Sólveig Anna hætt sem formaður Eflingar - Segir starfsfólk hafa hrakið sig úr starfi

Formaður Eflingar hefur til­kynnt stjórn stétt­ar­fé­lags­ins um afsögn sína. Ástæðan er texti sem trún­að­ar­menn starfs­fólks skrif­stofu Eflingar sam­þykktu í sumar þar sem hún er meðal ann­ars ásökuð um að halda „aftöku­lista“ og fremja kjara­samn­ings­brot.

Sólveig Anna Jónsdóttir.
Sólveig Anna Jóns­dóttir. Mynd: Bára Huld Beck

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar stétt­ar­fé­lags, hefur til­kynnt stjórn Eflingar um afsögn sína. Þetta til­kynnti hún í stöðu­upp­færslu á Facebook í kvöld. Hún var fyrst kjörin for­maður Eflingar í mars 2018 og end­ur­kjörin án mót­fram­boðs tveimur árum síðar.

Ástæðan fyrir afsögn hennar er texti sem trún­að­ar­menn starfs­fólks skrif­stofu Eflingar sam­þykktu þann 9. júní og sendu þá á hana og aðra stjórn­endur. Á fimmtu­dag í síð­ustu viku hafði frétta­maður RÚV sam­band við Sólveigu vegna þessa texta, þar sem hún er meðal ann­ars sökuð um að halda „aftöku­lista“ og að fremja grafal­var­leg kjara­samn­ings­brot gegn starfs­fólki á borð við fyr­ir­vara­lausar upp­sagnir. Textinn er und­ir­rit­aður af trún­að­ar­mönnum og sagður settur fram fyrir hönd starfs­manna.

Eftir að hafa fengið póst frá frétta­manni ákvað Sólveig Anna að ávarpa starfs­fólk Eflingar í upp­hafi vinnu­dags á föstu­dag­inn síð­asta, en búið var að ákveða starfs­manna­fund á þeim tíma. „Ég sagði við starfs­fólk á þessum fundi að það væru tveir kostir í stöð­unni. Annað hvort kæmi eitt­hvað skrif­legt frá þeim sem myndi bera til baka ofstæk­is­fullar lýs­ingar úr ályktun trún­að­ar­manna og orð sem frétta­maður not­aði um „ógn­ar­stjórn“, eða að ég myndi segja af mér for­mennsku í félag­inu.“

[adspot]Nið­ur­staða fundar starfs­fólks­ins var ályktun sem send var til stjórn­enda og önnur ályktun til RÚV. „Í þessum álykt­unum kemur fram afdrátt­ar­laus stað­fest­ing á þeim orðum sem var að finna í ályktun trún­að­ar­manna frá í júní. Talað er á þeim nótum að alvar­leg vanda­mál séu við­var­andi sem þurfi að leysa með funda­höldum og öðru. Krafist er auk­ins valds fyrir trún­að­ar­menn vinnu­stað­ar­ins og tíð­ari vinnu­staða­funda, þar sem mögu­leg van­líðan ein­stakra starfs­menna verði fund­ar­efni. Í yfir­lýs­ingu til RÚV er jafn­framt engin til­raun gerð til að bera til baka ásak­anir um ógn­ar­stjórn. Álykt­an­irnar eru van­trausts­yf­ir­lýs­ing til mín og til allra þeirra sem bera ábyrgð á starfs­manna­málum vinnu­stað­ar­ins.“

Sólveig Anna segir í stöðu­upp­færsl­unni að hún kjósi að hlíta þeirri afdrátt­ar­lausu van­trausts­yf­ir­lýs­ingu sem starfs­fólk Eflingar hafi sent henni, félag­inu og fjöl­miðlum, sem geri starf hennar ómögu­legt. „Ég get ekki gegnt stöðu for­manns í félag­inu að svo komnu máli og hef ég til­kynnt stjórn Eflingar um afsögn mína. Mér þykir það ótrú­legt að það sé starfs­fólk Eflingar sem í reynd hrekur mig úr starfi, með því að leyfa and­stæð­ingum félags­ins að hossa sér á ýkjum, lygum og rang­færslum um mig og sam­verka­fólk mitt. Starfs­fólk Eflingar hefur kosið að svipta mig því vopni sem hefur gert mér mögu­legt að leiða sögu­lega og árang­urs­ríka bar­áttu verka- og lág­launa­fólks síð­ustu ár, mann­orði mínu og trú­verð­ug­leika.“

Hægt er að lesa stöðu­upp­færsl­una í heild sinni hér að neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár