Stytting vinnuvikunnar hjá vaktavinnufólki kostar ríkissjóð 5,4 milljarða króna á ári

Þann 1. maí tók stytt­ing vinnu­vik­unnar hjá rík­is­starfs­mönnum í vakta­vinnu gildi. Vinnu­vika úr 40 í 36 klukku­tíma fyrir fulla vinnu. Ljóst er að ráða þarf fjölda fólks til að mæta þessu. Kostn­að­ur­inn hleypur á millj­örðum.

Kostnaðurinn er mestur vegna aukinnar fjárþarfar á Landspítalanum.
Kostn­að­ur­inn er mestur vegna auk­innar fjár­þarfar á Land­spít­al­anum. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Stytting vinnu­vik­unnar hjá rík­is­starfs­mönnum, sem felur í sér breyt­ingu á vinnu­fyr­ir­komu­lagi og launa­mynd­un­ar­kerfi í vakta­vinnu og tók gildi 1. maí síð­ast­lið­inn, kostar 5,4 millj­arða króna á árs­grund­velli. Í ár er áætlað að kostn­að­ur­inn frá 1. maí og út árið 2021 verði 3,6 millj­arðar króna.

Alls fara 900 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði til lög­reglu­emb­ætta og Fang­els­is­mála­stofn­unar á árs­grund­velli til að brúa þann við­bót­ar­kostnað sem ekki var búið að reikna með vegna stytt­ingu vinnu­vik­unnar hjá þeim stofn­unum.

Um tveir millj­arðar króna fara til Land­spít­al­ans af sömu ástæðu og 1,2 millj­arðar króna til hjúkr­un­ar­heim­ila. „Af þeim 1,3 ma.kr. sem eftir standa rennur mest til ann­arra stofn­ana heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins, en einnig er gert ráð fyrir minni hækkun hjá nokkrum öðrum ráðu­neytum, t.d. hjá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti vegna toll­varða og félags­mála­ráðu­neyti vegna Barna­vernd­ar­stofu.“

[adspot]Þetta kemur fram í meiri­hluta­á­liti fjár­laga­nefndar um frum­varp til fjár­auka­laga sem birt var í gær.

Ráða þarf miklu fleira fólk

Áætlað er að vakta­vinnu­fólk sé um þriðj­ungur rík­is­starfs­manna í um fjórð­ungi stöðu­gilda, það er um 7.300 starfs­menn í 5.500 stöðu­gildum. Helstu breyt­ing­arnar eru að vinnu­vika vakta­vinnu­fólks, í fullu starfi, stytt­ist úr 40 klukku­stundum í 36. Með stytt­ingu vinnu­tíma vakta­vinnu­fólks mynd­ast mönn­un­ar­gat sem kallar á fleiri stöðu­gildi ef halda á uppi sömu þjón­ustu og verið hefur.

[links]Mikil gagn­rýni spratt upp á síð­ustu vikum, eftir að stytt­ing vinnu­vik­unnar hjá vakta­vinnu­fólki tók gildi hjá rík­is­starfs­mönnum 1. maí síð­ast­lið­inn. Stjórn Lands­sam­bands lög­reglu­manna sendi til að mynda frá sér ályktun þar sem sam­bandið lýsti yfir miklum áhyggjum af þeirri stöðu sem lög­reglan stæði frammi fyrir eftir inn­leið­ing­una. Að mati sam­bands­ins væru of fáir lög­reglu­menn við störf og hlut­fall lærðra lög­reglu­manna orðið „hættu­lega“ lágt. Ráða þyrfti fleira fólk.

Sama var uppi á ten­ingnum hjá Land­spít­al­anum, þar var áætlað að ráð þyrfti um 200 manns til við­bótar við þá sem þegar störf­uðu þar til að mæta þeim breyt­ingum sem fylgdu stytt­ingu vinnu­vik­unnar.

Síðan hefur verið brugð­ist við með vil­yrðum um meira fjár­magn til þeirra stofn­ana sem á þurfa að halda. Í áliti meiri­hluta fjár­laga­nefndar segir að verk­efnið sé „að fullu fjár­magnað með því að nýta almenna vara­sjóð­inn í fjár­lögum árs­ins þar sem umfang hans nemur í heild rúmum 20 ma.kr. Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið mun milli­færa fjár­veit­ingar til ein­stakra stofn­ana vegna þessa verk­efnis.“

Meiri­hlut­ann mynda þing­menn stjórn­ar­flokk­anna þriggja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár