Segist hafa fengið uppsagnarbréf frá Eflingu kl. 2 um nótt

Starfs­maður Eflingar sem verið hefur í veik­inda­leyfi und­an­farna mán­uði greinir frá því að hún hafi fengið upp­sagn­ar­bréf kl. 2 í nótt, frá lög­manni úti í bæ. Hún segir van­virð­ing­una við starfs­fólk félags­ins for­dæma­lausa.

Starfsmaður Eflingar sem er í veikindaleyfi segir að hún hafi fengið uppsagnarbréf sent frá lögmanni kl. 2 í nótt.
Starfs­maður Eflingar sem er í veik­inda­leyfi segir að hún hafi fengið upp­sagn­ar­bréf sent frá lög­manni kl. 2 í nótt. Mynd: Bára Huld Beck

Vala Árna­dóttir, starfs­maður Eflingar, segir frá því á Facebook-síðu sinni í morgun að hún hafi fengið upp­sagn­ar­bréf frá lög­manni úti í bæ um kl. 2 í nótt. Hún er í veik­inda­leyfi í kjöl­far slyss og var búin að tjá Eflingu að hún myndi ekki snúa aftur til starfa hjá stétt­ar­fé­lag­inu, en mán­uði eftir að hún lenti í slys­inu síð­asta sumar var henni til­kynnt að félags- og þró­un­ar­svið Eflingar, sem hún starf­aði hjá sem teym­is­stjóri félaga­mála, hefði verið lagt niður „vegna skipu­lags­breyt­inga” og afþakk­aði Vala starf á nýju sviði.

Vala seg­ist vegna sinna veik­inda og vegna fjöl­skyldustengsla við Sólveigu Önnu ekk­ert hafa viljað tjá sig um mál­efni Eflingar út á við til þessa, en segir að nú sé nóg komið.

Hún segir að stuttu eftir að sviðið sem hún starf­aði hjá hafi verið lagt niður hafi „skrif­stofa félaga­mála“ verið stofnuð og Viðar Þor­steins­son settur þar yfir, en skrif­stofa hans og starfs­fólk hafi þjónað sama til­gangi og félags- og þró­un­ar­svið gerði áður, þannig að skipu­lags­breyt­ingin hafi verið nán­ast engin og ekki til neins fallin nema að að „losa sig við sumt starfs­fólk“ og „setja Viðar yfir ein­ingu sem hann myndi geta sætt sig við eftir að fjölda kvart­anna í hans garð gerðu honum erfitt um vik að starfa áfram sem fram­kvæmda­stjóri.“

Vala seg­ist hafa stutt þær konur sem „kvört­uðu undan fram­komu og ein­elt­istil­burðum Viðars“ og segir að hún hafi beðið Sólveigu Önnu um að standa með þeim líka, fyrir ári síðan. Við­brögðin hafi hins vegar verið þau að segja upp sviðs­stjóra, sem Sólveig og Viðar hafi talið að ætti upp­tökin að kvört­un­unum í garð Viðars.

„Ég reyndi að biðla til hennar að standa með þeim konum sem alltaf hefðu staðið með henni, konur sem komu til starfa hjá Eflingu til að styðja við hennar bar­áttu og ég trúði því ekki að hún myndi bregð­ast þeim, en allt kom fyrir ekki,“ skrifar Vala og bætir við að ekki hafi verið um ein­hverja „starfs­menn fyrri stjórnar” að ræða eins og Sólveig Anna og Viðar hafi viljað halda fram. Þau hafi ráðið þessar konur sjálf.

Auk þess heldur hafi ekki verið um „plott fyrrum trún­að­ar­manna Eflingar að ræða né „leifar af gam­alli vinnu­staða­menn­ingu Eflingar“.

„Þetta er allt ein­fald­lega lygi og hefur það margoft komið í ljós bæði í við­tölum við starfs­menn og í úttekt sál­fræði­stofu á vinnu­staða­menn­ing­unni,“ skrifar Vala, sem segir að eng­inn græði á „þeim farsa sem hófst í lok októ­ber í fyrra, ekki starfs­menn og ekki félags­menn Eflingar.“

„Ef ein­hver vinnu­staður annar hefði til­kynnt um hóp­upp­sagnir til að svo end­ur­ráða starfs­fólk á lægri kjörum þá værum við hjá Eflingu fyrst til að verja þau og þeirra rétt­indi, ef ein­hver annar vinnu­staður hefði ráð­ist á trún­að­ar­menn sína og starfs­menn í fjöl­miðlum þá værum fyrst til að for­dæma það og taka upp hansk­ann fyrir það starfs­fólk,“ skrifar Vala, sem seg­ist „djúpt von­svikin með stjórn og trún­að­ar­ráð Eflingar og öll þau sem í blindni trúa eft­irá­skýr­ingum sem stand­ast ekki skoðun.“

„Ég var stolt af því að starfa fyrir Eflingu og trúði því að okkar bar­átta væri rétt­lát og árang­urs­rík fyrir félags­menn. Van­virð­ing við okkur starfs­fólkið er for­dæma­laus,“ skrifar Vala.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár