Kalla eftir hækkun atvinnuleysisbóta

Í umsögn sinni við frum­varp um mót­væg­is­að­gerðir vegna verð­bólgu segir ASÍ að nokkrir hópar séu við­kvæm­astir fyrir hækk­andi verð­lagi og vaxta­hækk­unum. ASÍ styður þá hug­mynda­fræði að ráð­ast í sér­tækar aðgerðir í stað almennra aðgerða.

Alþýðu­sam­band Íslands kallar eftir því að atvinnu­leys­is­bætur hækki sam­hliða bótum almanna­trygg­inga í nýju frum­varpi sem felur í sér mót­væg­is­að­gerðir vegna verð­bólgu. Að öðru leyti hvetur sam­bandið til þess að frum­varpið nái fram að ganga.

„Með frum­varp­inu er ráð­ist í mót­væg­is­að­gerðir vegna hratt vax­andi verð­bólgu sem nú mælist 7,2% og fela aðgerðir í sér hækkun bóta almanna­trygg­inga, hækkun hús­næð­is­bóta og sér­stakan barna­bóta­auka. Sam­bandið telur gagn­rýni­vert að ekki sé stefnt að því að hækka bætur atvinnu­leys­is­trygg­inga sam­hliða hækkun bóta almanna­trygg­inga. Að óbreyttu eru bætur atvinnu­leys­is­trygg­inga að rýrna að raun­virði,“ segir í umsögn ASÍ við frum­varpið.

Vaxtahækkanir hafi töluverð áhrif á greiðslubyrði

Sam­bandið telur það jákvætt að stigin séu skref til að mæta þeim nei­kvæðu áhrifum sem vax­andi verð­bólga hefur á kjör heim­ila en for­ysta ASÍ hefur kallað eftir aðgerðum um nokk­urt skeið. Í umsögn­inni segir að verð­bólgan vaxi nú á breiðum grunni sem þýðir að hún fer einnig vax­andi í öðrum liðum en þeim sem alla jafna eru sveiflu­kenndir, liðum á borð við hús­næði og þróun hrá­vöru­verðs.

Til að stemma stigu við hækk­andi verð­bólgu hefur Seðla­banki Íslands hækkað stýri­vexti nokkuð skarpt að und­an­förnu. Við síð­ustu vaxta­á­kvörðun í upp­hafi mán­aðar hækk­uðu stýri­vextir um heilt pró­sentu­stig, upp í 3,75 pró­sent. Í sögu­legu til­liti eru stýri­vextir ekki ýkja háir en þeir nálg­ast nú með­al­tal áranna 2012 til 2018. Á síð­ustu miss­erum hafa vext­irnir verði einkar lágir, í nóv­em­ber árið 2020 voru stýri­vextir lækk­aðir niður í 0,75 pró­sent en þeir hafa aldrei verið lægri. Vextir héld­ust þar fram í maí 2021 og hafa hækkað nokkuð skarpt síðan þá. Því fylgir auk­inn kostn­aður fyrir heim­ili með hús­næð­is­lán.

„Ljóst er að vaxta­hækkun hefur umtals­verð áhrif á greiðslu­byrði lána heim­ila, sér­stak­lega nýrra kaup­enda sem kaupa á háu raun­verði með óverð­tryggðum lánum á breyti­legum vöxtum. Sá hópur getur í dag síður treyst á vaxta­bóta­kerfið til að mæta auk­inni vaxta­byrði vegna brattra skerð­inga í kerf­inu,“ segir í umsögn ASÍ.

Gera má ráð fyrir að verð­bólgan hafi ekki enn náði hápunkti sínum og að stýri­vextir eigi eftir að hækka enn frekar á árinu. Í nýlegri þjóð­hags­spá Íslands­banka sem birt var í síð­ustu viku er því spáð að verð­bólga verði að með­al­tali 7,6 pró­sent í ár og að stýri­vextir verði komnir í fimm pró­sent fyrir lok árs­ins.

Bætur dregist aftur úr launaþróun frá 2017

Í umsögn ASÍ er óskýr aðferða­fræði við ákvörðun bóta almanna- og atvinnu­leys­is­trygg­inga gagn­rýnd en sam­kvæmt áður­nefndu frum­varpi munu bætur almanna­trygg­inga hækka um þrjú pró­sent frá og með 1. júní. Sú hækkun kemur til við­bótar við 4,6 pró­senta hækkun sem tók gildi um ára­mótin. ASÍ bendir á það í umsögn sinni að bætur almanna­trygg­inga hafi dreg­ist aftur úr launa­þróun frá 2017, hvort sem þær eru skoð­aðar í hlut­falli við lægstu taxta eða sem hlut­fall af tekju­trygg­ingu.

Í frum­varp­inu er lagt til að hækka stuðn­ing til leigj­anda. Þannig munu óskertar hús­næð­is­bætur hækka um tíu pró­sent auk þess að frí­tekju­mörk hækka um þrjú pró­sent og mun hækkun frí­tekju­marks vera aft­ur­virk frá ára­mótum. ASÍ bendir á það í umsögn sinni að fjár­hæðir hús­næð­is­bóta hafi staðið í stað að mestu und­an­farin ár, frí­tekju­markið hefur hækkað en skerð­ing­ar­hlut­fallið líka. Leigu­verð hefur aftur á móti hækkað umfram launa­þróun á tíma­bil­inu 2011 til 2018.

„Leigu­verð hefur verið stöðugt í kjöl­far heims­far­ald­urs en merki eru um að leigu­verð fari nú hratt vax­andi sam­hliða hækkun eigna­verðs og auk­inni eft­ir­spurn. Breyt­ingar sem boð­aðar eru í frum­varp­inu myndu hækka hlut­fall hús­næð­is­bóta í leigu úr 25% í 27% við tekjum í neðri fjórð­ungs­mörkum frá því kerfi sem er í gildi í dag,“ segir í umsögn ASÍ.

Í nið­ur­lagi umsagn­ar­innar segir að nokkrir hópar séu við­kvæm­astir fyrir hækk­andi verð­lagi og vaxta­hækk­unum. Það eru þeir sem reiða sig á almanna­trygg­inga­kerfið, fólk á leigu­mark­aði, barna­fjöl­skyldur og kaup­endur sem komið hafa inn á hús­næð­is­markað á síð­ustu miss­erum. Í frum­varp­inu er ein­blínt á nokkra við­kvæma hópa og styður ASÍ þá hug­mynda­fræði að ráð­ast í sér­tækar aðgerðir í stað almennra aðgerða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár