„Félagsfólk Eflingar sem treystir á aðstoð síns stéttarfélags situr uppi með laskað félag“

Forseti ASÍ hvetur þá stjórn­ar­menn Eflingar sem sam­þykktu til­lögu um að öllu starfs­fólki félags­ins yrði sagt upp störfum að end­ur­skoða ákvörð­un­ina. Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans ætlar Sólveig Anna ekki að tjá sig fyrr en sam­ráði við trún­að­ar­menn er lokið.

Drífa Snædal forseti ASÍ
Drífa Snædal for­seti ASÍ Mynd: Bára Huld Beck

„Ég hélt ekki að ég ætti eftir að upp­lifa þann dag að stétt­ar­fé­lag segði upp öllu starfs­fólki sínu á einu bretti.“

Þetta segir Drífa Snædal for­seti ASÍ í stöðu­upp­færslu á Facebook í dag. Vísir greindi frá því í gær­kvöldi að Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, hefði lagt til á stjórn­ar­fundi félags­ins að öllu starfs­fólki Eflingar yrði sagt upp störfum. Tillagan var lögð fram og sam­þykkt af átta manna meiri­hluta B-lista undir for­ystu Sól­veigar Önnu.

Drífa segir í stöðu­upp­færsl­unni að þetta hafi ekki gerst áður hér á landi og henni til efs að til sam­bæri­legra aðgerða hafi verið gripið nokk­urs staðar á Norð­ur­lönd­unum eða í öðrum löndum með frjálsa og skipu­lagða verka­lýðs­hreyf­ingu.

„Hóp­upp­sagnir að nauð­synja­lausu eru ekk­ert annað en aðför að rétt­indum launa­fólks og ganga gegn því sem verka­lýðs­hreyf­ingin stendur fyrir: Atvinnu- og afkomu­ör­yggi.

Á vinnu­staðnum ríkir nú upp­lausn og alveg ljóst að mikil reynsla og þekk­ing hverfur úr húsi. Þekking á túlkun kjara­samn­inga, greiðslum úr sjúkra­sjóðum, fræðslu­sjóðum, úthlutun orlofs­húsa, ráð­gjöf um starfsend­ur­hæf­ingu, inn­heimtu van­gold­inna launa og allt annað sem stétt­ar­fé­lög vinna að dags dag­lega. Félags­fólk Eflingar sem treystir á aðstoð síns stétt­ar­fé­lags situr uppi með laskað félag. Við myndum for­dæma öll fyr­ir­tæki sem stæðu fyrir slíkum gjörðum,“ skrifar hún.

Drífa hvetur að lokum þá stjórn­ar­menn sem sam­þykktu til­lög­una að end­ur­skoða ákvörð­un­ina. Hún segir að ASÍ muni taka málið fyrir á sínum vett­vangi.

Mun ekki tjá sig á meðan samráð stendur yfir

Stjórn Eflingar sam­þykkti í gær til­lögu um hóp­upp­sögn vegna breyt­inga á ráðn­ing­ar­kjörum allra starfs­manna skrif­stofu félags­ins. Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans er verið að taka á ósam­ræmi og úreltum venjum í starfs­kjörum og leggja grunn að jafn­launa­vottun. Einnig verða gerðar breyt­ingar á mönnun, verka­skipt­ingu og hæfn­is­kröfum starfs­manna.

Öllum laun­uðum starfs­mönnum félags­ins verður sagt upp en þeir eru um 45 til 50 eftir því hvernig störfin eru skil­greind. Allir starfs­menn­irnir verða beðnir að vinna upp­sagn­ar­frest­inn og allir núver­andi starfs­menn verða hvattir til að sækja um. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans eru engar und­an­tekn­ingar á þessum fyr­ir­mælum þannig að starfs­manna­hóp­inn verði ekki dreg­inn í dilka. Öll störfin verða jafn­framt aug­lýst.

Fundað var með tveimur trún­að­ar­mönnum starfs­fólks í gær strax eftir að stjórn sam­þykkti til­lög­una og stendur nú yfir sam­ráð við þá, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Sólveig Anna hefur ekki tjáð sig opin­ber­lega um málið en sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans ætlar hún ekki að tjá sig um málið á meðan sam­ráðið stendur yfir en sam­kvæmt lögum á að ríkja trún­aður um slíkt sam­ráð og því þarf að ljúka áður en hægt er að fram­kvæma upp­sagnir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stéttarfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár