Formaður VR: „Allar uppsagnir eru náttúrulega bara ömurlegar“

Hóp­upp­sögn Eflingar kom for­manni VR á óvart og segi hann upp­sögn­ina ömur­lega. Hann hefur boðað stjórn VR til auka­fundar á morgun vegna máls­ins en á ekki sér­stak­lega von á að stefnu­breyt­ing verði gerð á íhlutun í deilu­málum ein­stakra félaga.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR. Mynd: Bára Huld Beck

Hóp­upp­sögn Eflingar kom Ragnari Þór Ing­ólfs­syni, for­manni VR, á óvart og segir hann hana ömur­lega. Um tíu starfs­menn á skrif­stofu Eflingar eru í VR og boðað hefur verið til auka­fundar í stjórn VR á morgun vegna máls­ins. „Allar upp­sagnir eru nátt­úru­lega bara ömur­legar,“ segir Ragnar Þór í sam­tali við RÚV.

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, lagði til á stjórn­ar­fundi félags­ins í vik­unni að öllu starfs­fólki Efl­ingar yrði sagt upp störf­um. Til­lagan var lögð fram og sam­þykkt af átta manna meiri­hluta B-lista undir for­ystu Sól­veigar Önnu. Hún segir að staðið hafi verið rétt að ferl­inu.

Hóp­upp­sögnin hefur verið gagn­rýnd harð­lega, meðal ann­ars af Drífu Snædal for­seta ASÍ. Heldur stóð á við­brögðum innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar til að byrja með en í gær sagði Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Starfs­greina­sam­bands­ins, í sam­tali við RÚV að hóp­upp­sögn Eflingar hefði komið honum á óvart. Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, tekur í sama streng í dag, einnig í sam­tali við RÚV.

Bjóst við breytingum en ekki þessu

Ragnar Þór segir að búast mætti við breyt­ingum eftir sigur Sól­veigar Önnu í for­manns­kjöri Eflingar fyrr á þessu ári sem var, að hans sögn, risa­stórt upp­gjör innan félags­ins. Hann átti samt ekki von á þessu.

VR hefur tekið á móti því félags­fólki sem starfar á skrif­stofu Eflingar, sem eru um tíu tals­ins, og tryggt að þau fái bestu mögu­legu þjón­ustu og stuðn­ing, að sögn Ragnars.

Ræða mögulega stefnubreytingu á stjórnarfundi

Ragnar hefur boðað til auka­fundar í stjórn VR á morgun, laug­ar­dag, til að ræða hóp­upp­sögn­ina. Hann segir að stjórn VR hafi hingað til ekki viljað íhlut­ast í þær deilur og átök sem hafa verið á skrif­stofu Eflingar en að hann hafi fundið fyrir þrýst­ingi, bæði á sig og félagið, að koma með yfir­lýs­ingar. Það segir hann hafa verið erfitt þar sem VR sé í við­kvæmri stöðu gagn­vart félags­mönnum sem félagið er að verja hags­muni fyrir.

Á fund­inum verður rætt hvort gerð verði stefnu­breyt­ing hvað þetta varðar, það er hvort íhlut­ast verði varð­andi mál­efni Eflingar, og verður það í höndum stjórnar VR að ákveða það. Íhlut­unin yrði þá fólgin í því að hafa skoð­anir á mál­inu, hvort sem það verður í formi yfir­lýs­ingar eða ekki, að sögn Ragnars Þórs. Hann á þó ekki sér­stak­lega von á að svo verði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stéttarfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár