Töluðu um að drepa Sólveigu Önnu og Gunnar Smára

Menn­irnir tveir sem sitja í gæslu­varð­haldi vegna gruns um að hafa verið að und­ir­búa hryðju­verk töl­uðu um að myrða for­mann Eflingar og for­mann fram­kvæmda­stjóra Sós­í­alista­flokks Íslands.

Sólveig Anna Jónsdóttir og Gunnar Smári Egilsson.
Sólveig Anna Jóns­dóttir og Gunnar Smári Egilsson. Mynd: Samsett

Menn­irnir tveir sem sitja í gæslu­varð­haldi grun­aðir um und­ir­bún­ing hryðju­verka ræddu um að drepa Sólveigu Önnu Jóns­dóttur, for­mann Eflingar, og Gunnar Smára Egilsson, for­mann fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks Íslands. Frá þessu er greint á Sam­stöð­inni, sam­fé­lags­sjón­varpi og og vett­vangi fyrir rót­tæka sam­fé­lags­um­ræðu sem teng­ist Sós­í­alista­flokknum.

Þar er greint frá því að hér­aðs­sak­sókn­ari hafi kallað inn fólk sem menn­irnir tveir ræddu um að meiða eða drepa til vitna­leiðslu. Á meðal þeirra séu Sólveig Anna og Gunnar Smári. Í frétt­inni segir að Sólveigu Önnu hafi verið sýnd sam­skipti þar sem hún er kölluð „litla kommalufsan sem vildi gera bylt­ingu“ og heit­streng­ingar mann­anna um að drepa hana einn dag­inn. „Gunnari Smára voru sýnd sam­skipti þar sem annar mað­ur­inn var staddur á sama veit­inga­stað og hann og barm­aði sér yfir að vera ekki vopn­aður. Á eftir fylgdu vanga­veltur um hvað myndi ger­ast ef hann dræpi Gunnar Smára þarna á staðnum. Ég væri kom­inn upp á löggu­stöð fyrir mið­nætti, sagði sá á staðnum. Við myndum fljúga inn á þing, sagði hinn, eins og morðið myndi gera þá að þjóð­hetjum.“

Í frétt Sam­stöðv­ar­innar er haft eftir Sólveigu Önnu að það sé óhugn­an­legt að fá að vita að menn­irnir hafi verið að smíða vopn og gæla við að taka sig af lífi fyrir póli­tískar skoð­anir og starf. Gunnar Smári segir á sama stað að hann hafi áður bent á hversu hættu­leg hat­urs­orð­ræða frá hægri gagn­vart verka­lýðs­bar­áttu og sós­í­al­isma sé. Ekki sé talað eins illa um nokkra mann­eskju í íslenskum fjöl­miðlum og Sólveigu Önnu. Það sé vegna þess að hún lætur valda­stétt­ina heyra það og vegna þess að hún sé sós­í­alisti og kona.

Sýndu árshátið lögreglumanna sérstakan áhuga

Menn­irnir sem um ræðir voru hand­teknir 21. sept­em­ber síð­ast­lið­inn í umfangs­miklum aðgerðum sér­sveitar rík­is­lög­reglu­stjóra. Um tíma tóku um 50 lög­reglu­menn þátt í þeim. Menn­irnir eru á þrí­tugs­aldri og eru báðir enn í gæslu­varð­haldi þar sem þeir eru látnir sæta ein­angrun. Rann­sókn lög­reglu snýst meðal ann­ars um að kanna hvort menn­irnir teng­ist nor­rænum öfga­sam­tök­um.

[adspot]Menn­irnir höfðu verið til rann­sóknar mán­uðum saman. Þeir eru grun­aðir um að hafa fram­leitt skot­vopn með þrí­vídd­ar­prentum og safnað að sér umtals­verðu magni af hefð­bundn­ari skot­vopn­um. Á meðal þeirra vopna sem fund­ust á þeim stöðum sem leitað var voru skamm­byssur og hríð­skota­byss­ur, en skot­vopnin skiptu tugum og skot­færin sem menn­irnir höfðu undir höndum þús­und­um. Sum vopnin voru hálf­sjálf­virk.

Á upp­lýs­inga­fundi lög­regl­unnar í kjöl­far hand­töku þeirra kom fram að árás­irnar hefðu meðal ann­ars átt að bein­ast að Alþingi og lög­reglu. Morg­un­blaðið hafði á sama tíma eftir heim­ild­ar­mönnum sínum að menn­irnir hafi sýnt árs­há­tíð lög­reglu­manna, sem stóð fyrir dyrum, sér­stakan áhuga. Í blað­inu kom einnig fram að á meðal þess sem hafi fund­ist við hús­leit lög­reglu hafi verið þjóð­ern­is­of­stæk­is­á­róð­ur. Á meðal ætl­aðra fyr­ir­mynda mann­anna hafi verið And­ers Behring Breivik, sem myrti 77 ein­stak­linga í Osló og Útey árið 2011.

Í hádeg­is­fréttum RÚV 23. sept­em­ber var greint frá því að menn­irnir tveir sem eru í gæslu­varð­haldi hafi rætt sín á milli um að fremja fjöldamorð og nefnt lög­reglu­menn, Alþingi og fleira í því sam­hengi. Þetta hafi komið fram í síma- og tölvu­gögnum sem fund­ist hafi. Annar mann­anna losn­aði úr gæslu­varð­haldi degi áður en hann var hand­tek­inn. Ástæða þess var grunur um vopna­laga­brot fyrr á þessu ári.

Sam­kvæmt almennum hegn­ing­ar­lögum á að refsa fyrir hryðju­verk með allt að ævi­löngu fang­elsi.

Rúður brotnar og Gunnari Smára hótað

Í byrjun sept­em­ber greindi Gunnar Smári frá því í færslu á Facebook að hús­næði þar sem Sós­í­alista­flokkur Íslands leigir aðstöðu ásamt öðrum sam­tök­um hafi verið grýtt, með þeim afleið­ingum að tveir gluggar þar sem merki flokks­ins og Sam­stöðv­ar­innar var, brotn­uðu.

Þar sagði hann enn fremur frá því að maður hefði sent á hann skila­boð skömmu áður með óhróðri. Skila­boðin voru eft­ir­far­andi: „Þið eruð sið­blind hel­víti og farið beint þang­að. Ég mun finna á end­anum hvar þið eigið heima. Hugs­aðu um fjöl­skyld­una þína áður en þið haldið áfram. Ég vill ekki beita vopnum en þið gefið mér ekki færi á öðru.“

Gunnar Smári sagði að hann hafi greint mann­inum frá því að hann myndi senda skila­boðin til lög­reglu og gerði það í kjöl­far­ið. „Lög­reglu­maður hringdi í mig dag­inn eftir og ég nefndi við hann að annar maður hefur haft í hót­unum við mig, veist að mér úti á götu og fjöl­skyldu minni. Ég sá hann síð­ast fyrir utan heim­ili mitt þar sem hélt hót­unum sínum áfram, hróp­aði alls kyns ókvæð­is­orð um meinta glæpi sós­í­al­ism­ans, sagði mér að láta Bjarna Bene­dikts­son í friði og hróp­aði að lok­um: Viva Bjarni Ben!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár