Gera kröfu um krónutöluhækkanir – en óljóst hve háar kröfur verða gerðar

Starfs­greina­sam­bandið vill nálg­ast kom­andi kjara­samn­ings­gerð með svip­uðum hætti og gerð lífs­kjara­samn­ing­anna 2019. Vil­hjálmur Birg­is­son segir kröfu gerða um krónu­tölu­hækk­anir – en hversu há krafan verði ráð­ist af lengd samn­ings og stöðu efna­hags­mála.

Vilhjálmur Birgisson var nýlega kjörinn formaður Starfsgreinasambandsins.
Vil­hjálmur Birg­is­son var nýlega kjör­inn for­maður Starfs­greina­sam­bands­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Starfs­greina­sam­bandið (SGS) mun gera kröfu um að samið verði um krónu­tölu­hækk­anir á kaup­taxta í kom­andi kjara­samn­ingum, en við­ræðu­nefnd SGS afhenti full­trúum Samtökum atvinnu­lífs­ins kröfu­gerð sína, sem byggir á kröfu­gerðum 17 aðild­ar­fé­laga SGS, á fundi í morgun.

Vil­hjálmur Birg­is­son for­maður SGS segir í sam­tali við Kjarnann að ekki hafi verið lögð fram nein föst krónu­tala sem leggj­ast skuli ofan á lægstu kaup­taxta í þeirri kröfu­gerð sem lögð var fram á fund­inum í morgun.

„Í okkar kröfu­gerð nefndum við ekki neina fasta krónu­tölu, því það mun ráð­ast algjör­lega af lengd samn­ings­ins, hvort við förum í skamm­tíma­samn­ing eða lang­tíma­samn­ing,“ segir Vil­hjálmur og nefnir einnig að for­sendur og aðstæður launa­fólks séu að breyt­ast dag frá degi. Nægi að nefna vaxta­hækkun Seðla­bank­ans í dag í því sam­hengi – og erfitt sé að leggja fram fast­settar kröfur þegar sú er raunin.

[adspot]

Hann segir að full­trúar SGS og SA hafi verið sam­mála um það á fund­inum í morgun að það hefði tek­ist nokkuð vel til með núgild­andi lífs­kjara­samn­ingum, en með þeim var samið um krónu­tölu­hækk­anir sem nýtt­ust þeim launa­lægstu best. Einnig var sér­stakur hag­vaxt­ar­auki settur inn í samn­ing­inn og segir Vil­hjálmur að hjá SGS satandi vilj­inn til þess að fara sam­bæri­legar leiðir og gert var í kjara­samn­ings­gerð­inni 2019.

„Það kallar á að allir taki höndum saman,“ segir Vil­hjálmur, sem segir þörf á sterkri aðkomu stjórn­valda og sveit­ar­fé­laga, auk þess sem reyna þurfi að skapa for­sendur fyrir lágu vaxta­stigi í land­inu.

Vil­hjálmur minnir á að stýri­vextir hafi verið 4,25 pró­sent í aðdrag­anda þess að lífs­kjara­samn­ing­arnir voru und­ir­rit­aðir árið 2019 og þá hafi sam­tök launa­fólks átt fundi með Seðla­bank­anum, til þess að fara yfir hvað verka­lýðs­hreyf­ingin þyrfti að gera til að skapa for­sendur fyrir lægri stýri­vöxtum. Vaxta­stigið hafi svo lækkað veru­lega í veiru­far­aldr­inum, en Vil­hjálmur segir að nú sé „allur þessi ávinn­ingur far­inn til baka“ og stýri­vextir standi í 4,75 pró­sentum, sem séu „mikil von­brigði“ fyrir launa­fólk.

Ásgeir sagði Seðlabankann ekki ætla að láta verðbólgu halda áfram

Á upp­lýs­inga­fundi pen­inga­stefnu­nefndar í morgun, í kjöl­far þess að stýri­vextir voru hækk­aðir upp í 4,75 pró­sent, sagði Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri að verð­bólga, sem éti upp kaup­hækk­anir, hlýti að vera versti óvinur vinn­andi fólks. „Við teljum því að við séum að vinna í hag­inn fyrir næstu kjara­samn­inga. Og að við getum sýnt fram á það með trú­verð­ugum hætti að við ætlum að ná niður verð­bólgu með hörðum aðgerðum til þess að aðilar vinnu­mark­að­ar­ins sjái það að það þurfi ekki að heimta launa­hækk­anir fyrir fram­tíð­ar­verð­bólgu.“

Þess vegna skipti það máli þegar aðilar vinnu­mark­að­ar­ins semji um laun á Íslandi að þeir geri sér grein fyrir því að Seðla­bank­inn sé ekki að fara að láta verð­bólgu halda áfram. „Þegar þeir semja þá þarf ekki að fara fram á hækk­anir til þess að halda raun­launum stöð­ugum. Við teljum að við séum að búa í hag­inn fyrir næstu kjara­samn­inga og tryggja það að aðilar vinnu­mark­að­ar­ins geti sest niður og samið um krónur sem hafi raun­veru­legt virði. Ekki krónur sem verði étnar niður af verð­bólgu,“ sagði Ásgeir á fund­inum í morgun.

Aðkoma stjórnvalda muni skipta miklu máli

Samkvæmt frétta­til­kynn­ingu frá SGS var rætt um fyr­ir­komu­lag kom­andi við­ræðna og þau úrlausn­ar­efni sem liggja fyrir samn­ings­að­ilum á fund­inum í morgun. Gert er ráð fyrir að form­legar við­ræður byrji um miðjan ágúst.

Í til­kynn­ingu SGS segir að sam­bandið muni ekki una því að áhrif „vax­andi verð­bólgu vegna aðgerða­leysis stjórn­valda í hús­næð­is­málum, og erlendra hækk­ana“ verði sett á herðar félags­manna sam­bands­ins.

„Samtök launa­fólks sömdu um það í síð­ustu samn­ingum að auka ráð­stöf­un­ar­tekjur launa­fólks með heild­stæðum hætti, með krónu­tölu­hækk­unum, vaxta­lækk­unum og aðgerðum af hálfu stjórn­valda. Aðstæður þær sem nú eru í sam­fé­lag­inu og efna­hags­um­hverf­inu kalla á svip­aða aðferða­fræði og víð­tækt sam­starf og sam­ráð til að bregð­ast við miklum vanda á hús­næð­is­mark­aði, tryggja kaup­mátt og öfl­uga grunn­þjón­ustu um land allt.

Nú eru uppi þær aðstæður í sam­fé­lag­inu að aðkoma stjórn­valda að kjara­samn­ingum mun skipta miklu máli við gerð þeirra. Stór­aukin verð­bólga, miklar verð­hækk­anir og mik­ill vandi á hús­næð­is­mark­aði kalla á að stjórn­völd og SA taki höndum saman við sam­tök launa­fólks til að tryggja kaup­mátt, hús­næði fyrir alla og öfl­uga grunn­þjón­ustu um land allt,“ segir í til­kynn­ingu SGS.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár