Trúnaðarmenn starfsfólks Eflingar segja hópuppsögnina ranga og ónauðsynlega

Trún­að­ar­menn starfs­fólks hjá Eflingu, sem tóku þátt í sam­ráðs­ferli með lög­manni stjórnar Eflingar vegna hóp­upp­sagnar stétt­ar­fé­lags­ins, segj­ast ekki geta sagt að um sam­ráð hafi verið að ræða. Enginn vilji hafi verið til breyt­inga né mild­unar á hóp­upp­sögn.

Trún­að­ar­menn Eflingar og VR, sem hafa und­an­farna daga átt fundi með lög­manni stjórnar Eflingar vegna fyr­ir­hug­aðrar hóp­upp­sagnar starfs­manna stétt­ar­fé­lags­ins, segj­ast telja að ekk­ert af yfir­lýstum mark­miðum stjórnar Eflingar krefj­ist þess að öllu starfs­fólki stétt­ar­fé­lags­ins verði sagt upp.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá trún­að­ar­mönn­unum, þeim Ölmu Pálma­dóttur og Gabríel Benjamin, sem hafa sent til fjöl­miðla form­lega bókun þeirra og lög­manns sem tók þátt í sam­ráðs­ferl­inu fyrir hönd stjórnar Eflingar.

Þau Alma og Gabríel segj­ast ekki lengur telja sig bundin trún­aði um það sam­ráðs­ferli sem þau tóku þátt í sem trún­að­ar­menn starfs­manna hjá Eflingu, en til­gangur þess sam­kvæmt lögum er að „forð­ast hóp­upp­sagnir eða fækka starfs­mönnum sem fyrir þeim verða og draga úr afleið­ingum með hjálp félags­legra aðgerða“.

Í yfir­lýs­ingu þeirra segir að þau sem trún­að­ar­menn hafi farið á þessa fundi með „opnum hug“ og að þau hafi reynt „eftir fremsta megni að leita leiða til þess að kom­ast hjá þessum hóp­upp­sögnum eða milda þær.“

[adspot]

„Við gáfum til kynna að við tækjum allar til­lögur alvar­lega og reyndum að vera sam­starfs­fús til lausna. Ekkert varð úr því. Við getum ekki sagt að um sam­ráð hafi verið um að ræða í skiln­ingi laga um hóp­upp­sagnir, engin vilji var til breyt­inga eða mild­unar á hóp­upp­sögn heldur ein­hliða ákvörðun sem er röng, óskyn­sam­leg og með öllu ónauð­syn­leg. Gefnar voru upp ástæður sem fólust í breyt­ingum á ráðn­ing­ar­kjörum og til að upp­fylla skil­yrði varð­andi jafn­launa­vottun. Þessar ástæður eru ekki byggðar á rökum og halda engu vatni,“ segir í yfir­lýs­ingu þeirra Ölmu og Gabríels.

Lýstu andstöðu við uppsagnirnar

Þau segja að full­yrð­ingar Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur for­manns Eflingar, um að sam­komu­lag hafi náðst um fram­kvæmd hóp­upp­sagnar, séu rangar með öllu, en í bók­un­inni sem þau láta fylgja með segir að trún­að­ar­menn­irnir lýsi yfir and­stöðu við hóp­upp­sögn­ina og að þau telji ekk­ert því til fyr­ir­stöðu að ná yfir­lýstum mark­miðum stjórnar með öðrum hætti.[links]

„Þegar ljóst var að ekki væri hægt að koma í veg fyrir eða milda þessar aðgerðir hófst sam­tal um hvernig mætti standa að þeim og úr því varð bókun. Í þeirri bókun ítrek­uðum við and­mæli okkar við hóp­upp­sögn­ina en komumst að sam­komu­lagi um fjögur atriði varð­andi upp­sagn­irnar,“ segja þau Alma og Gabríels og bæta því við að þau hefðu, eftir á að hyggja, viljað að hverjum og einum starfs­manni yrði afhent upp­sögnin af hendi for­manns.

Sólveig Anna greindi fyrr í dag frá þessum fjórum atriðum sem sam­komu­lag náð­ist um, en þau fela í sér að starfs­menn sem þess óska verði leystir undan vinnu­skyldu síð­asta mánuð upp­sagn­ar­frests, öllum starfs­mönnum verði tryggður að lág­marki 3 mán­aða upp­sagn­ar­frest­ur, einnig þeim sem ekki hafa áunnið sér hann, að Efl­ing muni falla frá rétt­indum og skyldum í til­vikum þar sem starfs­maður óskar að ganga í annað starf áður en upp­sagn­ar­frestur er lið­inn og að starfs­fólki Eflingar verði veitt svig­rúm til að sækj­ast eftir öðrum störfum á upp­sagn­ar­fresti óski það þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár