Friðrik Jónsson nýr formaður BHM

Nýr for­maður Banda­lags háskóla­manna hefur verið kjör­inn en hann tekur við af Þórunni Svein­bjarn­ar­dóttur.

Friðrik Jónsson
Friðrik Jónsson

Friðrik Jónsson hefur verið kjör­inn nýr for­maður Banda­lags háskóla­manna (BHM) til tveggja ára í raf­rænni kosn­ingu sem lauk á hádegi í dag. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá BHM.

Friðrik hlaut 69,5 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unni en Maríanna H. Helga­dóttir, for­maður Félags íslenskra nátt­úru­fræð­inga, sem einnig bauð sig fram í emb­ættið, hlaut 30,5 pró­sent atkvæða. Rafræn kosn­ing hófst 13. maí og lauk sem fyrr segir á hádegi í dag. Samtals voru 189 aðal­fund­ar­full­trúar á kjör­skrá og af þeim greiddu 187 atkvæði í kosn­ing­unni. Kosn­inga­þátt­taka var því um 99 pró­sent.

Tekur hann við sem for­maður BHM á aðal­fundi banda­lags­ins næst­kom­andi fimmtu­dag, að því er fram kemur í tillkynn­ing­unni. Friðrik er einnig for­maður Félags háskóla­mennt­aðra starfs­manna Stjórn­ar­ráðs­ins.

„Friðrik Jónsson er fæddur árið 1967 og hefur und­an­farin 25 ár starfað innan utan­rík­is­þjón­ustu Íslands. Meðal ann­ars hefur hann starfað á vett­vangi Alþjóða­bank­ans, Atl­ants­hafs­banda­lags­ins og Sam­ein­uðu þjóð­anna og í sendi­ráðum Íslands í Washington og Kaup­manna­höfn. Hann hefur einnig verið for­stöðu­maður GRÓ, þekk­ing­ar­mið­stöðvar þró­un­ar­sam­vinnu, og full­trúi Íslands í emb­ætt­is­manna­nefnd Norð­ur­skauts­ráðs­ins. Friðrik er með MA-gráðu í alþjóða­sam­skiptum og MBA-gráðu í alþjóða­við­skiptum. Hann var kjör­inn for­maður Félags háskóla­mennt­aðra starfs­manna Stjórn­ar­ráðs­ins á aðal­fundi félags­ins síð­ast­liðið haust,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár