Segir fáránleika kröfu Guðmundar um afsögn varaformanns Eflingar „óbærilega“ ógeðslegan

Sólveig Anna Jóns­dóttir segir vara­for­mann Eflingar vera fyrsta raun­veru­lega full­trúa aðflutts verka­fólks í verka­lýðs­bar­átt­unni, en um helm­ingur félags­fólk í Eflingu er aðflutt fólk.

Sólveig Anna Jónsdóttir og Agnieszka Ewa Ziólkowska
Sólveig Anna Jónsdóttir og Agnieszka Ewa Ziólkowska Mynd: Samsett

Guð­mundur Bald­urs­son, stjórn­ar­maður í Eflingu, sagði í Kast­ljósi í gær að hann teldi að Agnieszka Ewa Ziólkowska, vara­for­maður Eflingar, ætti að segja af sér líkt og Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður félags­ins, og Viðar Þor­steins­son, fram­kvæmda­stjóri þess, hafa valið að gera.

Sólveig Anna bregst við þess­ari kröfu í stöðu­upp­færslu á Facebook í dag og segir að þótt henni hafi ekki verið hlátur í huga yfir við­tal­inu við Guðmund þá hafi hún ekki getað annað en hlegið „agn­arsmáum“ hlátri þegar þessi orð féllu. „Ég hugs­aði um „afreka­lista" hans í störfum fyrir félagið og fólkið sem til­heyrir því, og svo hvað Agnieszka hefur gert og þess­vegna hló ég í örskamma stund. Fárán­leiki þess að þessi maður væri að krefj­ast þess að hún léti sig hverfa var svo yfir­gengi­legur. En auð­vitað fyrst og síð­ast svo óbæri­lega ógeðs­legur.“

Hún segir að Agnieszka sé fyrsti raun­veru­legi full­trúi aðflutts verka­fólks í verka­lýðs­bar­átt­unni, en um helm­ingur félags­fólk Eflingar er aðflutt fólk. Með kjöri hennar hafi í fyrsta skipti verið sett mann­eskja í ábyrgð­ar­hlut­verk sem til­heyrir þeim hópi. „Hún þekkir allt það sví­virði­lega rugl sem við­gengst gagn­vart aðfluttu verka­fólki á eigin skinni. Allt. Hún hefur, ásamt mér og þeim í stjórn sem raun­veru­lega hafa viljað bæta hag alls vinnu­aflsins, ekki bara hag þeirra sem líta út og tala eins og þeir sjálfir, leitt stór­kost­lega umbóta vinnu innan félags­ins þegar kemur að því að tryggja að okkar aðfluttu félagar eigi rétt á nákvæm­lega sömu þjón­ustu og þau okkar sem fædd eru hér. [...] Og svo dirf­ist ein­hver maður að segja henni að láta sig hverfa. Ég myndi leggja til að hann skamm­að­ist sín en ég veit af mik­illi reynslu að það kann [hann] ekki.“

Logar allt í illdeilum

Sólveig Anna sagði af sér á sunnu­dag og Viðar fylgdi eftir með upp­sögn í gær. Forsagan af þeim deilum sem urðu til þess er að í júní sam­­­þykktu starfs­­­menn Efl­ingar ályktun sem hefur ekki verið birt opin­ber­­­lega. Í henni voru stjórn­­­endur stétt­­­ar­­­fé­lags­ins gagn­rýndir með ýmsum hætti fyrir fram­komu sína gagn­vart starfs­­­fólki. Trún­­­að­­­ar­­­menn starfs­­­manna und­ir­­­rit­uðu álykt­un­ina og hún var sett fram fyrir hönd starfs­­­manna.

[adspot]Á fimmt­u­dag birti RÚV svo við­­­tal við Guð­­­mund Bald­­­ur­s­­­son þar sem hann greindi frá því að hann hefði ítrekað reynt að fá álykt­un­ina afhenta og að hann hefði áhyggjur af fram­komu stjórn­­­enda Efl­ingar gagn­vart starfs­­­fólki. Tal­aði hann meðal ann­­­ars um að starfs­­­fólk sem hefði hætt hjá Efl­ingu hefði talið sér „að ein­hverju leyti ógnað innan gæsalappa, af ógn­­­ar­­­stjórn.“

Vegna þessa ávarp­aði Sól­­­veig Anna starfs­­­menn á föst­u­­­dags­morgun og bað þá um að draga til baka álykt­un­ina. Ef þeir myndu ekki gera það myndi hún segja af sér.

[links]Þeir gerðu það ekki heldur sendu frá sér aðra ályktun þar sem kom fram að þeir töldu ósann­­­gjarnt að stjórn­­­endur veltu ábyrgð á inn­­­an­hús­­­málum yfir á sig.

Í kjöl­farið sagði Sól­­veig Anna af sér og sagði starfs­menn Efl­ingar hafa hrakið sig úr starfi.

Guð­mundur sendi frá sér yfir­lýs­ingu í gær þar sem hann sagði að Sól­­veig Anna hafi „haldið lyk­il­­upp­­lýs­ingum leyndum frá stjórn­­inni til að hylma yfir van­líðan starfs­­fólks á skrif­­stofu Efl­ing­­ar“ með því að neita að kynna fyrir stjórn­­inni starfs­loka­­samn­ing við fyrr­ver­andi skrif­­stofu­­stjóra Efl­ingar í upp­­hafi þessa árs.

Allir eft­ir­stand­andi með­limir stjórnar Efl­ingar nema þrír, alls ell­efu manns, sendu í kjöl­farið frá sér yfir­lýs­ingu þar sem þau hvöttu Guð­mund til að segja af sér stjórn­ar­mennsku. Þau hvöttu hann auk þess til að „láta verða af hug­myndum sínum um stofnun nýs klofn­ings­-­stétt­ar­fé­lags.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár