Fyrrum framkvæmdastjóri áhættustýringar Landsbankans nýr framkvæmdastjóri Eflingar

Veiga­mikil verk­efni bíða nýs fram­kvæmda­stjóra Eflingar, Perlu Aspar Ásgeirs­dóttur. Þar ber hæst stefnu­mótun og eft­ir­fylgni í tengslum við skipu­lags­breyt­ingar á skrif­stofu Eflingar.

Perla Ösp, nýr framkvæmdastjóri Eflingar, hefur lengi starfað í fjármálageiranum
Perla Ösp, nýr fram­kvæmda­stjóri Eflingar, hefur lengi starfað í fjár­mála­geir­anum Mynd: Efling

Perla Ösp Ásgeirs­dóttir hefur verið ráðin í starf fram­kvæmda­stjóra Eflingar. Hún mun hefja störf þann 1. júní. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Eflingu.

Áður starf­aði Perla í 11 ár sem fram­kvæmda­stjóri áhættu­stýr­ingar hjá Lands­bank­anum en hún er með með B.Sc. gráðu í við­skipta­fræði og M.Sc. gráðu í fjár­málum frá Háskól­anum í Reykja­vík. Þar áður starf­aði hún sem grein­andi hjá Seðla­bank­anum og gegndi sam­hliða störfum fyrir RAnn­sókn­ar­nefnd Alþingis sem rann­sak­aði orsakir fjár­mála­hruns­ins 2008.

Perlu bíða ýmis verk­efni á skrif­stofu Eflingar. „Þar ber fyrst að nefna stefnu­mótun og eft­ir­fylgni í tengslum við skipu­lags­breyt­ingar sem Efling hóf í apríl síð­ast­liðnum,“ segir í til­kynn­ingu frá stétt­ar­fé­lag­inu.

„Ég lýsi mik­illi ánægju með þessa ráðn­ingu. Við leit­uðum að fram­kvæmda­stjóra sem getur ábyrgst góða stjórn­ar­hætti, leitt vand­aða áætl­un­ar­gerð um rekst­ur­inn og átt gott sam­starf við stjórn og starfs­menn. Það er ljóst að Perla Ösp hefur afburða færni og reynslu í þessum atriðum,“ er haft eftir Sólveigu Önnu Jóns­dóttur í til­kynn­ingu Eflingar.

„Ég þakka það traust sem mér er sýnt gagn­vart því mik­il­væga verk­efni að taka við skrif­stofu Eflingar - stétt­ar­fé­lags eftir róst­ur­sama tíma. Það eru mörg verðug verk­efni sem bíða mín og þess teymis sem mun manna skrif­stof­una. Ég treysti því að þekk­ing mín og reynsla frá Lands­bank­anum muni styrkja Eflingu og hlakka til far­sælla sam­skipta við stjórn og sam­starfs­fólk,“ segir Perla Ösp.

Í apríl var öllum starfs­mönnum á skrif­stofu Eflingar sagt upp störfum eftir að meiri­hluti stjórnar félags­ins undir for­ystu for­manns­ins Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur hafði sam­þykkt að segja upp öllum ráðn­ing­ar­samn­ingum. Sólveig Anna sagði af sér for­mennsku síð­asta haust en bauð sig aftur fram til for­ystu fyrir for­manns- og stjórn­ar­kosn­ingar sem fram fóru í febr­úar. Hún leiddi þá Bar­áttu­list­ann sem hlaut 54 pró­sent greiddra atkvæða. Sólveig Anna tók svo aftur við for­mennsku Eflingar á aðal­fundi félags­ins í byrjun Apríl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár