Sólveig Anna segist hafa orðið fyrir ofbeldishótunum frá starfsmanni Eflingar

Formaður Eflingar seg­ist hafa tekið sína ákvörðun. Hún sé að við­ur­kenna fyrir sér sjálfri hverjar tak­mark­anir sínar sem mann­eskju eru þegar fólk sé reiðu­búið að svipta hana ærunni opin­ber­lega en „stendur þög­ult hjá á meðan ég er sjálf beitt ofbeldi“.

Sólveig Anna Jónsdóttir.
Sólveig Anna Jóns­dóttir. Mynd: Bára Huld Beck

Sólveig Anna Jóns­dóttir, sem sagði af sér sem for­maður Eflingar í gær, segir að einn af karl­kyns starfs­mönnum skrif­stofu Eflingar hafi „lýst því yfir við annan starfs­mann að hann væri mjög reiður út í mig og væri að hugsa um að fara heim til mín og vinna mér þar skaða sem ekki var lýst nánar en voru aug­ljós­lega ein­hvers konar ofbeldi.“

Hún segir í stöðu­upp­færslu á Facebook að umræddur starfs­maður Eflingar hafi látið „fylgja sög­unni, þegar hann lýsti ofbeld­is­hót­unum sínum gegn mér, að hann hefði í tvö ár rispað bíl manns sem honum var illa við. Það sann­aði að honum væri alvara og að hann væri fær um að fremja glæp. Hann bætti því við, að hann hefði ekki áhyggjur af að verða dæmdur í fang­elsi vegna þess sem hann kynni gera mér, af því að jafn­vel þó að hann yrði dæmdur þá þyrfti hann aldrei að sitja inni, þar sem hann væri með hreint saka­vott­orð.“

Tilefni stöðu­upp­færsl­unnar er frétt á Vísi í dag þar sem sagt er frá því að yfir­lýs­ing Sól­veigar Önnu um ástæður afsagnar hennar úr stöðu for­manns Eflingar hafi „hleypt illu blóði í marga starfs­menn stétt­ar­fé­lags­ins“. Þar var haft eftir heim­ildum að starfs­fólk Eflingar hefði fund­ist Sólveig Anna hafa gefið „opið skot­leyfi“ með því að hafa greint frá því að hún teldi starfs­menn hafa hrakið sig úr starfi.

Segir manninn óánægðan með að hafa ekki fengið stöðuhækkun

Sólveig Anna segir að sér sé ekki kunn­ugt um að hún hafi gert nokkuð á hlut þess manns sem hún segir hafa hótað sér ofbeldi, og er ekki nafn­greindur í stöðu­upp­færsl­unni, en að henni skilj­ist að hann sé óánægður með að annar starfs­maður fékk stöðu­hækkun sem hann taldi sig eiga rétt á. „Það er alvitað að hann er náinn fyrrum stjórn­endum á skrif­stofu Eflingar, þeim sömu sem hafa á síð­ast­liðnum árum farið fram með enda­lausar lygar, hót­anir um dóms­mál og óhróður gegn mér, í fjöl­miðlum og víðar.

[adspot]Þetta dæmi, sem er stað­fest með skrif­legum vitn­is­burði sem liggur inni hjá mannauðs­stjóra skrif­stofu Eflingar, er aðeins eitt af mörgum um það ofstæki og þá heift sem þótt hefur eðli­legt að ég sitji undir af hálfu starfs­fólks Eflingar frá þeim degi sem ég var kosin sem for­maður Eflingar.“

Hún telji blasa við að nú verði hún sökuð um lygar, og beðin um sönn­un­ar­gögn sem aldrei verða nógu mark­tæk. „Ég verð sjálf sögð vera vand­málið. Ég stundi ógn­ar­stjórn og gangi um með aftöku­lista. Skelli jafn­vel hurðum, svo fast að starfs­fólk Eflingar ótt­ist mig og þurfi sér­staka vernd. Það mun ekki skipta neinu þótt ég hafi til­kynnt um málið til lög­reglu. Það mun ekki skipta máli þótt að starfs­menn á vinnu­staðnum viti af og hafi rætt sín á milli um þessa upp­á­komu. Þeir munu eflaust ekki kann­ast lengur við neitt.“

Dramatík á síðustu dögum

For­­saga máls­ins er sú að í júní sam­­þykktu starfs­­menn Efl­ingar ályktun sem hefur ekki verið birt opin­ber­­lega. Í henni voru stjórn­­endur stétt­­ar­­fé­lags­ins gagn­rýndir með ýmsum hætti fyrir fram­komu sína gagn­vart starfs­­fólki. Trún­­að­­ar­­menn starfs­­manna und­ir­­rit­uðu álykt­un­ina og hún var sett fram fyrir hönd starfs­­manna.

Á fimmt­u­dag birti RÚV svo við­­tal við Guð­­mund Bald­­ur­s­­son þar sem hann greindi frá því að hann hefði ítrekað reynt að fá álykt­un­ina afhenta og að hann hefði áhyggjur af fram­komu stjórn­­enda Efl­ingar gagn­vart starfs­­fólki. Tal­aði hann meðal ann­­ars um að starfs­­fólk sem hefði hætt hjá Efl­ingu hefði talið sér „að ein­hverju leyti ógnað innan gæsalappa, af ógn­­ar­­stjórn.“

Vegna þessa ávarp­aði Sól­­veig Anna starfs­­menn á föst­u­­dags­morgun og bað þá um að draga til baka álykt­un­ina. Ef þeir myndu ekki gera það myndi hún segja af sér.

Þeir gerðu það ekki heldur sendu frá sér aðra ályktun þar sem kom fram að þeir töldu ósann­­gjarnt að stjórn­­endur veltu ábyrgð á inn­­an­hús­­málum yfir á sig.

Í kjöl­farið sagði Sól­veig Anna af sér og sagði starfs­menn Eflingar hafa hrakið sig úr starfi.

Fleiri með vitneskju um hótunina

Í stöðu­upp­færsl­unni í kvöld segir hún að starfs­fólk Eflingar hafi talið mjög brýnt og nauð­syn­legt að hún sitji áfram undir óleið­réttum ásök­unum. „Í salnum sat starfs­mað­ur­inn, sem sjálfur varð vitni að ofbeld­is­hót­unum í minn garð frá þessum sam­starfs­manni okkar, og sem hefur sagt frá upp­á­kom­unni við nokkra aðra starfs­menn. Í salnum sátu einnig fleiri úr hópi þeirra sem hafa fengið vit­neskju um hót­un­ina, til dæmis trún­að­ar­maður vinnu­stað­ar­ins, sá sami og gengið hefur harð­ast fram í glóru­lausum ásök­unum gegn mér og kröfum um að vinnu­staða­fundum verði snúið upp í rétt­ar­höld yfir glæpum mínum.

Ég var ekki á fund­inum. Ég veit því ekki hvort ein­hver fund­ar­manna sem hafði vit­neskju um rétt svo tveggja vikna gamlar ofbeld­is­hót­an­irnar gegn mér hafi rétt upp hönd, spurt ef til vill spurn­inga, velt því ef til vill upp hvort komið væri gott af „opnu skot­leyfi“ á mig? Það veit ég ekki, en ég veit hver nið­ur­staðan var af fund­inum.“

Stendur við ákvörðun sína

Sólveig Anna seg­ist hafa tekið sína ákvörðun og ætla að standa við hana. Hún sé ekki að hlaup­ast undan merkjum. [links]„Ég er ein­ungis að við­ur­kenna fyrir sjálfri mér og öðrum hverjar tak­mark­anir mínar sem mann­eskju eru, þegar fólk sem ég þarf að geta treyst hefur lýst sig reiðu­búið að svipta mig ærunni opin­ber­lega en stendur þög­ult hjá á meðan ég er sjálf beitt ofbeldi fyrir framan augun á þeim.

Ég legg til að við, und­ir­okað fólk af stétt verka- og lág­launa­fólks, stöndum saman. Ég hvet til þess að við áttum okkur á því að heim­ur­inn sem við lifum í er skakkur, við­snú­inn, bjag­aður. Í þess­ari skekkju hallar alltaf á okkur. Að átta sig á því er fyrsta skrefið. Svo fikrum við okkur áfram saman, eitt skref í einu, stöppum stál­inu hvert í annað, vinnum fyrst lít­inn sigur, svo annan lít­inn og svo stóran. Óhjá­kvæmi­lega getum við þurft að stíga skref til baka líka – það er erfitt – en við getum barist áfram og gert þennan skakka heim réttan.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár