Meirihluti stjórnar Eflingar hvetur Guðmund til að segja af sér

Drama­tíkin í Eflingu heldur áfram. Ellefu stjórn­ar­menn í félag­inu hafa sent frá sér harð­orða yfir­lýs­ingu þar sem þeir gagn­rýna Guðmund Bald­urs­son, félaga þeirra í stjórn­inni, harð­lega.

Allir eft­ir­stand­andi með­limir stjórnar Eflingar nema þrír, alls ell­efu manns, hafa sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem þau hvetja Guðmund Bald­urs­son stjórn­ar­mann til að segja af sér stjórn­ar­mennsku. Þau hvetja hann auk þess til að „láta verða af hug­myndum sínum um stofnun nýs klofn­ings-stétt­ar­fé­lags.“

Guð­mundur sendi sjálfur frá sér yfir­lýs­ingu fyrr í dag þar sem hann sagði að Sól­veig Anna Jóns­dóttir frá­far­andi for­maður Efl­ingar hafi „haldið lykil­upp­lýs­ingum leyndum frá stjórn­inni til að hylma yfir van­líðan starfs­fólks á skrif­stofu Efl­ing­ar“ með því að neita að kynna fyrir stjórn­inni starfs­loka­samn­ing við fyrr­ver­andi skrif­stofu­stjóra Efl­ingar í upp­hafi þessa árs.

Bæði Sólveig Anna og Viðar Þor­steins­son, fram­kvæmda­stjóri Eflingar, hafa til­kynnt upp­sagnir sínar vegna máls­ins. Guð­mundur hefur einnig hvatt vara­for­mann Eflingar, Agnieszku Ewu Ziółkowska, til að segja af sér.

Hröð atburðarás síðustu daga

Það logar allt í ill­deilum innan Eflingar, sem er næst stærsta stétt­ar­fé­lag lands­ins, sem stendur. For­saga máls­ins er sú að í júní sam­þykktu starfs­menn Efl­ingar ályktun sem hefur ekki verið birt opin­ber­lega. Í henni voru stjórn­endur stétt­ar­fé­lags­ins gagn­rýndir með ýmsum hætti fyrir fram­komu sína gagn­vart starfs­fólki. Trún­að­ar­menn starfs­manna und­ir­rit­uðu álykt­un­ina og hún var sett fram fyrir hönd starfs­manna.

[adspot]Á fimmtu­dag birti RÚV svo við­tal við Guð­mund Bald­urs­son þar sem hann greindi frá því að hann hefði ítrekað reynt að fá álykt­un­ina afhenta og að hann hefði áhyggjur af fram­komu stjórn­enda Efl­ingar gagn­vart starfs­fólki. Tal­aði hann meðal ann­ars um að starfs­fólk sem hefði hætt hjá Efl­ingu hefði talið sér „að ein­hverju leyti ógnað innan gæsalappa, af ógn­ar­stjórn.“

Vegna þessa ávarp­aði Sól­veig Anna starfs­menn á föstu­dags­morgun og bað þá um að draga til baka álykt­un­ina. Ef þeir myndu ekki gera það myndi hún segja af sér.

Þeir gerðu það ekki heldur sendu frá sér aðra ályktun þar sem kom fram að þeir töldu ósann­gjarnt að stjórn­endur veltu ábyrgð á inn­an­hús­málum yfir á sig.

Í kjöl­farið sagði Sólveig Anna af sér.

Mótmæla orðum Guðmundar

Í yfir­lýs­ingu stjórn­ar­mann­anna ell­efu sem send var út í kvöld segir að trún­að­ar­menn starfs­fólks á skrif­stofu Eflingar hafi aldrei lagt fram við stjórn félags­ins ályktun sína frá því í júní á þessu ári. „Við teljum eðli­legt að fjalla um mál séu þau lögð fyrir stjórn, en ekki að ein­stakir stjórn­ar­menn krefj­ist umfjöll­unar um mál sem varða starfs­menn og fram­lagn­ingar gagna þeim tengd án þess að aðilar máls hafi óskað þess. Slík vinnu­brögð eru að okkar mati ekki eðli­leg heldur ofríki. Guð­mundur Bald­urs­son er frjáls að sínum skoð­unum á því hvað hann vill að stjórn félags­ins hlut­ist til um, en hann er þó bund­inn af lýð­ræð­is­legu meiri­hluta­sam­þykki varð­andi ákvarð­anir stjórnar rétt eins og aðrir stjórn­ar­menn. Að sama skapi er lítið við því að gera þótt kröfur Guð­mundar til ASÍ og SGS um íhlutun þess­ara sam­banda í störf stjórnar Eflingar hafi reynst til­hæfu­lausar. Það stoðar lítt fyrir hann að barma sér yfir því í fjöl­miðlum.“

Stjórn­ar­meiri­hlut­inn mót­mælir því sem þau kalla niðr­andi orðum Guð­mundar um kynn­ingu mannauðs­stjóra á stjórn­ar­fundi í sumar. „Sú kynn­ing var vönduð og til marks um gott starf í þeim málum á skrif­stof­unni. Við höfum á síð­ustu árum oft fengið kynn­ingar frá stjórn­endum vinnu­stað­ar­ins þar sem óskað hefur verið eftir stuðn­ingi og sam­þykki okkar fyrir ýmsum umbótum í starfs­manna­málum. Dæmi um slíkt eru stytt­ing vinnu­vik­unnar í tvígang, ráðn­ing mannauðs­stjóra, smíði starfs­manna­stefnu og starfs­manna­hand­bókar, mán­að­ar­legar starfs­á­nægjukann­anir, kosn­ing trún­að­ar­manna sem var óheimil í tíð fyrri for­manns, mán­að­ar­legir starfs­manna­fundir og reglu­leg starfs­manna­sam­töl. Við höfum ávallt stutt og sam­þykkt slíkar umbætur enda hefur okkur sýnst vel að þeim staðið og viljum allt hið besta fyrir starfs­fólk Eflingar.“

Ásaka Guðmund um klofningstilburði

Þau segj­ast líka mót­mæla fram­göngu Guð­mundar á opin­berum vett­vangi þar sem hann vísi meðal ann­ars í umræður á stjórn­ar­fundum, sem sé trún­að­ar­brestur við stjórn félags­ins. [links]„Guð­mundar hefur áður ófrægt okkur, félaga sína í stjórn félags­ins, á opin­berum vett­vangi með ásök­unum um við berum hag félags­manna ekki fyrir brjósti. Guð­mundur hefur gengið svo langt að kenna stjórn Eflingar um það að hóp­bif­reiða­stjórar hafi mætt illa á fund sem starfs­fólk félags­ins varði mik­illi orku í að halda að ósk hans. Guð­mundur mætti sjálfur ekki á þann fund, ekki frekar en aðra fundi með félags­mönnum Eflingar þar sem hann hefur iðu­lega verið fjar­ver­andi.“

Að lokum segja þau að Guð­mundur hafi lýst yfir þeirri skoðun sinni að hags­munum félags­manna Eflingar sé betur borgið með því að kljúfa sig út úr félag­inu. „Hann hefur lýst yfir ásetn­ingi um að beita sér fyrir stofnun klofn­ings­fé­lags í þessum til­gangi. Hann hefur haft þessi ummæli í frammi í opnum hópum á sam­fé­lags­miðlum þar sem full­trúar atvinnu­rek­enda fjölda Efl­ing­ar­fé­laga eru með­limir. Að okkar mati þarf ekki að fjöl­yrða frekar um holl­ustu Guð­mundar við Eflingu og félags­menn Eflingar. Við hvetjum Guðmund til að segja sig úr stjórn Eflingar og láta verða af hug­myndum sínum um stofnun nýs klofn­ings-stétt­ar­fé­lags.“

Undir yfirlýsinguna skrifa:

Agnieszka Ewa Ziółkowska

Ólöf Helga Adolfs­dóttir

Eva Ágústs­dóttir

Daníel Örn Arn­ars­son

Felix Kofi Adjahoe

Innocentia Fiati

Kolbrún Valv­es­dóttir

Michael Bragi Whalley

Stefán E. Sig­urðs­son

Zsófía Sid­lovits

Jóna Sveins­dóttir

Þeir stjórnarmenn sem skrifa ekki undir hana, auk Guðmundar, eru:

Úlfar Snæbjörn Magn­ús­son

Saviour De-Graft Ametefio

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár