Ragnar Þór ætlar í framboð til forseta ASÍ ef hann fær breiðan stuðning aðildarfélaga

Formaður VR ætlar að til­kynna á fimmtu­dag hvort hann bjóði sig fram til for­seta ASÍ eða ekki. Hann seg­ist vilja breiðan stuðn­ing aðild­ar­fé­laga við það sem hann segir nauð­syn­legar breyt­ingar á Alþýðu­sam­band­inu.

Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR
Ragnar Þór Ing­ólfs­son for­maður VR Mynd: Bára Huld Beck

Ragnar Þór Ing­ólfs­son for­maður VR er þessa dag­ana að ræða við for­ystu­fólk í aðild­ar­fé­lögum Alþýðu­sam­bands­ins og kanna hvort hann hafi stuðn­ing þeirra til þess að leiða sam­bandið og ákveðnar breyt­ingar innan þess. Hann segir að ákvörðun sín um fram­boð til for­seta velti á við­brögð­unum, og hyggst segja af eða á um fram­boð á fimmtu­dag­inn.

„Ef það er breiður vilji innan aðild­ar­fé­lag­anna sem nær þá út fyrir þau félög sem hafa verið dálítið þétt saman; Grinda­vík, Akranes, Eflingu, VR, LÍV og fleiri, og ef að vilj­inn til breyt­inga nær til dæmis inn í iðn­að­ar­manna­sam­fé­lagið og raun­veru­legur vilji er til að rífa þetta upp og gera þetta að því afli sem þetta apparat á að vera, þá er það mjög spenn­andi verk­efni að taka að sér að leiða,“ segir Ragnar Þór í sam­tali við Kjarnann.

Hann ræddi þessi mál einnig í við­tali við Gunnar Smára Egilsson í umræðu­þætt­inum Rauða borð­inu, sem birt­ist í gær.

„Ef fólk er virki­lega á því að efla þetta, laga það sem þarf að laga, efla kjarna­starf­semi Alþýðu­sam­bands­ins, þá er þetta verk­efni sem ég hef mik­inn áhuga á, en ef ekki nær það bara ekk­ert lengra,“ segir Ragnar Þór, sem seg­ist ekki ætla að dvelja lengi við það að taka ákvörðun sína.

Hann segir að ef svo fari að hann fái ekki þann breiða stuðn­ing sem hann óskar sér innan aðild­ar­sam­tak­anna hafi hann „kannski tak­mark­aðan áhuga á að eyða meiri kröftum í Alþýðu­sam­bandið“ og kjósi þá heldur að halda áfram því starfi sem unnið er á vett­vangi VR og Lands­sam­taka versl­un­ar­manna.

[adspot]

Í sam­tali sínu við Gunnar Smára í gær sagði Ragnar Þór að það væri raun­hæfur mögu­leiki að VR myndi segja skilið við Alþýðu­sam­bandið og sagði hann að ef til vill væri þeim 175 millj­ónum króna sem renna frá versl­un­ar­fólki í sjóði ASÍ á ári betur varið í að styrkja starf­semi VR.

Ragnar Þór segir við Kjarnann að hann telji Alþýðu­sam­bandið hafa verið með „óskýrt umboð“, hinn almenni félags­maður hafi verið ósáttur með Alþýðu­sam­bandið og stefnu þess.

„Ef þú hefur ekki fólkið með þér hefur þú ekki sterkt umboð og samn­ings­staðan er eftir því,“ segir Ragnar Þór og bætir því við að sá mikli klofn­ingur sem verið hafi innan aðild­ar­fé­laga ASÍ hafi tak­markað umboð og styrk ASÍ.

„Það þarf eitt­hvað veru­lega mikið að breyt­ast. Þetta snýst ekki um neina titla eða stóla, þetta snýst um hvort Alþýðu­sam­bandið geti verið þetta afl sem það þarf að vera, eða hvort maður á eyða orku sinni í eitt­hvað annað,“ segir Ragnar Þór.

Ekkert framboð komið fram

Enginn hefur enn til­kynnt um fram­boð til for­seta ASÍ en nokkrir verka­lýðs­leið­togar hafa þegar úti­lokað það. Þeirra á meðal er starf­andi for­seti ASÍ, Kristján Þórður Snæ­bjarn­ar­son for­maður Raf­iðn­að­ar­sam­bands­ins, en hann gaf það út í upp­hafi síð­ustu viku að hann myndi ekki sækj­ast eftir emb­ætt­inu.

Áður höfðu þau Sólveig Anna Jóns­dóttir for­maður Eflingar og Vil­hjálmur Birg­is­son for­maður Starfs­greina­sam­bands­ins og VLFA úti­lokað fram­boð til for­seta ASÍ, en eft­ir­maður Drífu Snædal verður kjör­inn þingi sam­bands­ins sem fram fer í októ­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár