins, að borð­inu en það sleit samn­ingum við Samtök atvinnu­lífs­ins í síð­ustu viku. Þrátt fyrir þau slit mætti Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, og samn­inga­nefnd félags­ins á fund hjá rík­is­sátta­semj­ara í gær ásamt full­trúum Lands­sam­bands íslenskra verzlunarmanna og Starfs­greina­sam­bands­ins. Sá fundur stóð í þrettán tíma, og lengur en til stóð upp­haf­lega.

Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Starfs­greina­sam­bands­ins, og Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­mann VR, svör­uðu ekki sím­tölum blaða­manna Kjarnans við vinnslu frétt­ar­innar.

Fjögur prósent hækkun með 40 þúsund króna þaki

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans hefur Starfs­greina­sam­bandið sam­þykkt í öllum meg­in­at­riðum að semja um fjög­urra pró­senta launa­hækkun í samn­ingum sem eiga að gilda til loka jan­úar 2024. Hækkunin á að vera með 20 þús­und króna gólfi, þannig að eng­inn fari undir þá upp­hæð í hækkun, og 40 þús­und króna þaki, þannig að eng­inn fari yfir þá upp­hæð. Til við­bótar koma starfs­ald­urs­þrepa­hækk­anir sem geta í mesta lagi verið 12 þús­und krónur á mán­uði en eru að með­al­tali um átta þús­und krónur á mán­uði.

[adspot]Þá hafa átt sér stað við­ræður um að flýta útgreiðslu hins svo­kall­aða hag­vaxt­ar­auka, sem þó er ekki hluti af yfir­stand­andi kjara­samn­ings­við­ræðum heldur eitt­hvað sem samið var um í lífs­kjara­samn­ing­unum í apríl 2019. Hann á að greið­ast út frá 1. maí 2023, en hann er um 13 þús­und krónur á mán­uði. Kjarninn hefur heim­ildir fyrir því að Samtök atvinnu­lífs­ins hafi boðið að flýta hag­vaxt­ar­auk­anum til 1. mars en að því hafi verið hafnað. Vilji Starfs­greina­sam­bands­ins sé að flýta honum til allt að 1. nóv­em­ber 2022.

Efling, sem lagt hefur fram til­boð til Samtaka atvinnu­lífs­ins um 56.700 króna flata krónu­tölu­hækkun á öll laun og 15.000 króna fram­færslu­upp­bót til við­bótar fyrir utan útgreiðslu hag­vaxt­ar­auka fyrir samn­ing út jan­úar 2023, er ekki hluti af þessum við­ræðum.

Í frétta­til­kynn­ingu sem Efling sendi frá sér í gær­morgun sagði að samn­inga­nefnd félags­ins teldi önnur stétt­ar­fé­lög hafa gert mis­tök með því að fall­ast á aðferða­fræði pró­sentu­hækk­ana í við­ræðum við Samtök atvinnu­lífs­ins. „Tillögur hafa verið til umræðu þar sem gert er ráð fyrir tvö­falt meiri hækk­unum til hátekju­hópa en til lág­launa­fólks.“

Niðurlægður þrisvar á sólarhring

Ragnar Þór sagði í sam­tali við Kjarnann síð­ast­lið­inn föstu­dag, í kjöl­far þess að við­ræðum var slitið, að launa­fólk hefði „verið nið­ur­lægt þrisvar á rúmum sól­ar­hring. Fyrst af seðla­banka­stjóra, svo af fjár­mála­ráð­herra og loks af Sam­tökum atvinnu­lífs­ins.“

[links]Þar vís­aði hann í að ákvörðun Seðla­banka Íslands um að hækka stýri­vexti á mið­viku­dag, og orð Ásgeirs Jóns­sonar um að ástæður þeirrar hækk­unar væri eyðsla heim­il­anna, hefði sent kjara­við­ræður á mjög við­kvæman stað. Í kjöl­farið hefði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra boðað aðila vinnu­mark­að­ar­ins á fund til að reyna að draga úr spenn­unni sem hafði mynd­ast. „Fjár­mála­ráð­herra kemur svo nán­ast strax í kjöl­farið með yfir­lýs­ingu á Pen­inga­mála­fundi Við­skipta­ráðs þar sem hann tekur nán­ast undir hvert orð seðla­banka­stjóra og segir að við þurfum að vakna. Hér sé vanda­málið fyrst og fremst kröfur verka­lýðs­hreyf­ing­ar­inn­ar. Þegar til­boð Sam­taka atvinnu­lífs­ins um skamm­tíma­samn­ing bætt­ist við var alveg ljóst að við gætum ekki dvalið við þetta leng­ur. Ég var með umboð til að slíta við­ræðum og nýtt það umboð. Ég fund­aði svo með samn­inga­nefnd­inni í morg­un og þar er algjör ein­hugur um þessa ákvörðun. Hún er tekin af yfir­vegun og upp­lýstu mati á stöð­unni í hag­kerf­in­u.“

Kjarninn hefur heim­ildir fyrir því að að Sam­tök atvinnu­lífs­ins hafi boðið VR og Starfs­greina­sam­band­inu að lág­marki 17 þús­und krónur ofan á launa­taxta og að hámarki 30 þús­und krónur í launa­hækk­anir í samn­ingi sem átti að gilda í 14 mán­uði, eða út jan­úar 2024. Matið fyrir helgi var að kostn­að­ar­hækk­anir heim­ila lands­ins vegna auk­innar greiðslu­byrði lána, hækk­ana á verði á vöru, þjón­ustu og gjöldum vegna verð­bólgu, sem nú er 9,3 pró­sent, og hækk­ana sé langt umfram þær töl­ur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár