Sólveig Anna í bréfi til starfsmanna: Tímasetning umfjöllunar engin tilviljun

Frá­far­andi for­maður Eflingar segir í bréfi sem hún sendi starfs­fólki að umfjöllun um ályktun þeirra sem inni­hélt gagn­rýni á stjórn­endur væri í aug­ljósu sam­hengi við yfir­stand­andi bar­áttu gegn rétt­inda­brotum á trún­að­ar­manni á Reykja­vík­ur­flug­velli.

Sólveig Anna Jónsdóttir sendi öllum starfsmönnum Eflingar bréf í gærkvöldi þar sem hún greindi frá afsögn sinni.
Sólveig Anna Jóns­dóttir sendi öllum starfs­mönnum Eflingar bréf í gær­kvöldi þar sem hún greindi frá afsögn sinni. Mynd: Efling

Sólveig Anna Jóns­dóttir, frá­far­andi for­maður Eflingar, segir í bréfi til starfs­manna sem hún sendi í gær­kvöldi að tíma­setn­ing fjöl­miðlaum­fjöll­unar um ályktun þeirra frá því í sumar þar sem stjórn­endur stétt­ar­fé­lags­ins voru gagn­rýndir með ýmsum hætti fyrir fram­komu sína ekki vera til­viljun. Hún sé „í aug­ljósu sam­hengi við yfir­stand­andi bar­áttu félags­ins gegn rétt­inda­brotum gegn trún­að­ar­manni okkar á Reykja­vík­ur­flug­velli og þeirri árás á rétt­indi allra okkar félags­manna sem í þeim fel­ast.“

Málið sem þar er vísað í snýst um upp­sögn Ólafar Helgu Adolfs­dóttur sem var sagt upp án aðvör­unar á meðan hún stóð í við­ræðum við fyr­ir­tækið um rétt­inda­mál vinnu­fé­laga sinna í sumar. Þann 20. októ­ber var bæði Samtökum atvinnu­lífs­ins og Icelandair stefnt fyrir Félags­dóm vegna máls­ins.

Á fimmtu­dag, 28. októ­ber, birti RÚV við­tal við Guðmund Bald­urs­son, stjórn­ar­mann í Eflingu, þar sem hann greindi frá því að hann hefði ítrekað reynt að fá álykt­un­ina afhenta og að hann hefði áhyggjur af fram­komu stjórn­enda Eflingar gagn­vart starfs­fólki. Talaði hann meðal ann­ars um að starfs­fólk sem hefði hætt hjá Eflingu hefði talið sér „að ein­hverju leyti ógnað innan gæsalappa, af ógn­ar­stjórn.“

Vegna þessa ávarp­aði Sólveig starfs­menn á föstu­dags­morgun og bað þá um að draga til baka álykt­un­ina. Ef þeir myndu ekki gera það myndi hún segja af sér.

Segir vandann vera ótilgreindan

Í nýrri ályktun starfs­manna Eflingar, sem sam­þykkt var í kjöl­farið, kom fram að þeir töldu ósann­gjarnt að stjórn­endur veltu ábyrgð á inn­an­hús­málum yfir á sig. Ástæða hafi verið fyrir ályktun sem sam­þykkt var af starfs­fólki Eflingar í júní síð­ast­liðnum þar sem Sólveig Anna var meðal ann­ars ásökuð um að halda aftöku­lista og um að fremja kjara­samn­ings­brot gegn starfs­fólki með fyr­ir­vara­lausum upp­sögnum.

[adspot]Þegar þessi við­brögð starfs­manna lágu fyrir ákvað Sólveig Anna að segja af sér sem for­maður. Hún til­kynnti það opin­ber­lega með stöðu­upp­færslu á Facebook seint í gær­kvöldi en sendi einnig bréf á alla starfs­menn Eflingar til að greina þeim frá þeirri nið­ur­stöðu.

Í bréf­inu, sem Kjarninn hefur undir höndum og ber yfir­skrift­ina „afsögn mín í kjöl­far starfs­manna­fundar“, rekur Sólveig Anna inni­hald álykt­unar starfs­manna, segir þann vanda sem þar er vísað í vera ótil­greindan og að því sé sleppt að til­taka þau við­brögð sem stjórn­endur og mannauðs­stjóri Eflingar hafi gripið til síðan í sumar.

Telur starfsfólk ljá málflutningi Guðmundar lögmæti

Hún segir í bréf­inu að ekk­ert komi fram í ályktun starfs­manna frá því á föstu­dag sem við­ur­kenni vinnu stjórn­enda á vinnu­staðnum, bæði mannauðs­stjóra og yfir­manna, við að bæta vinnu­að­stæður, starfsanda og kjör starfs­fólks síðan Sólveig anna tók við sem for­maður félags­ins. „Þó er það svo, að list­inn yfir þær úrbætur er of langur til að ég geti talið hann upp hér. Ályktun fundar ykkar felur þannig ekki í sér neina trausts­yf­ir­lýs­ingu til mín og ekki heldur neitt sem dregur úr alvar­leika þeirra ásak­ana sem trún­að­ar­menn ykkar hafa borið á mig og stjórn­endur vinnu­stað­ar­ins. Ályktun fundar ykkar er van­trausts­yf­ir­lýs­ing til mín og til allra þeirra sem bera ábyrgð á starfs­manna­málum vinnu­stað­ar­ins.“

Sólveig Anna segir ályktun starfs­fólks­ins auk þess ljá mál­flutn­ingi Guð­mundar Bald­urs­sonar lög­mæti. „Guð­mundur hefur kallað opin­ber­lega eftir klofn­ingi félags­ins en aldrei hefur hann þó haft hug­rekki til að mæla fyrir þeim hug­myndum á vett­vangi stjórnar eða trún­að­ar­ráðs Eflingar. Sama gildir um her­ferð hans fyrir afhend­ingu marg­um­ræddrar álykt­unar trún­að­ar­manna. Þá her­ferð hefur hann alfarið unnið með klögu­málum til utan­að­kom­andi aðila, fram hjá félögum sínum í stjórn og trún­að­ar­ráði félags­ins. Um holl­ustu hans við Eflingu þarf ekki að segja meira.“

Ásakar starfsmenn um að opna á neikvæða umfjöllun

Í bréf­inu segir Sólveig Anna síðan að and­stæð­ingar Eflingar og þeirrar stefnu sem hún og stjórn félags­ins hafa markað í bar­áttu verka- og lág­launa­fólks séu margir. [links]„Tíma­setn­ing fjöl­miðlaum­fjöll­un­ar­innar, sem var til­efni þess að ég leit­aði til ykkar á föstu­dags­morgun, er í aug­ljósu sam­hengi við yfir­stand­andi bar­áttu félags­ins gegn rétt­inda­brotum gegn trún­að­ar­manni okkar á Reykja­vík­ur­flug­velli og þeirri árás á rétt­indi allra okkar félags­manna sem í þeim fel­ast. Með ákvörðun ykkar sl. föstu­dag um að standa stað­fast­lega við ýktar og ósann­gjarnar lýs­ingar trún­að­ar­manna á vinnu­staðnum sem ég ber ábyrgð á hafið þið opnað á nei­kvæða umfjöllun og umræðu sem gerir mér ill­mögu­legt að leiða þá bar­áttu.“

Sólveig Anna var fyrst kjörin for­maður Eflingar í mars 2018 og svo end­ur­kjörin án mót­fram­boðs tveimur árum síðar. Viðar Þor­steins­son, sem ráð­inn var fram­kvæmda­stjóri Eflingar eftir kjör Sól­veigar Önnu, sagði við Kjarnann fyrr í dag að hann myndi fylgja henni út úr félag­inu. Upp­sagn­ar­bréf hans yrði lagt fram í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár