Sorgleg nýmæli að forseti ASÍ „ráðist á verka- og láglaunafólk“ í stjórn stéttarfélags

Bar­áttu­list­inn hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu vegna ummæla Drífu Snædal for­seta ASÍ um upp­sagnir í Eflingu.

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jóns­dóttir for­maður Eflingar. Mynd: Bára Huld Beck

Sólveig Anna Jóns­dóttir for­maður Eflingar mót­mælir „órök­studdum yfir­lýs­ingum for­seta Alþýðu­sam­bands Íslands um lýð­ræð­is­legar ákvarð­anir stjórnar Eflingar varð­andi innri skipu­lags­mál á skrif­stofum félags­ins“.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá Bar­áttu­list­anum sem send var út í dag. Drífa Snædal for­seti ASÍ gagn­rýndi í morgun ákvörðun stjórnar Eflingar að segja upp öllu starfs­fólki félags­ins.

Í yfir­lýs­ingu Bar­áttu­list­ans segir að ákvörðun stjórnar Eflingar um breyt­ingar sem nú standa yfir sé tekin á skýrum og mál­efna­legum grunni. Séu þær breyt­ingar hugs­aðar til að inn­leiða sam­ræmi, jafn­rétti og gagn­sæi í launa­kjörum starfs­fólks, inn­leiða eðli­legt bil milli hæstu og lægstu launa á skrif­stof­unum, og gera aðrar löngu tíma­bærar og nauð­syn­legar breyt­ingar á skipu­lagi.

„Forseti Alþýðu­sam­bands­ins hefur ekki haft fyrir því að leita upp­lýs­inga eða skýr­inga frá for­manni eða stjórn Eflingar, en hikar þó ekki við að for­dæma opin­ber­lega þeirra störf í þágu félags­fólks í Eflingu. Það eru sorg­leg nýmæli að for­seti Alþýðu­sam­band­ins ráð­ist á verka- og lág­launa­fólk í stjórn eins af aðild­ar­fé­lögum ASÍ með þessum hætti,“ segir í til­kynn­ing­unni.

[adspot]

Allt starfsfólk hvatt til að sækja um auglýst störf

[links]Bar­áttu­list­inn lýsti því yfir í kosn­inga­bar­áttu sinni að hann myndi gera nauð­syn­legar breyt­ingar á rekstri skrif­stofu Eflingar. „Við það lof­orð verður staðið. Í því ferli sem nú stendur yfir er lögum og vinnu­brögðum sem við eiga fylgt í einu og öllu. Óhjá­kvæmi­legt er að segja upp öllum ráðn­ing­ar­samn­ingum, en allt starfs­fólk verður hvatt til að sækja um aug­lýst störf að nýju.

Yfir stendur lög­bundið sam­ráð við full­trúa starfs­fólks sem lögum sam­kvæmt ber að fara fram í trún­aði. Formaður Eflingar harmar að aðilar hafi rofið trúnað, lekið gögnum í fjöl­miðla og tjáð sig þar með óvar­legum hætti áður en því sam­ráðs­ferli lauk,“ segir að lokum í yfir­lýs­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stéttarfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár