Formaður VR segist hafa verið niðurlægður þrisvar á sólarhring og sleit því viðræðum

VR er búið að slíta við­ræðum um gerð kjara­samn­ings. Tilboð sem félagið fékk frá Samtökum atvinnu­lífs­ins í gær­kvöldi um 14 mán­aða samn­ing var kornið sem fyllti mælin. Yfir­lýs­ingar seðla­banka­stjóra og Bjarna Bene­dikts­sonar skiptu einnig sköpum.

Ragnar Þór Ingólfsson er formaður VR.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son er for­maður VR. Mynd: Bára Huld Beck

„Launa­fólk hefur verið nið­ur­lægt þrisvar á rúmum sól­ar­hring. Fyrst af seðla­banka­stjóra, svo af fjár­mála­ráð­herra og loks af Samtökum atvinnu­lífs­ins.“ Þetta segir Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, en stétt­ar­fé­lagið, það stærsta á Íslandi, sleit í gær­kvöldi við­ræðum sínum um gerð kjara­samn­ings við Samtök atvinnu­lífs­ins.

Ragnar segir að ákvörðun Seðla­banka Íslands um að hækka stýri­vexti á mið­viku­dag, og orð Ásgeirs Jóns­sonar um að ástæður þeirrar hækk­unar væri eyðsla heim­il­anna, hafi sent kjara­við­ræður á mjög við­kvæman stað. Í gær­morgun hafi Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra boðað aðila vinnu­mark­að­ar­ins á fund til að reyna að draga úr spenn­unni sem hafði mynd­ast. „Fjár­mála­ráð­herra kemur svo nán­ast strax í kjöl­farið með yfir­lýs­ingu á Pen­inga­mála­fundi Við­skipta­ráðs þar sem hann tekur nán­ast undir hvert orð seðla­banka­stjóra og segir að við þurfum að vakna. Hér sé vanda­málið fyrst og fremst kröfur verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar. Þegar til­boð Samtaka atvinnu­lífs­ins um skamm­tíma­samn­ing bætt­ist við var alveg ljóst að við gætum ekki dvalið við þetta lengur. Ég var með umboð til að slíta við­ræðum og nýtt það umboð. Ég fund­aði svo með samn­inga­nefnd­inni í morgun og þar er algjör ein­hugur um þessa ákvörðun. Hún er tekin af yfir­vegun og upp­lýstu mati á stöð­unni í hag­kerf­inu.“

[adspot]Kjarninn hefur heim­ildir fyrir því að að Samtök atvinnu­lífs­ins hafi boðið að lág­marki 17 þús­und krónur ofan á launa­taxta og að hámarki 30 þús­und krónur í launa­hækk­anir í samn­ingi sem átti að gilda í 14 mán­uði, eða út næsta ár. Mat verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar er að kostn­að­ar­hækk­anir heim­ila lands­ins vegna auk­innar greiðslu­byrði lána, hækk­ana á verði á vöru. þjón­ustu og gjöldum vegna verð­bólgu og hækk­ana sé langt umfram þær tölur.

Segir að það ríki í raun góðæri

Ragnar Þór segir allar grein­ingar VR sem unnar hafi verið vegna kjara­samn­inga­gerðar sýna að afkoma margra fyr­ir­tækja sé gríð­ar­lega góð. Það ríki í raun góð­æri. Það sé eðli­leg krafa að kalla eftir því að launa­fólk fái hlut­deild í henni en verði ekki gert að sætta sig við minnk­andi kaup­mátt. Það megi til að mynda benda á að met­hagn­aður var í sjáv­ar­út­vegi í fyrra þegar geir­inn hagn­að­ist um 65 millj­­örðum króna eftir skatta og gjöld. Alls jókst hagn­að­­ur­inn um 124 pró­­sent milli ára. Þá hafi vaxta­tekjur stærstu bank­anna þriggja auk­ist um 16,9 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins í ár þegar þær eru bornar saman við sama tíma­bil í fyrra. Fjölmörg fyr­ir­tæki hafi auk þess velt kostn­að­ar­hækk­unum út í verð­lagið og varið, jafn­vel aukið, arð­semi sína með þeim aðgerðum.

Ragnar Þór segir næstu skref vera þau að fylgj­ast með því sem ger­ist í kjara­við­ræðum Starfs­greina­sam­bands­ins og iðn­að­ar­manna. „Við förum í það að upp­lýsa okkar félags­fólk og almenn­ing í land­inu um það sem var í boði og þá stöðu sem okkar grein­ingar sýna að sé uppi í hag­kerf­inu. Hver afkoma fyr­ir­tækj­anna er í raun og hversu burðug þau eru til að milda það högg sem heim­ilin eru að verða fyrir. Við munum við­halda sam­floti við Starfs­greina­sam­bandið og mögu­lega víkka það út með til dæmis iðn­að­ar­mönnum og kannski Eflingu um mögu­legar aðgerðir.“

[adspot]Hann reiknar með að rík­is­sátta­semj­ari boði til fundar í næstu viku og VR muni að sjálf­sögðu mæta til þess fundar. „Mark­miðið er áfram að reyna að klára kjara­samn­ing. Hvort þessi ákvörðun okkar um að slíta við­ræðum breyti afstöðu Samtaka atvinnu­lífs­ins veit ég þó ekki.“

Tene-tal seðlabankastjóra hleypti öllu upp

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands ákvað að hækka stýri­vexti í tíunda skiptið í röð á mið­viku­dag, og eru þeir nú sex pró­sent. Hinar miklu vaxta­hækk­anir hafa aukið greiðslu­byrði íbúða­lána gríð­ar­lega. Kjarninn greindi frá því fyrr í dag að greiðslu­byrði 50 milljón króna óverð­tryggðs láns á breyti­legum vöxtum hafi auk­ist um næstum 1,5 millj­ónir króna á ári miðað við þau vaxta­kjör sem voru í boði áður en vaxta­hækk­un­ar­ferlið hófst í maí í fyrra.

Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri sagði á kynn­ing­ar­fundi í kjöl­far hækk­un­ar­innar að þjóðin væri „bara dálítið að eyða og spenna.“ Vöxtur einka­neyslu væri að koma niður á gengi krón­unnar og því þyrfti að hækka vexti áfram. Það væri mik­ill vöru­skipta­halli til staðar. „Þegar þjóðin er að fara á Tene, það kost­ar gjald­eyri.“ Seðla­bank­inn gæti ekki verið að eyða gjald­eyr­is­vara­forð­anum í inn­grip til að verja krón­una fyrir veik­ingu vegna þessa. Hann gæti „ekki fjár­magnað Tene-ferðir úr forð­anum.“ Fyrir liggur að hin aukna einka­neysla er dregin áfram af upp­söfn­uðum sparn­aði og auknum ráð­stöf­un­ar­tekjum á und­an­förnum árum, en ekki auk­inni skulda­söfnun. Hærri vextir bíta ekki nýt­ingu sparn­aðar.

Ummæli Ásgeir féllu ekki í góðan jarð­veg, hvorki hjá verka­lýðs­for­yst­unni né Samtökum atvinnu­lífs­ins. Rök­stuðn­ing­ur­inn fyrir stýri­vaxt­ar­hækk­un­inni var auk þess sagður þunnur og Seðla­bank­inn lá undir ámæli fyrir að hafa sett kjara­samn­inga­við­ræður í upp­nám.

Þess vegna boð­aði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra aðila vinnu­mark­að­ar­ins á fund í gær­morgun. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans var óljóst á fund­inum hvað stjórn­völd ætl­uðu að koma með nýtt að borð­inu en minnt var á að starf­andi væru hópar sem ætlað er að koma með jákvæðar til­lögur í hús­næð­is­málum og umbætur á barna­bóta­kerf­inu. Til­gang­ur­inn var að reyna að slökkva þá elda sem seðla­banka­stjóri hafði kveikt dag­inn áður.

Bjarni hellti olíu á eldinn

Skömmu síðar mætti Bjarni Bene­dikts­son á Pen­inga­mála­fund Við­skipta­ráðs og hellti þar olíu á ný á þá elda. Samkvæmt end­ur­sögn Innherja, und­ir­vefs Vísis sem fjallar um efna­hags­mál og við­skipti, sagði Bjarni þar meðal ann­ars. „Við þurfum aðeins að vakna.“ Þótt vaxta­hækkun Seðla­bank­ans hafi verið köld vatns­gusa fyrir ein­hverja þá kunni hún að hafa sent nauð­syn­leg skila­boð til aðila vinnu­mark­að­ar­ins.

„Vanda­málið er ekki Ásgeir Jónsson,“ sagði Bjarni, heldur skortur á sam­hljómi milli þeirra aðila sem væru að reyna að gera kjara­samn­inga. Sumir væru að krefj­ast mik­illa krónu­tölu­hækk­ana en aðrir pró­sentu­hækk­ana. Kröfu­gerðir tækju aðeins mið af „punkt­stöð­unni“ um þessar mundir en verð­bólga mælist núna 9,4 pró­sent. Við sem þjóð værum föst í því að „biðja alltaf um aðeins meira“ en þjóð­ar­búið stæði undir hverju sinni. Þessar hug­myndir sagði Bjarni að væru óraun­hæfar.

Þessar yfir­lýs­ingar Bjarna fóru veru­lega illa í for­ystu­fólk verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar. Þegar við bætt­ist það til­boð sem Samtök atvinnu­lífs­ins lögðu fyrir VR í gær­kvöldi var ekki lengur við setið, og við­ræðum slitið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár