Vill lengja tímabil endurhæfingarlífeyris úr þremur árum í fimm

Stjórn­völd vilja gera fólki kleift að fá greiddan end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyri í lengri tíma en nú er gert ráð fyrir í lögum. Til­gang­ur­inn er að reyna að fækka þeim sem fara á örorku og fjölga þeim sem snúa aftur til vinnu.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson er félags- og vinnumarkaðsráðherra.
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son er félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Í drögum að frum­varpi sem birt hefur verið í sam­ráðs­gátt stjórn­valda af félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neyt­inu, þar sem Guð­mundur Ingi Guð­brands­son situr, er lagt til að greiðslu­tíma­bil end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyris verði tvö­faldað að lengd, og verði allt að 36 mán­uðir í stað þeirra 18 mán­aða sem það er í dag.

Í drög­unum er einnig lagt til að heim­ild til að fram­lengja greiðslu­tíma­bil end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyris verði lengd úr 18 í 24 mán­uði. „Þannig er gert ráð fyrir að tíma­bil end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyris verði allt að fimm ár í stað þriggja ára sam­kvæmt gild­andi lögum. Jafn­framt er lagt til það skil­yrði fyrir fram­leng­ingu greiðslna að end­ur­hæf­ing með aukna atvinnu­þátt­töku að mark­miði sé enn metin raun­hæf og því gert ráð fyrir auknum kröfum um fram­vindu end­ur­hæf­ingar og áherslu á end­ur­komu við­kom­andi á vinnu­markað.“

End­ur­hæf­ing­ar­líf­eyrir er ætl­aður þeim sem eru óvinnu­færir vegna sjúk­dóma eða slysa og eru í end­ur­hæf­ingu til að kom­ast aftur út á vinnu­markað. Meg­in­skil­yrði fyrir veit­ingu end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyris eru að umsækj­andi sé óvinnu­fær vegna sjúk­dóma eða slysa og taki þátt í end­ur­hæf­ingu með starfs­hæfni að mark­miði. Til þess að eiga rétt á end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyri þarf að upp­fylla ákveðin skil­yrði.

Kostar ríkissjóð rúmlega tíu milljarða á ári

End­ur­hæf­ing­ar­líf­eyrir er greiddur af Trygg­inga­stofnun rík­is­ins. Samkvæmt drög­unum sem kynnt hafa verið í sam­ráðs­gátt­inni liggur ekki fyrir mat á fjár­hags­legum áhrifum þess að lengja tíma­bil end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyris með þeim hætti sem er lagt til. Rík­is­sjóður greiddi 8,4 millj­arða króna í end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyri í fyrra og sam­kvæmt fjár­lögum árs­ins í ár er gert ráð fyrir að kostn­aður rík­is­sjóðs verði 10,5 millj­arðar króna.

[adspot]Í fjár­laga­frum­varpi árs­ins 2023 er gert ráð fyrir að kostn­aður vegna end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyris drag­ist lít­il­lega saman á næsta ári og á árinu 2024, en verði orð­inn 10,7 millj­arðar króna árið 2025. Fyrir liggur að ekki er gert ráð fyrir leng­ingu á tíma­bili end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyris í þeim tölum.

Dæmi um einstaklinga sem hafa fullnýtt rétt

Frum­varp­inu er ætlað að vera fyrsta skref í átt að nýju greiðslu- og þjón­ustu­kerfi vegna starfs­getu­missis. Mark­miðið er, líkt og áður sagði, að tryggja þeim sem hafa misst starfs­getu end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyri til lengri tíma en nú gildir.

Í drög­unum segir að dæmi séu um að ein­stak­lingar hafi full­nýtt rétt sinn til greiðslu end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyris áður en starfsend­ur­hæf­ing er talin full­reynd og að það auki líkur á því að ein­stak­lingar verði metnir til örorku þrátt fyrir að enn séu taldar líkur á að ná megi árangri með frek­ari end­ur­hæf­ingu.

Þar er einnig full­yrt að heilt yfir hafi dregið úr fjölgun þeirra sem fá sam­þykktan örorku­líf­eyri á síð­ustu árum sam­hliða því að fjölgað hefur í hópi þeirra sem fá sam­þykktan end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyri. Sam­an­lagður fjöldi örorku- og end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyr­is­þega hefur þó hald­ist í hendur við mann­fjölda á sama aldri síð­ustu ár, þannig að um til­færslu milli hópa er að ræða.

Telja að lengra tímabil auki líkur á endurkomu á vinnumarkað

Í grein­ar­gerð sem fylgir með frum­varps­drög­unum kemur fram að þeim fækki eftir árum sem fá örorku­líf­eyri eftir að töku end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyris lýkur og því megi draga þá ályktun að með því að lengja end­ur­hæf­ing­ar­tíma­bilið auk­ist líkur á end­ur­komu á vinnu­markað.

Í töfl­unni hér að ofan sést að fjöldi þeirra sem fengu end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyri greiddan hefur vaxið um rúm­lega 24 pró­sent frá árinu 2014 og til loka árs 2018, eða um 359 manns. Sú breyt­ing hefur orðið á tíma­bil­inu að hlut­fall þeirra sem nýta töku líf­eyr­is­ins í 18 mán­uði hefur farið úr 48 í 40 pró­sent en hlut­fall þeirra sem nýtir alla þá 36 mán­uði sem standa til boða hefur á móti hækkað úr fjögur í sjö pró­sent.

Fjöldi þeirra sem eru á örorku árið 2022 úr hópnum sem hóf að fá greiddan end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyri árið 2014 er 61 pró­sent. Hlutfall þeirra sem hófu töku end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyris árið 2018 sem er á örorku í ár er hins vegar mun lægra, eða 43 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

endurhæfing

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár