VR búið að samþykkja kjarasamninga – 82 prósent sögðu já

Kosningu um nýjan skamm­tíma­kjara­samn­ing stærsta stétt­ar­fé­lags lands­ins lauk í hádeg­inu í dag. Hann var sam­þykktur með afger­andi hætti. Búið er að sam­þykkja samn­inga fyrir um 80 pró­sent af almenna vinnu­mark­aðnum.

Flestir þeirra sem undirrituðu samninganna 12. desember síðastliðinn fyrir hönd félagsmanna stilltu sér upp í myndatöku í kjölfarið. Á myndina vantar hins vegar Ragnar Þór Ingólfsson, formann VR, sem sagðist ekki hafa haft geð í að láta mynda sig.
Flestir þeirra sem und­ir­rit­uðu samn­ing­anna 12. des­em­ber síð­ast­lið­inn fyrir hönd félags­manna stilltu sér upp í mynda­töku í kjöl­farið. Á mynd­ina vantar hins vegar Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­mann VR, sem sagð­ist ekki hafa haft geð í að láta mynda sig. Mynd: Skjáskot

Búið er að sam­þykkja kjara­samn­ing VR, Lands­sam­band íslenskra verzlunarmanna og sam­flot stétt­ar­fé­laga iðn­aðar- og tækni­fólks gerðu við Samtök atvinnu­lífs­ins 12. des­em­ber síð­ast­lið­inn, en atkvæða­greiðslu lauk í hádeg­inu í dag. Í frétt RÚV segir að 82 pró­sent þeirra sem kusu hjá VR hafi sam­þykkt samn­ing­inn og að kjör­sókn hafi verið 25 pró­sent, sem þykir mikið.

Þar kemur einnig fram að félagar Raf­iðn­að­ar­sam­bands­ins hafi sam­þykkt einnig samn­ing­inn. Alls 77 pró­sent sveina sam­þykktu hann, 73 pró­sent tækni­fólks og 88 pró­sent félaga í Grafíu sam­þykktu.

[adspot]Samn­ing­arnir munu gilda frá 1. nóv­em­ber síð­ast­liðnum og til 31. jan­úar 2024. Í þeim fel­ast að almennar launa­hækk­anir verða 6,75 pró­sent og þær taka gildi frá 1. nóv­em­ber síð­ast­liðn­um. Hækk­unin getur þó að hámarki orðið 66 þús­und krón­ur, sem þýðir að þak hennar er rétt undir einni milljón króna mán­að­ar­laun­um. Þá var samið um að des­em­ber­upp­bót fyrir næsta ár verði 103 þús­und krónur og orlofs­upp­bót 56 þús­und krón­ur.

[links]Hag­vaxt­ar­auk­inn svo­kall­aði, sem átti að taka gildi 1. apríl næst­kom­andi og er hluti af síð­ustu kjara­samn­ingum sem gerðir voru 2019, fellur sam­hliða nið­ur. Það þýðir að hag­vaxt­ar­auk­inn fellur inn í launa­hækk­un­ina. Auk þess taka nýjar launa­töflur gildi hjá fólki sem vinnur sam­kvæmt taxta sem leiða til ein­hverra hækk­ana umfram almennu hækk­un­ina.

Með þessu er búið að ljúka skamm­tíma­samn­ingum við meiri­hluta almenns vinnu­mark­að­ar, en áður hafði verið samið við Starfs­greina­sam­band­ið sem er þegar búið að sam­þykkja sína samn­inga. Um er að ræða 80 þús­und manna hóp. Enn á eftir að semja við um 20 pró­sent af almenna vinnu­mark­að­inum og er stærsti bit­inn þar Efl­ing, næst stærsta stétt­ar­fé­lag lands­ins. Til við­bótar við þann hóp starfa um 61 þús­und manns á opin­bera mark­að­inum og hjá öðrum aðil­u­m.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár