Formaður Eflingar hafi reynt að hylma yfir vanlíðan starfsmanna

Stjórn­ar­maður í Eflingu segir í yfir­lýs­ingu að Sólveig Anna Jóns­dóttir hafi haldið lykil­upp­lýs­ingum leyndum frá stjórn stétt­ar­fé­lags­ins og að til­raun hafi verið gerð til að beita hann per­sónu­legri kúgun er hann gekk eftir því að fá þessar upp­lýs­ingar.

Guðmundur Baldursson stjórnarmaður í Eflingu.
Guð­mundur Bald­urs­son stjórn­ar­maður í Eflingu. Mynd: Skjáskot/RÚV

Guð­mundur Bald­urs­son, stjórn­ar­maður í Eflingu, segir að Sólveig Anna Jóns­dóttir frá­far­andi for­maður Eflingar hafi „haldið lykil­upp­lýs­ingum leyndum frá stjórn­inni til að hylma yfir van­líðan starfs­fólks á skrif­stofu Eflingar“ með því að neita að kynna fyrir stjórn­inni starfs­loka­samn­ing við fyrr­ver­andi skrif­stofu­stjóra Eflingar í upp­hafi þessa árs.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá Guðmundi, sem send var á fjöl­miðla eftir hádegi í dag, en veru­legar vær­ingar eru nú innan stétt­ar­fé­lags­ins. Bæði for­mað­ur­inn og fram­kvæmda­stjór­inn Viðar Þor­steins­son hafa boðað að þau séu á útleið.

Í yfir­lýs­ingu Guð­mundar, sem bauð sig fram ásamt Sólveigu Önnu á B-lista til stjórnar Eflingar árið 2018, segir að stjórn Eflingar hafi verið neitað um kynn­ingu á ályktun trún­að­ar­manna Eflingar um stjórn­un­ar­vanda frá því í júní, en frá hinu sama sagði hann í við­tali við RÚV síð­asta föstu­dag.[links]

„Þegar ég gekk á eftir álykt­un­inni var mér ekki aðeins ítrekað neitað um hana heldur gerð til­raun til að beita mig per­sónu­legri kúgun á grund­velli þess að for­mað­ur­inn hefði aðstoðað mína nán­ustu,“ segir Guð­mundur og bætir við að hann hafi lagt til að utan­að­kom­andi ráð­gjafi yrði feng­inn til að fara í gegnum starf­semi félags­ins og leita lausna.

Því segir hann að hafi verið alfarið hafnað og að þess í stað hafi verið boðið upp á „hvít­þvott mannauðs­stjóra“ á stjórn­ar­fundi um miðjan júlí. Guð­mundur segir að eng­inn í stjórn­inni hafi veitt sér stuðn­ing í mál­inu, en fram hefur komið í fjöl­miðlum í dag að meiri­hluti stjórnar styðji Sólveigu Önnu.

[adspot]

Guð­mundur segir að enga hjálp í mál­inu hafi heldur verið að fá „hjá SGS og ASÍ þrátt fyrir að fyrir lægi að stjórnin ætti óskor­aðan rétt á öllum lykil­upp­lýs­ingum um starf­semi Eflingar.“

Í yfir­lýs­ingu Guð­mundar segir að Sólveig Anna hafi hvorki brugð­ist við áskorun starfs­manna Eflingar um betrumbætur, né geng­ist við ábyrgð sinni sem for­maður. Þvert á móti hafi hún skellt skuld­inni á hann sjálfan og starfs­fólk Eflingar.

„Botninum náði hún svo þegar hún krafð­ist þess að starfs­menn veldu á milli þeirra sjálfra og hennar á starfs­manna­fundi síð­ast­lið­inn föstu­dags­morgun. Í kjöl­farið sló hún í síð­asta sinn á sátt­ar­hönd starfs­mann­anna,“ segir í yfir­lýs­ingu Guð­mundar.

Eins og Kjarninn sagði frá fyrr í dag var sam­þykkt ályktun á starfs­manna­fundi Eflingar síð­asta föstu­dag, þar sem því var lýst yfir af hálfu starfs­manna að þeir teldu að ástæða hefði verið fyrir upp­haf­legri ályktun trún­að­ar­manna hjá Eflingu frá því í sumar. Sú ályktun hefur reyndar ekki litið dags­ins ljós.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár