Auglýsa fjölda starfa hjá Eflingu

Vilt þú taka þátt í að byggja upp metn­að­ar­fyllsta stétt­ar­fé­lag lands­ins? Á þessum orðum hefst aug­lýs­ing Eflingar í Frétta­blað­inu í dag þar sem óskað er eftir fólki til starfa sem „brennur fyrir þjón­ustu og sam­vinnu við félags­fólk“.

„Efling - stétt­ar­fé­lag aug­lýsir eftir starfs­fólki sem brennur fyrir þjón­ustu og sam­vinnu við félags­fólk Eflingar í stórum áskor­unum næstu ára,“ segir í heil­síðu­aug­lýs­ingu Eflingar í atvinnu­blaði Frétta­blaðs­ins í dag.

Auglýst er m.a. eftir fram­kvæmda­stjóra, fjár­mála­stjóra, sviðs­stjórum þjón­ustu og vinnu­rétt­inda, sér­fræð­ingum á ýmsum sviðum, t.d. í vinnu­rétti, vinnu­mark­aðs- og lífs­kjara­rann­sóknum og í kjara­samn­ingum og kjara­samn­ings­gerð. Fimmtán störf hjá Eflingu eru aug­lýst sam­kvæmt vef Hagvangs sem sér um ráðn­ing­arnar.

„Vilt þú taka þátt í að byggja upp metn­að­ar­fyllsta stétt­ar­fé­lag lands­ins?“ segir enn­fremur í aug­lýs­ing­unni.

[adspot]

Öllum starfs­mönnum á skrif­stofu Eflingar var sagt upp í síð­ustu viku eftir að meiri­hluti stjórnar félags­ins undir for­ystu for­manns­ins Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur hafði sam­þykkt að segja upp öllum ráðn­ing­ar­samn­ingum. Hún sagði af sér for­mennsku síð­asta haust en bauð sig fram að nýju í odd­vita­sæti Bar­áttu­list­ans í kosn­ingum sem fram fóru í febr­úar. Listinn hlaut 54 pró­sent atkvæða. Sólveig Anna tók svo við for­mennsk­unni á aðal­fundi Eflingar í byrjun apríl.

Í yfir­lýs­ingu frá Bar­áttu­list­anum vegna upp­sagn­anna í síð­ustu viku kom fram að ný ráðn­ing­ar­kjör yrðu inn­leidd „með gegn­sæi og jafn­rétti að leið­ar­ljósi“ og að starfað yrði undir nýju skipu­lagi með breyttum hæfni­kröfum og verka­skipt­ingu. Breyt­ing­arnar eru sagðar miða að bættri þjón­ustu við félags­menn og auk­inni skil­virkni í rekstri.

„Efling stétt­ar­fé­lag óskar eftir að ráða fram­kvæmda­stjóra til að leiða dag­legan rekstur félags­ins og yfir­stand­andi umfangs­miklar breyt­ingar á skipu­lagi,“ segir í aug­lýs­ing­unni um fram­kvæmda­stjóra­stöð­una. Tekið er fram að hann sé ráð­inn af stjórn og sé yfir­maður skrif­stof­unnar í umboði for­manns og stjórnar.

Hæfn­is­kröfur eru háskóla­próf á sviði rekstrar, stjórn­unar, fjár­mála og/eða mannauðs­stjórn­unar/breyt­inga­stjórn­unar og reynsla og far­sæll árangur af rekstri og stjórnun fyr­ir­tækja, stofn­ana og/eða félaga­sam­taka. Þá er „færni og metn­aður til að leiða umfangs­miklar breyt­ingar á vinnu­stað“ einnig sett sem skil­yrði.

Viðar Þor­steins­son var fram­kvæmda­stjóri Eflingar þar til í haust er hann hætti á sama tíma og Sólveig Anna sagði af sér.

Hóp­upp­sögnin hjá Eflingu hefur verið harð­lega gagn­rýnd m.a. af for­ystu Alþýðu­sam­bands Íslands. Þá hefur Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, sagt að búast hafi mátt við breyt­ingum eftir sigur Sól­veigar Önnu en að hann hafi ekki átt von á upp­sögnum allra starfs­manna. Í dag, laug­ar­dag, fer fram auka­fundur í stjórn VR þar sem hóp­upp­sögnin verður rædd. Hópur þeirra starfs­manna sem sagt var upp eru félags­menn í VR.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár