Ragnar Þór ætlar að bjóða sig fram til embættis forseta Alþýðusambands Íslands

Ragnar Þór Ing­ólfs­son for­maður VR til­kynnti starfs­fólki félags­ins á fundi í morgun að hann ætli að bjóða sig fram til for­seta Alþýðu­sam­bands Íslands á þingi sam­bands­ins, sem fram fer dag­ana 10.-12. októ­ber.

Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son for­maður VR. Mynd: Bára Huld Beck

Ragnar Þór Ing­ólfs­son for­maður VR ætlar að bjóða sig fram til for­seta Alþýðu­sam­bands Íslands á þingi sam­bands­ins sem fram fer í lok októ­ber. Ragnar Þór kynnti starfs­fólki VR þessa ákvörðun sína á fundi í morgun og var áður búinn að kynna stjórn VR um fram­boð sitt í gær­kvöldi. Hann stað­festir þetta svo sjálfur í sam­tali við Kjarnann.

Ragnar Þór sagði frá því í upp­hafi vik­unnar að hann ætl­aði að til­kynna hvort hann færi fram eða ekki í dag. Síðustu daga hefur hann átt fundi með for­ystu­fólki úr aðild­ar­fé­lögum innan Alþýðu­sam­bands­ins, til þess að kanna hvort stuðn­ingur við þær hug­myndir sem hann hefur um fram­tíð sam­bands­ins og áherslu­breyt­ingar í störfum þess næðu út fyrir þann hóp stétt­ar­fé­laga sem staðið hefðu „dálítið þétt saman“ og átti hann þar við stétt­ar­fé­lög í Grinda­vík, Akranesi og svo Eflingu stétt­ar­fé­lag.[links]

„Ef að vilj­inn til breyt­inga nær til dæmis inn í iðn­að­ar­manna­sam­fé­lagið og raun­veru­legur vilji er til að rífa þetta upp og gera þetta að því afli sem þetta apparat á að vera, þá er það mjög spenn­andi verk­efni að taka að sér að leiða,“ sagði Ragnar Þór í sam­tali við Kjarn­ann á þriðju­dag.

Mun leiða gerð kjarasamninga í haust

Ragnar Þór, sem hefur verið for­maður VR frá 2017, stað­festir í sam­tali við Kjarnann að hann ætli að halda áfram að leiða stjórn VR þó að hann næði kjöri sem for­seti Alþýðu­sam­bands­ins og segir að hann muni sinna þeim verk­efnum sem lúta að kjara­samn­ingum sem for­maður stjórnar og for­maður samn­inga­nefndar félags­ins.

Hann mun hins vegar eft­ir­láta öðrum að taka við sem starf­andi for­maður VR ef svo fer að hann nái kjöri og ekki sækj­ast eftir end­ur­kjöri sem for­maður félags­ins, en kjör­tíma­bil Ragnars Þórs sem for­manns VR rennur sitt skeið snemma á næsta ári.

Ragnar Þór er 49 ára gam­all. Áður en hann varð for­maður VR hafði hann setið í stjórn VR frá 2009 til 2017. Hann kom að stofnun Hags­muna­sam­taka heim­il­ana árið 2009 og sat þar í stjórn, auk þess sem hann sat í stjórn Borg­ara­hreyf­ing­ar­innar þegar hún bauð fram til Alþingis og fór svo sjálfur í fram­boð til Alþingis fyrir hönd stjórn­mála­aflsins Dögunar árið 2016.

Sá eini sem hefur tilkynnt um forsetaframboð

Fyrir dag­inn í dag hafði eng­inn annar til­kynnt um fram­boð til for­seta ASÍ, en und­an­farnar viku hafa nokkrir verka­lýðs­leið­togar úti­lokað að þeir gefi kost á sér. Þeirra á meðal er starf­andi for­seti ASÍ, Krist­ján Þórður Snæ­bjarn­ar­son for­maður Raf­iðn­að­ar­sam­bands­ins, en hann gaf það út í upp­hafi síð­ustu viku að hann myndi ekki sækj­ast eftir emb­ætt­inu.

[adspot]

Áður höfðu þau Sól­veig Anna Jóns­dóttir for­maður Efl­ingar og Vil­hjálmur Birg­is­son for­maður Starfs­greina­sam­bands­ins og VLFA úti­lokað fram­boð til for­seta ASÍ í sam­tölum við fjöl­miðla.

Nýr for­seti verður kjör­inn á þingi ASÍ sem fram fer dag­ana 10.-12. októ­ber á Hótel Nordica í Reykja­vík.

Drífa hætti vegna óbærilegra átaka

Drífa Snædal sagði af sér emb­ætti for­seta 10. ágúst og sagði hún sam­skipti við ýmsa kjörna full­trúa innan sam­bands­ins og sú blokka­myndun sem þar hefði átt sér stað gera sér ókleift að starfa áfram sem for­seti.

Í yfir­lýs­ingu sem hún birti er hún til­kynnti um brott­hvarf sitt gagn­rýndi hún for­ystu bæði Eflingar og VR og sagð­ist hafa þurft að „bregð­ast við linnu­lausri, en óljósri gagn­rýni for­manns VR“ á sín störf.

Fréttin hefur verið upp­færð eftir að Kjarninn náði tali af Ragnari.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár