ASÍ og SA á öndverðum meiði um lykilatriði í starfskjaralagafrumvarpi

Forseti ASÍ segir að munn­legt sam­komu­lag hennar við ráð­herra um að leggja ekki fram frum­varp til starfs­kjara­laga óbreytt hafi verið virt að vettugi. ASÍ leggst nú gegn ákvæði um févíti vegna launa­þjófn­aðar en SA segir að því skuli ekki breyta.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra lagði frumvarp sitt til nýrra starfskjaralaga fram í byrjun apríl.
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son umhverfis- og auð­linda­ráð­herra lagði frum­varp sitt til nýrra starfs­kjara­laga fram í byrjun apríl. Mynd: Bára Huld Beck

Alþýðu­sam­band Íslands, BSRB og BHM segj­ast ekki geta stutt frum­varp Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra til starfs­kjara­laga. Helsta ástæðan, í öllum til­fellum, er útfærsla þess laga­á­kvæðis sem varðar févíti á atvinnu­rek­endur vegna launa­þjófn­aðar.

Sú útfærsla, sem birt­ist í 14. grein frum­varps ráð­herra, er mála­miðl­un­ar­til­laga sem er afurð samn­inga­við­ræðna á milli Samtaka atvinnu­lífs­ins og ASÍ um hvernig skuli taka á brotum atvinnu­rek­enda, en í umsögn til þings­ins frá Drífu Snædal for­seta ASÍ segir að nokkur aðild­ar­fé­lög og sam­tök innan ASÍ hafi á síð­ari stigum talið of skammt gengið með þeirri mála­miðlun – og að hún gæti jafn­vel orðið „skað­leg launa­fólki vegna neit­un­ar­valds atvinnu­rek­enda“.

Drífa segir munnlegt samkomulag hafa verið brotið

Í umsögn sem Drífa ritar fyrir hönd ASÍ til vel­ferð­ar­nefndar þings­ins, sem er með frum­varpið til með­ferðar, segir frá því að hún hafi gert ráð­herra og SA grein fyrir þess­ari afstöðu aðild­ar­fé­laga og að rætt hafi verið um að leggja frum­varpið fram án 14. grein­ar­innar, sem aðal ágrein­ing­ur­inn er um.

„Sú umræða fór ekki lengra en munn­legt sam­komu­lag gert um að frum­varpið yrði ekki lagt fram nema að und­an­gengnu sam­tali. Það sam­tal hefur ekki átt sér stað en frum­varpið engu að síður lagt fram. Það er því alveg ljóst að djúp­stæður ágrein­ingur er um févít­is­á­kvæði lag­anna og ekki er ein­ing eða sátt innan ASÍ um þá mála­miðlun sem reynd var,“ segir í umsögn ASÍ, sem getur sem áður segir ekki stutt frum­varpið eins og það er lagt fram, með 14. grein­ina inni.

Gagnrýna að sanna þurfi ásetningsbrot

Þessi fjórt­ánda grein fjallar um févíti vegna svo­kall­aðs launa­þjófn­aðar, í þeim til­fellum þar sem atvinnu­rek­andi brýtur gegn lág­marks­kjörum launa­manns. Í tengslum við gerð Lífs­kjara­samn­ing­anna árið 2019 gáfu stjórn­völd út yfir­lýs­ingu þar sem meðal ann­ars kom fram að heim­ildir til refs­inga vegna slíkra mála yrðu auknar, í sam­ráði við aðila vinnu­mark­að­ar­ins.

Það hefur þó staðið á útfærsl­unni. ASÍ og aðild­ar­fé­lög þess vilja koma á hlut­lægri bóta­á­byrgð með laga­grein þess efnis að atvinnu­rek­andi sem brjóti gegn lág­marks­kjörum skuli greiða við­kom­andi ein­stak­lingi févíti sem nemi 100 pró­sentum af höf­uð­stól gjald­fall­innar kröfu, nema mál­efna­legar rétt­læt­ing­ar­á­stæður séu fyrir hendi og er þá átt við hluti á borð við mis­skiln­ing, mistúlkun á samn­ingum og fleira þvíum­líkt.

[adspot]

Í stjórn­ar­frum­varpi Guð­mundar Inga er talað um að atvinnu­rek­endur sem „af ásetn­ingi“ greiði launa­manni lak­ari laun en hann eigi rétt á sam­kvæmt kjara­samn­ingi þurfi að greiða launa­mann­inum févíti. Í umsögnum frá BSRB og BHM eru gerðar miklar athuga­semdir orða­lag og benda bæði félögin á að erfitt geti reynst að sýna fram á ásetn­ing atvinnu­rek­anda, gegn hans neitun.

„Vel má ímynda sér að atvinnu­rek­andi sé gjarnan í góðri stöðu til að sýna fram á að ekki hafi um ásetn­ing verið að ræða heldur hafi um mis­skiln­ing eða mis­tök verið að ræða,“ segir í umsögn BHM, sem telur ákvæðið ekkki nógu vel útfært að það „reyn­ist að óbreyttu gagns­laust með öllu“.

[box]

Í umsögn BSRB segir að við fyrstu sýn geti þessi laga­grein „virkað eins og hún sé mik­ill var­nagli fyrir launa­fólk“ sem verði fyrir launa­þjófn­aði, en sú leið sem fólk þurfi að leggja upp í til að sækja rétt sinn sé „alltof flókin og mats­kennd“.

BSRB gerir athuga­semd við að talað sé um ásetn­ing. „Það er í raun vand­séð hvernig sú ákvörðun að greiða laun undir kjara­samn­ingi getur talist eitt­hvað annað en ásetn­ings­brot en á sama tíma er launa­maður í von­lausri stöðu að sýna fram á hug­læga afstöðu atvinnu­rek­anda ef þar að kemur. Ásetn­ingur er flókið lög­fræði­legt hug­tak sem erfitt er að sýna fram á nema á grund­velli rann­sóknar og með fyr­ir­liggj­andi gögnum. Launa­maður sem stendur frammi fyrir atvinnu­rek­anda sem ber fyrir sig gáleysi er því í til­tölu­lega þröngri stöðu til þess að halda því fram að hann eigi rétt til févítis ef greinin helst óbreytt,“ segir í umsögn BSRB.

Samtök atvinnulífsins styðja frumvarpið

Það kveður við allt annan tón í umsögn Samtaka atvinnu­lífs­ins um frum­varpið. Samtökin segja það mála­miðlun „þar sem ólík sjón­ar­mið voru sætt“ og styðja því sam­þykkt þess, þrátt fyrir að segja að í því séu „mörg ákvæði sem fella mætti á brott eða breyta“ ef sam­tökin ein ættu að ráða.

Í umsögn SA segir að mik­ill þrýst­ingur hafi verið á að ljúka vinnu við frum­varpið vorið 2021 og að á þeim loka­spretti hafi sam­tökin sam­þykkt að ákvæðið um févíti yrði tekið inn. Segja SA að með því ákvæði sé gengið „mun lengra en lofað hafði verið af hálfu stjórn­valda í tengslum við gerð Lífs­kjara­samn­ings­ins“ og að sam­tökin hafi talið eðli­legra að kveða á um opin­ber við­ur­lög, en að kröfu ASÍ hafi verið samið um aðra útfærslu sem gerir kröfu um gott sam­starf og traust í sam­starfi ASÍ og SA.

„Það er því for­senda févít­is­á­kvæðis í frum­varp­inu að sam­komu­lag um þá útfærslu standi og ekki verði hróflað við for­sendum og skil­yrðum sem frum­varpið til­greinir,“ segir í umsögn Samtaka atvinnu­lífs­ins – og því ljóst að þeir aðilar sem áttu í sam­ráði um gerð ákvæð­is­ins eru nú gjör­sam­lega ósam­mála um það sem félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra hefur lagt fram í frum­varpi sínu – og sam­komu­lag hafði áður náðst um þeirra á milli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár