Ragnar Þór: „Spennið sætisólarnar, kæra elíta“

Formaður VR les félögum „Harma­kórs­ins“ pistil­inn í aðsendri grein í Frétta­blað­inu en hann segir pen­inga­stefnu­nefnd SÍ, for­stjóra stór­fyr­ir­tækja, fjár­magns­eig­endur og stjórn­mála- og emb­ætt­is­fólk skipa kór­inn. Stór hluti kjara­samn­inga losnar í haust.

Formaður VR, Ragnar Þór Ingólfsson, á skrifstofunni.
Formaður VR, Ragnar Þór Ing­ólfs­son, á skrif­stof­unni. Mynd: Bára Huld Beck

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR stétt­ar­fé­lags, segir und­ir­bún­ing stjórn­mála­manna og atvinnu­rek­enda vera haf­inn fyrir kom­andi kjara­samn­ings­við­ræður. „Harma­kór­inn óvin­sæli er við æfingar þessa dag­ana,“ segir Ragnar Þór í aðsendri grein sem birt var í Frétta­blað­inu í dag. Hann segir kór­fé­laga vera pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands, for­stjóra stór­fyr­ir­tækja, fjár­magns­eig­endur og „margt þekktasta stjórn­mála- og emb­ætt­is­fólk lands­ins. Kór­stjórar eru fjár­mála­ráð­herra og seðla­banka­stjóri.“

Hann segir að söngur kórs­ins eigi „eftir að versna til mik­illa muna“ þegar nær dregur kjara­samn­ings­við­ræðum. „Harma­kór­inn und­ir­býr stór­tón­leika en háanna­tími, eins konar jóla­ver­tíð, hans er þegar kjara­samn­ingar á almennum vinnu­mark­aði eru lausir. Heyrast munu lög eins og: Græðgi ykkar er skað­leg hag­kerf­inu, Hófsemi og ábyrgð, Ábyrgðin er ykkar og hinir klass­ísku slag­arar, Höfr­unga­hlaup og Víxl­verkun launa,“ ritar Ragnar Þór.

„Það er mikil ókyrrð fram undan“

Ragnar spyr hvers vegna umræddur kór láti ekki í sér heyra þegar „efsta lag sam­fé­lags­ins er með græjurnar í botni,“ nú þegar árið í ár stefni í að verða metár með til­liti til aðr­greiðslna, kaupauka­kerfi og bón­us­greiðslur séu komin aftur og að laun for­stjóra hafi hækkað um marg­föld lág­marks­laun.

„Verð­bólga er í hæstu hæðum og almenni vinnu­mark­að­ur­inn á bara að sýna ábyrgð og hóf­semi? Kaup­máttur launa er á hraðri nið­ur­leið og er sótt úr öllum áttum. Verð á nauð­synjum rýkur upp og Seðla­bank­inn bætir gráu ofan á svart með því að keyra upp vexti sem er jafn gagns­laus aðgerð gegn utan­að­kom­andi verð­bólgu og að hengja út þvott­inn í rign­ingu,“ ritar Ragnar og klykkir út með skila­boðum til kórs­ins: „Fólk er ekki fífl. Spennið sæt­isól­ar­nar, kæra elíta, það er mikil ókyrrð fram undan.“

Meirihluti kjarasamninga rennur út á næstu níu mánuðum

Fram kom í sjón­varps­frétt RÚV á dög­unum að yfir 300 kjara­samn­ingar renni út á næstu níu mán­uðum. Samkvæmt yfir­liti rík­is­sátta­semj­ara er 361 kjara­samn­ingur í gildi hér á landi en næsta hálfa árið munu 157 þeirra renna út. Flestir þess­ara samn­inga renna út í októ­ber og nóv­em­ber, þeirra á meðal Lífs­kjara­samn­ing­ur­inn.

Líkt og Ragnar bendir á hefur kaup­máttur launa farið lækk­andi á síð­ustu mán­uðum. Í grein­ingu Lands­bank­ans frá því í byrjun mán­aðar kom fram að launa­vísi­talan hafi hækkað um 0,4 pró­sent á milli apríl og maí. Frá maí 2021 til maí 2022 hækk­aði launa­vísi­talan un 8,6 pró­sent á meðan árs­verð­bólga mæld­ist 7,6 pró­sent. Kaup­máttur jókst því á tíma­bil­inu um 0,9 pró­sent. Engu að síður var kaup­máttur launa 1,5 pró­sentum lægri í maí síð­ast­liðnum heldur en í jan­úar. „Það er því næsta víst að mjög löngu tíma­bili hækk­andi kaup­máttar sé nú lokið,“ sagði í grein­ingu Lands­bank­ans.

Eflingar-fólk kvíði ekki kjarabaráttunni

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, lagði einnig orð í belg um kom­andi kjara­samn­inga­við­ræður í dag. Í færslu á Facebook síðu sinni segir Sólveig að hún hafi ekki áhyggjur af kom­andi kjara­bar­áttu. „Ég myndi kannski hafa áhyggjur ef að verka og lág­launa­fólk væri enn fast í því ástandi sem ríkti fyrir ekki svo löngu, þegar búið var að ákveða að „stöð­ug­leiki“ næð­ist fyrst og fremst með því að „þjóð­ar­sátt“ ríkti um að vinnu­aflið fengi úthlutað nákvæm­lega þeim brauð­molum sem að reikni­meist­arar valds­ins náðu nið­ur­stöðu um að væru nægi­lega margir,“ ritar hún.

Að mati Sól­veigar er sá tími lið­inn að Eflingar-fólk kvíði kjara­samn­ingum. Fyrir því séu þeir póli­tískt tæki til að ná efna­hags­legum árangri. „Ég kvíði ekki kom­andi kjara­bar­áttu. Hún verður raun­veru­leg stétta­bar­átta. Og félags­fólks Eflingar mun mæta til leiks með allra mik­il­væg­ustu vit­neskju vinnu­aflsins í fartesk­inu: Vinna okkar skapar verð­mæti sam­fé­lags­ins og gerir sköpun þeirra mögu­leg með því að halda uppi umönn­un­ar­kerf­unum,“ ritar hún.

Fólk sem veit þetta, segir Sólveig, skilji að það sé ómissandi og því þurfi það ekki að kvíða kjara­bar­átt­unni. „Það mætir stjórum þessa lands hnar­reist og segir: Við sættum okkur ekki við að vellyst­ingar ykkar séu á kostnað okkar. Við krefj­umst rétt­lætis og við krefj­umst þess að okkar hags­munir séu settir í fyrsta sæti,“ ritar hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár