Forseti ASÍ: Hægt að gera umbætur án þess að ráðast í hreinsanir

Forseti ASÍ segir engan veg­inn hægt að rétt­læta aðgerðir eins og hóp­upp­sögn­ina hjá Eflingu. Hún gefur lítið fyrir útskýr­ingar for­manns Eflingar um ástæður upp­sagn­ar­innar og segir að hægt sé að gera umbætur án þess að ráð­ast í hreins­anir.

Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Drífa Snædal, for­seti ASÍ. Mynd: Bára Huld Beck

Drífa Snædal, for­seti ASÍ, var með þeim fyrstu sem gagn­rýndi hóp­upp­sögn Eflingar sem til­kynnt var í vik­unni. Í við­tali á Sprengisandi í morgun ítrek­aði hún gagn­rýnin og segir hóp­upp­sögn­ina for­dæma­lausan gjörn­ing.

„Þetta kom mér mjög á óvart og ég held að þetta hafi komið flestum í algjör­lega opna skjöldu,“ segir Drífa. Hóp­upp­sagnir eru einmitt það sem verka­lýðs­hreyf­ingin hefur barist gegn og segir Drífa það hafa komið henni á óvart að átta stjórn­ar­menn Eflingar sam­þykktu til­lögu Sól­veigar Önnu um að segja upp öllu starfs­fólki. „Ég held að verka­lýðs­sinnað fólk hljóti að gagn­rýna þetta.“

Líkt og fram hefur komið var öllum starfs­mönnum á skrif­stofu Efl­ingar sagt upp í lið­inni viku eftir að meiri­hluti stjórnar félags­ins undir for­ystu for­manns­ins Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur hafði sam­þykkt að segja upp öllum ráðn­ing­ar­samn­ing­um. Hún sagði af sér for­mennsku síð­asta haust en bauð sig fram að nýju í odd­vita­sæti Bar­áttu­list­ans í kosn­ingum sem fram fóru í febr­ú­ar. List­inn hlaut 54 pró­sent atkvæða. Sól­veig Anna tók svo við for­mennsk­unni á aðal­fundi Efl­ingar í byrjun apr­íl.

Veit af eigin reynslu að hægt er að gera umbætur án hópuppsagnar

Í yfir­lýs­ingu frá Bar­áttu­list­anum vegna upp­sagn­anna í síð­ustu viku kom fram að ný ráðn­ing­ar­kjör yrðu inn­leidd „með gegn­sæi og jafn­rétti að leið­ar­ljósi“ og að starfað yrði undir nýju skipu­lagi með breyttum hæfni­kröfum og verka­skipt­ingu. Breyt­ing­arnar eru sagðar miða að bættri þjón­ustu við félags­menn og auk­inni skil­virkni í rekstri. Þar segir einnig að inn­leiða eðli­legt bil milli hæstu og lægstu launa á skrif­stof­un­um, og gera aðrar löngu tíma­bærar og nauð­syn­legar breyt­ingar á skipu­lagi.

[adspot]Drífa segir þær ástæður sem nefndar hafa verið fyrir hóp­upp­sögn­inni eru ekki ástæður til að fara í upp­sagnir. „Ég veit það bara af eigin reynslu,“ segir hún og vísar í breyt­ingar sem gerðar hafa verið á skrif­stofu ASÍ síð­ast­liðin ár, sem snúa meðal ann­ars að jafn­launa­vottun. „Það er hægt að gera það án þess að fara í hreins­anir.“

Í gær birt­ist aug­lýs­ing á for­síðu Atvinnu­blaðs­ins undir yfir­skrift­inni „Vilt þú taka þátt í að byggja upp metn­að­ar­fyllsta stétt­ar­fé­lag lands­ins?“ Aug­lýst er m.a. eftir fram­kvæmda­stjóra, fjár­mála­stjóra, sviðs­stjórum þjón­ustu og vinnu­rétt­inda, sér­fræð­ingum á ýmsum svið­um, t.d. í vinnu­rétti, vinnu­mark­aðs- og lífs­kjara­rann­sóknum og í kjara­samn­ingum og kjara­samn­ings­gerð. Fimmtán störf hjá Efl­ingu eru aug­lýst sam­kvæmt vef Hag­vangs sem sér um ráðn­ing­arn­ar.

Ekk­ert fyr­ir­tæki eða stofnun hér­lendis hefur leitað til Jafn­rétt­is­stofu með hug­myndir um að segja upp öllu starfs­fólki og end­ur­ráða á ný til þess að leggja grunn að því að ná jafn­launa­vottun á vinnu­staðn­um.

Jafn­rétt­is­stofa myndi ekki mæla með slíkum aðgerðum og telur þær vart rétt­læt­an­leg­ar, segir Katrín Björg Rík­arðs­dóttir fram­kvæmda­stjóri Jafn­rétt­is­stofu í skrif­legu svari til Kjarn­ans.

Starfsfólk Eflingar sett í hryllilega stöðu

Drífa segir vinnu­staða­menn­ingu á ábyrgð stjórn­enda og lík­lega hefði átt að fá utan­að­kom­andi aðstoð til að taka á þeim vanda­málum sem geisað hafa á skrif­stofu Eflingar.

„Nú er starfs­fólk sett í þá hrylli­legu aðstöðu að vera boðið að sækja um störfin sín aftur. Á hvaða kjörum það er, það liggur ekki ljóst fyrir. Þetta er svo­lítið eins og að bjóða þér að kyssa vönd­inn þegar þér hefur verið sagt upp þannig fólk er í erf­iðri stöðu.“

Drífa hvetur stjórn­endur Eflingar til að leita fag­legrar aðstoðar til að taka á þeim vanda sem ríkir innan félags­ins. „En það er ekki hægt að rétt­læta svona aðgerðir, það er bara engan veg­inn hægt.“

Drífa segir ljóst að deilum innan Eflingar sé hvergi nærri lokið. „Það eru mjög margir sárir. Það þarf að finna ein­hverja leið til að bæði reka félagið og hin póli­tísku verka­lýðs­bar­áttu. Hlutverk ASÍ í því er að veita lið­sinni.“

Ekki búin að ákveða hvort hún gefi áfram kost á sér sem forseti

Aðspurð hvort mark­mið Eflingar felist jafn­vel í yfir­töku á ASÍ sagði Drífa ekki vita það. „En það getur svo sem vel verið og þá bara fer það sinn gang.“

Þannig vísar Drífa til árs­þings ASÍ sem fram fer í októ­ber. Sjálf hefur Drífa ekki ákveðið hvort hún ætli að gefa áfram kost á sér í emb­ætti for­seta. „Það bara kemur í ljós. Alveg heið­ar­lega sagt er ég ekki búin að ákveða mig.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stéttarfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár