Starfsmenn Eflingar vilja að stjórnendur „viðurkenni, taki ábyrgð á og leysi vandann“

Í ályktun starfs­manna Eflingar, sem sam­þykkt var á föstu­dag, kom fram að þeir töldu ósann­gjarnt að stjórn­endur veltu ábyrgð á inn­an­hús­málum yfir á sig. Bæði for­maður og fram­kvæmda­stjóri Eflingar hafa til­kynnt um afsagnir sínar vegna álykt­un­ar­innar.

Sólveig Anna Jónsdóttir og Viðar Þorsteinsson.
Sólveig Anna Jóns­dóttir og Viðar Þor­steins­son. Mynd: Facebook-síða Viðars

Í ályktun starfs­manna­fundar Eflingar, sem sam­þykkt var síð­ast­lið­inn föstu­dag og send til stjórn­enda stétt­ar­fé­lags­ins, segir að starfs­menn telji ósann­gjarnt að stjórn­endur velti ábyrgð á inn­an­hús­málum yfir á starfs­fólk Eflingar. Ástæða hafi verið fyrir ályktun sem sam­þykkt var af starfs­fólki Eflingar í júní síð­ast­liðnum þar sem for­maður Eflingar, Sólveig Anna Jóns­dóttir, var meðal ann­ars ásökuð um að halda aftöku­lista og um að fremja kjara­samn­ings­brot gegn starfs­fólki með fyr­ir­vara­lausum upp­sögnum. Starfs­fólkið óskaði eftir því að stjórn­endur Eflingar myndu bregð­ast við álykt­un­inni frá því í júní. „Við gerum kröfur á stjórn­endur að þau við­ur­kenni, taki ábyrgð á og leysi vand­ann. Innan mán­aðar óskum við eftir því að halda annan starfs­manna­fund án stjórn­enda.“

Eftir að þessi ályktun starfs­fólks lá fyrir ákváðu bæði Sólveig Anna og Viðar Þor­steins­son, fram­kvæmda­stjóri Eflingar, að segja af sér.

Sólveig Anna bauð upp á tvo kosti

Forsaga máls­ins er sú að í júní sam­þykktu starfs­menn Eflingar ályktun sem hefur ekki verið birt opin­ber­lega. Í henni voru stjórn­endur stétt­ar­fé­lags­ins gagn­rýndir með ýmsum hætti fyrir fram­komu sína gagn­vart starfs­fólki. Trún­að­ar­menn starfs­manna und­ir­rit­uðu álykt­un­ina og hún var sett fram fyrir hönd starfs­manna.

[adspot]Á fimmtu­dag birti RÚV svo við­tal við Guðmund Bald­urs­son, stjórn­ar­mann í Eflingu, þar sem hann greindi frá því að hann hefði ítrekað reynt að fá álykt­un­ina afhenta og að hann hefði áhyggjur af fram­komu stjórn­enda Eflingar gagn­vart starfs­fólki. Talaði hann meðal ann­ars um að starfs­fólk sem hefði hætt hjá Eflingu hefði talið sér „að ein­hverju leyti ógnað innan gæsalappa, af ógn­ar­stjórn.“

Daginn eftir að fréttin birt­ist, föstu­dag­inn 29. októ­ber, ákvað Sólveig Anna að ávarpa starfs­fólk í upp­hafi vinnu­dags.

Í stöðu­upp­færslu sem hún birti á Facebook í gær sagði hún: „Ég sagði við starfs­fólk á þessum fundi að það væru tveir kostir í stöð­unni. Annað hvort kæmi eitt­hvað skrif­legt frá þeim sem myndi bera til baka ofstæk­is­fullar lýs­ingar úr ályktun trún­að­ar­manna og orð sem frétta­maður not­aði um „ógn­ar­stjórn“, eða að ég myndi segja af mér for­mennsku í félag­inu. Það var ekki auð­veld ákvörðun fyrir mig að stilla þessu upp svona en það er að mínu mati óhjá­kvæmi­legt. Starf mitt með félags­fólki Eflingar, sem er rétt­læt­is­bar­átta varð­andi kjör og aðstæður verka­fólks á vinnu­stöðum, hefur ekki trú­verð­ug­leika ef trún­að­ar­menn starfs­fólks Eflingar eru til­búnir að full­yrða að ég reki hér vinnu­stað jafn slæman eða verri en þeir sem við höfum sjálf gagn­rýnt.“

Ástæða fyrir upphaflegu ályktuninni

Sólveig Anna sagð­ist enn fremur aldrei geta borið þessar ásak­anir til baka sjálf. Einungis starfs­menn gætu kveðið upp dóm um rétt­mæti þeirra. Hún hafi í kjöl­farið vikið af fund­inum og starfs­menn tekið sér tíma fram yfir hádegi til að ræða saman. Nið­ur­staða þess sam­tals hafi verið ályktun þess efnis að starfs­menn teldu það ósann­gjarnt að stjórn­endur velti ábyrgð á þessum inn­an­hús­málum á starfs­fólkið.

[links]Í álykt­un­inni, sem Kjarninn hefur undir höndum, segir orð­rétt: „Við lýsum því yfir að ástæða hafi verið fyrir upp­haf­legu álykt­un­inni og óskum enn eftir að stjórn­endur bregð­ist við henni. Við gerum kröfur á stjórn­endur að þau við­ur­kenni, taki ábyrgð á og leysi vand­ann. Innan mán­aðar óskum við eftir því að halda annan starfs­manna­fund án stjórn­enda.

Starfs­fólk Eflingar fer fram á að reglu­legir starfs­manna­fundir, með og án við­veru stjórn­enda, verði haldnir fram­vegis, og reglu­legir fundir trún­að­ar­manna með stjórn­endum verði settir á lagg­irnar. Skiln­ingur verði veittur á því að stór hluti starfs­manna hafi fundið og/eða finni til óör­yggis í starfi og að það verði ekki leyst án opins sam­tals innan vinnu­stað­ar­ins.“

Formaður og framkvæmdastjóri hætta

Þessi nið­ur­staða gerði það að verkum að Sólveig Anna til­kynnti stjórn Eflingar um afsögn sína um helg­ina. Viðar Þor­steins­son, fram­kvæmda­stjóri Eflingar, stað­festi það svo við Kjarnann í morgun að hann myndi fylgja henni út úr félag­inu og afhenda upp­sagn­ar­bréf síðar í dag.

Viðar var ráð­inn í þá nýtt starf fram­kvæmda­stjóra Efl­ingar í maí 2018, í kjöl­far þess að Sól­veig Anna var kjörin for­maður stétt­ar­fé­lags­ins, sem er það næst fjöl­menn­asta á land­inu. Hann hefur alla tíð unnið náið og í takti með for­mann­in­um.

Í stöðu­upp­færslu Sól­veigar Önnu sagði að henni þætti það „ótrú­­legt að það sé starfs­­fólk Efl­ingar sem í reynd hrekur mig úr starfi, með því að leyfa and­­stæð­ingum félags­­ins að hossa sér á ýkj­um, lygum og rang­­færslum um mig og sam­verka­­fólk mitt. Starfs­­fólk Efl­ingar hefur kosið að svipta mig því vopni sem hefur gert mér mög­u­­legt að leiða sög­u­­lega og árang­­ur­s­­ríka bar­áttu verka- og lág­­launa­­fólks síð­­­ustu ár, mann­orði mínu og trú­verð­ug­­leika.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár