Ábendingar um kynbundna áreitni af hendi formanns BHM borist bandalaginu

Ábend­ingar um kyn­bundna áreitni af hendi for­manns BHM eru hluti af 14 óform­legum ábend­ingum um for­mann BHM sem hafa borist eftir að Friðrik Jónsson tók við sem for­maður banda­lags­ins. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er m.a. um að ræða niðr­andi ummæli um konur.

14 óformlegar ábendingar varðandi formann BHM hafa borist bandalagsins. Hluti þeirra snýr að kynbundinni áreitni.
14 óform­legar ábend­ingar varð­andi for­mann BHM hafa borist banda­lags­ins. Hluti þeirra snýr að kyn­bund­inni áreitni. Mynd: Samsett

Til­kynn­ingar um kyn­bundna áreitni af hálfu for­manns Banda­lags háskóla­manna eru á meðal fjórtán óform­legra ábend­inga sem borist hafa banda­lag­inu eftir að Friðrik Jónsson tók við sem for­maður. Ábend­ing­arnar bár­ust til fyr­ir­tæk­is­ins Auðnast, sem er með þjón­ustu­samn­ing við BHM um úttekt á vinnu­staða­menn­ingu. Til­kynn­ing­arnar bár­ust á fimm mán­aða tíma­bili, frá októ­ber 2021 fram í febr­úar 2022. Samkvæmt gögnum sem Kjarninn hefur undir höndum snýr hluti til­kynn­ing­anna að niðr­andi ummælum Friðriks í garð kvenna.

Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans til BHM vegna til­kynn­ing­anna segir að ekki sé um form­legar til­kynn­ingar að ræða heldur „óform­legar ábend­ingar varð­andi for­mann BHM“. Félagið hafi strax gripið til ráð­staf­ana vegna ábend­ing­anna og voru þær til umfjöll­unar hjá for­manna­ráði BHM. Friðrik hafði ekki aðkomu að vinnslu máls­ins. Ekki var talin ástæða til frek­ari aðgerða en tekin var ákvörðun um „að kanna vinnu­staða­menn­ingu á breiðum grunni“. Sú vinna stendur yfir.

[adspot]Auðnast fram­kvæmdi vinnu­staða­út­tekt hjá BHM árið 2017 og síðan þá hafa starfs­menn haft aðgang að svo­kall­aðri for­varnar- og við­bragðs­á­ætlun, EKKO, þar sem hægt er að til­kynna ein­elti, áreitni og ofbeldi á vinnu­stað. Friðrik tók við for­mennsku í maí 2021. Í októ­ber sama ár fóru til­kynn­ingar um kyn­bundna áreitni af hendi for­manns BHM að ber­ast í gegnum EKKO. Allir sem starfa á starfsein­ingum BHM eða hjá aðild­ar­fé­lögum banda­lags­ins geta sent inn ábend­ingar, alls um 200 manns sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá BHM. Í febr­úar 2022 voru til­kynn­ing­arnar orðnar 14 tals­ins. Í kjöl­farið vann fagráð innan Auðnast minn­is­blað um til­kynn­ing­arnar.

BHM getur ekki stað­fest að um ábend­ingar vegna kyn­bund­innar áreitni sé að ræða en sam­kvæmt gögnum sem Kjarninn hefur undir höndum er meðal ann­ars um að ræða niðr­andi ummæli um konur innan BHM.

BHM „fordæmir kynbundna áreitni“ í stefnu sinni

Starfs­menn Auðnast höfðu sam­band við til­kynn­endur en „eftir samtöl við málsað­ila, var mat Auðnast að málin væru þess eðlis að ekki væri lík­legt að þau færu í form­legt ferli,“ segir í svari BHM við fyr­ir­spurn Kjarnans. Þá var óháður þriðji aðili feng­inn til að fara yfir málið og var nið­ur­staða þeirrar vinnu að ekki var talið til­efni til aðgerða. „Málinu lauk því í vor,“ segir í svari BHM.

For­manna­ráði BHM þótti þó eðli­legt við­bragð að „kanna vinnu­stað­ar­menn­ing­una á breiðum grunni.“ Óháður aðili var feng­inn til að fram­kvæma almenna úttekt á vinnu­staða­menn­ingu innan BHM og aðild­ar­fé­laga banda­lags­ins. Sú vinna stendur enn yfir.

Í stefnu BHM, sem sam­þykkt var í febr­úar á þessu ári, er sér­stak­lega tekið fram að atvinnu­rek­endur verði að hlúa vel að þeim mannauði sem býr í starfs­fólki með því að tryggja öfl­uga vinnu­vernd og öruggar starfs­að­stæður. „BHM for­dæmir ein­elti, kyn­ferð­is­lega áreitni, kyn­bundna áreitni og ofbeldi. Vinnu­staðir eiga að vera með skýra verk­ferla þegar kemur að slíkum málum. Óboðleg hegðun á ekki að líð­ast, “ segir meðal ann­ars í kafla um vinnu­vel­ferð­ar­mál í stefn­unni. .

Sem fyrr segir tók Friðrik Jónsson við sem for­maður BHM í maí 2021. Hann var kjör­inn með 69,5 pró­sent atkvæða. Í vik­unni var greint frá því að Gissur Kol­beins­son hafi verið ráð­inn sem fram­kvæmda­stjóri BHM. Í til­kynn­ingu frá banda­lag­inu þar sem greint er frá ráðn­ing­unni segir að Gissur sé „flestum hnútum kunn­ugur innan BHM“, hafi starfað hjá banda­lag­inu um ára­bil, fyrst sem full­trúi sjóða og sem fjár­mála- og rekstr­ar­stjóri frá 2015. Þá hafi hann verið skil­greindur sem stað­geng­ill fram­kvæmda­stjóra síð­ustu tvö ár.

Ekki er greint frá ástæðum starfs­loka for­vera hans í starfi, Ernu Guð­munds­dóttur, sem hefur sinnt starfi fram­kvæmda­stjóra BHM frá 2017 en hún hafði þá gegnt starfi lög­manns BHM í um ára­tug. Samið var um starfs­lok hennar í mars en ekki greint sér­stak­lega frá starfs­lokum hennar.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans hafa ýmsar breyt­ingar orðið á starfs­um­hverfi skrif­stofu BHM síðan Friðrik tók við for­mennsku. Auk til­kynn­ing­anna 14 sem bár­ust Auðnast fékk fyr­ir­tækið einnig tölvu­póst þar sem send­andi fann sig knú­inn til að greina frá hvernig við­kom­andi hafi mis­boðið hvernig for­maður banda­lags­ins talar um konur innan BHM.

Uppfært klukkan 10:41: Í upp­haf­legu útgáfu frétt­ar­innar var full­yrt að allar ábend­ing­arnar 14 snúi að kyn­bund­inni áreitni. Athuga­semd barst frá BHM þar sem til­greint er að svo sé ekki. Beðist er vel­virð­ingar á því. Gögn sem Kjarninn hefur undir höndum sýna hins vegar fram á að hluti ábend­ing­anna snýr að kyn­bund­inni áreitni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár