Ekki vilji starfsmanna að Sólveig Anna segði af sér formennsku

Starfs­fólk Eflingar hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem fram kemur að ályktun starfs­manna Eflingar frá því á föstu­dag hafi ekki verið sett fram til að lýsa van­trausti á eða hrekja Sólveigu Önnu Jóns­dóttur úr starfi for­manns.

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jóns­dóttir for­maður Eflingar. Mynd: Bára Huld Beck

Starfs­fólk Eflingar hafa sent frá sér til­kynn­ingu, þar sem fram kemur að það hafi ekki verið vilji eða mein­ing starfs­manna­fund­ar­ins á föstu­dag að Sólveig Anna Jóns­dóttir segði af sér sem for­maður Eflingar.

Í til­kynn­ing­unni, sem trún­að­ar­menn Eflingar senda út fyrir hönd starfs­manna, kemur jafn­framt fram að starfs­fólk hafi unnið af heilum hug sam­kvæmt þeirri stefnu sem for­ysta félags­ins hafi sett síð­ustu ár og að fjöldi starfs­manna starfi hjá Eflingu vegna þeirra bar­áttu sem Sólveig hefur háð.

Þau vanda­mál sem starfs­fólk hafi rætt hafi það viljað leysa í sam­vinnu við yfir­menn hjá stétt­ar­fé­lag­inu.

„Yfir­lýs­ingin á föstu­dag var ekki sett fram í þeim til­gangi að lýsa van­trausti eða hrekja nokkurn úr starfi. Hún var hugsuð sem fyrsta skref á leið til lausnar,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjarninn sagði frá inni­haldi álykt­unar starfs­manna­fund­ar­ins í gær, en í henni kom auk ann­ars fram að starfs­menn teldu ósann­gjarnt að stjórn­endur veltu ábyrgð á inn­an­hús­s­málum yfir á sig. Bæði for­maður og fram­kvæmda­stjóri Eflingar hafa til­kynnt um afsagnir sínar vegna álykt­un­ar­innar.

Sólveig Anna hefur lýst því að hún hafi boðið starfs­fólki upp á tvo kosti í upp­hafi þessa starfs­manna­fundar. [links]

„Ég sagði við starfs­fólk á þessum fundi að það væru tveir kostir í stöð­unni. Annað hvort kæmi eitt­hvað skrif­legt frá þeim sem myndi bera til baka ofstæk­is­fullar lýs­ingar úr ályktun trún­að­ar­manna og orð sem frétta­maður not­aði um „ógn­ar­stjórn“, eða að ég myndi segja af mér for­mennsku í félag­inu. Það var ekki auð­veld ákvörðun fyrir mig að stilla þessu upp svona en það er að mínu mati óhjá­kvæmi­legt. Starf mitt með félags­fólki Efl­ing­ar, sem er rétt­læt­is­bar­átta varð­andi kjör og aðstæður verka­fólks á vinnu­stöð­um, hefur ekki trú­verð­ug­leika ef trún­að­ar­menn starfs­fólks Efl­ingar eru til­búnir að full­yrða að ég reki hér vinnu­stað jafn slæman eða verri en þeir sem við höfum sjálf gagn­rýnt,“ sagði Sólveig Anna í Facebook-færslu á sunnu­dags­kvöld þar sem hún til­kynnti um afsögn sína.

Í ályktun starfs­manna­fund­ar­ins á föstu­dag var því lýst yfir að ástæða hefði verið fyrir upp­haf­legri ályktun trún­að­ar­manna hjá Eflingu, sem send var á stjórn­endur í sumar og hefur ekki enn litið dags­ins ljós, og óskað var eftir því að stjórn­endur myndu bregð­ast við henni.

„Við gerum kröfur á stjórn­endur að þau við­ur­kenni, taki ábyrgð á og leysi vand­ann. Innan mán­aðar óskum við eftir því að halda annan starfs­manna­fund án stjórn­enda.

Starfs­fólk Efl­ingar fer fram á að reglu­legir starfs­manna­fund­ir, með og án við­veru stjórn­enda, verði haldnir fram­veg­is, og reglu­legir fundir trún­að­ar­manna með stjórn­endum verði settir á lagg­irn­ar. Skiln­ingur verði veittur á því að stór hluti starfs­manna hafi fundið og/eða finni til óör­yggis í starfi og að það verði ekki leyst án opins sam­tals innan vinnu­stað­ar­ins,“ sagði einnig í ályktun starfs­manna­fund­ar­ins frá því á föstu­dag.

[adspot]

Tilkynninguna má lesa í heild sinni hér að neðan.

Í ljósi frétta­flutn­ings síð­ustu daga viljum við koma eft­ir­far­andi á fram­færi:

Það var ekki vilji eða mein­ing starfs­manna­fund­ar­ins á föstu­dag að for­maður félags­ins segði af sér. Starfs­fólk félags­ins hefur unnið af heilum hug sam­kvæmt þeirri stefnu sem for­ysta félags­ins hefur sett síð­ustu ár. Fjöldi starfs­manna félags­ins starfar hér vegna þeirrar bar­áttu sem Sólveig hefur háð. Þau vanda­mál sem starfs­fólk ræddi, vildi starfs­fólk leysa í sam­vinnu við yfir­menn.

Yfir­lýs­ingin á föstu­dag var ekki sett fram í þeim til­gangi að lýsa van­trausti eða hrekja nokkurn úr starfi. Hún var hugsuð sem fyrsta skref á leið til lausnar.

Starfs­fólk er, sem endranær, að vinna fyrir félags­menn með þeirra hag fyrir brjósti.

Fyrir hönd starfs­fólks Eflingar,

trún­að­ar­menn

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár