Segir að staðið hafi verið rétt og faglega að ferlinu

Formaður Eflingar segir það mjög leitt að minni­hluti stjórnar félags­ins hafi ekki virt trúnað og kosið að leka upp­lýs­ingum í fjöl­miðla meðan á sam­ráði við trún­að­ar­menn starfs­fólks skrif­stofu Eflingar stóð. Því er nú lokið með sam­komu­lagi.

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jóns­dóttir for­maður Eflingar. Mynd: Bára Huld Beck

Sam­komu­lag hefur náðst við trún­að­ar­menn starfs­fólks skrif­stofu Eflingar um fram­kvæmd á skipu­lags­breyt­ingum á vinnu­staðnum, að því er fram kemur í yfir­lýs­ingu frá Bar­áttu­list­anum.

Sólveig Anna Jóns­dóttir for­maður Eflingar seg­ist í yfir­lýs­ing­unni lýsa yfir ánægju með að sam­ráð við trún­að­ar­menn hafi skilað sér í sam­komu­lagi.

„Staðið hefur verið rétt og fag­lega að ferl­inu. Það er hins vegar mjög leitt að minni­hluti stjórnar hafi ekki virt trúnað og kosið að leka upp­lýs­ingum í fjöl­miðla meðan á sam­ráði stóð. Van­stillt umræða hefur svo farið úr bönd­unum síð­ustu sól­ar­hringa þar sem ýmsir hafa sett sig á háan hest án þess að vita nokkuð um málið. Er það engum til sóma,“ segir hún.

Samkvæmt yfir­lýs­ing­unni fela breyt­ing­arnar í sér upp­sögn ráðn­ing­ar­samn­inga allra starfs­manna og aug­lýs­ingu allra starfa. Fram kemur að ný ráðn­ing­ar­kjör verði inn­leidd, með gagn­sæi og jafn­rétti að leið­ar­ljósi, og starfað verði undir nýju skipu­lagi með breyttum hæfn­is­kröfum og verka­skipt­ingu. Breyt­ing­arnar miði að bættri þjón­ustu við félags­menn og auk­inni skil­virkni í rekstri.

Starfsfólki veitt svigrúm til að sækjast eftir öðrum störfum á uppsagnarfresti

Greint er frá því að sam­ráð við trún­að­ar­menn hafi haf­ist að loknum stjórn­ar­fundi síð­ast­lið­inn mánu­dag þar sem til­laga um skipu­lags­breyt­ingar var sam­þykkt.

„Samkvæmt lögum ber að við­hafa trúnað um sam­ráðið, sem lauk síð­degis í gær, með sam­komu­lagi eins og fyrr segir. Var í kjöl­far þess í gær­kvöldi send til­kynn­ing til Vinnu­mála­stofn­unar og öllum starfs­mönnum Eflingar sent upp­sagn­ar­bréf.

Sam­komu­lagið við trún­að­ar­menn felur í sér að starfs­menn sem þess óska verða leystir undan vinnu­skyldu síð­asta mánuð upp­sagn­ar­frests. Öllum starfs­mönnum er tryggður að lág­marki 3 mán­aða upp­sagn­ar­frestur, einnig þeim sem ekki hafa áunnið sér hann. Efling mun falla frá rétt­indum og skyldum í til­vikum þar sem starfs­maður óskar að ganga í annað starf áður en upp­sagn­ar­frestur er lið­inn. Starfs­fólki verður að auki veitt svig­rúm til að sækj­ast eftir öðrum störfum á upp­sagn­ar­fresti óski það þess, t.d. fara í atvinnu­við­töl á vinnu­tíma,“ segir í yfir­lýs­ingu Bar­áttu­list­ans.

Segist hafa fengið uppsagnarbréf klukkan tvö í nótt

Mikil ólga hefur verið í sam­fé­lags­um­ræð­unni vegna upp­sagn­anna og hafa aðrir verka­lýðs­for­ingjar og starfs­fólk Eflingar tjáð sig opin­ber­lega um málið.

[links]Vala Árna­dótt­ir, starfs­maður Efl­ing­ar, sagði til að mynda frá því á Face­book-­síðu sinni í morgun að hún hefði fengið upp­sagn­ar­bréf frá lög­manni úti í bæ um klukkan 2 í nótt. Hún er í veik­inda­leyfi í kjöl­far slyss og var búin að tjá Efl­ingu að hún myndi ekki snúa aftur til starfa hjá stétt­ar­fé­lag­inu en mán­uði eftir að hún lenti í slys­inu síð­asta sumar var henni til­kynnt að félags- og þró­un­ar­svið Efl­ing­ar, sem hún starf­aði hjá sem teym­is­stjóri félaga­mála, hefði verið lagt niður „vegna skipu­lags­breyt­inga” og afþakk­aði Vala starf á nýju sviði.

Vala seg­ist vegna sinna veik­inda og vegna fjöl­skyldustengsla við Sól­veigu Önnu ekk­ert hafa viljað tjá sig um mál­efni Efl­ingar út á við til þessa en segir að nú sé nóg kom­ið.

Hún segir að stuttu eftir að sviðið sem hún starf­aði hjá hafi verið lagt niður hafi „skrif­stofa félaga­mála“ verið stofnuð og Viðar Þor­steins­son settur þar yfir, en skrif­stofa hans og starfs­fólk hafi þjónað sama til­gangi og félags- og þró­un­ar­svið gerði áður, þannig að skipu­lags­breyt­ingin hafi verið nán­ast engin og ekki til neins fallin nema að að „losa sig við sumt starfs­fólk“ og „setja Viðar yfir ein­ingu sem hann myndi geta sætt sig við eftir að fjölda kvart­anna í hans garð gerðu honum erfitt um vik að starfa áfram sem fram­kvæmda­stjóri.“

Vala seg­ist hafa stutt þær konur sem „kvört­uðu undan fram­komu og ein­elt­istil­burðum Við­ars“ og segir að hún hafi beðið Sól­veigu Önnu um að standa með þeim líka, fyrir ári síð­an. Við­brögðin hafi hins vegar verið þau að segja upp sviðs­stjóra, sem Sól­veig og Viðar hafi talið að ætti upp­tökin að kvört­un­unum í garð Við­ars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stéttarfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár