Í áfalli eftir að hafa verið sagt upp hjá Vinnumálastofnun

Vinnu­mála­stofnun sagði upp fimm konum í lok mars síð­ast­lið­ins og segja þær að upp­sagn­irnar hafi verið óvæntar og fram­koma stjórn­enda ofbeld­is­kennd, ógn­andi og nið­ur­lægj­andi í þeirra garð. For­stjóri stofn­un­ar­innar seg­ist ekki geta tjáð sig um ein­stök mál.

Fimm konur hafa leitað til Sameykis stétt­ar­fé­lags eftir að þeim var sagt upp hjá Vinnu­mála­stofnun í lok síð­asta mán­aðar. Þórarinn Eyfjörð for­maður Sameykis segir í sam­tali við Kjarnann að upp­sagn­irnar hafi verið þeim veru­legt áfall. Upp­sagn­irnar hafi verið óvæntar og án nokk­urs aðdrag­anda og ekki verði annað séð en fram­kvæmdin sé stjórn­un­ar­legt fúsk.

Ekki hafi verið farið eftir leið­bein­ingum til stjórn­enda um upp­sagnir rík­is­starfs­manna vegna rekstr­ar­legra ástæðna heldur „vaðið í starfs­menn­ina“ án nokk­urs aðdrag­anda með órök­studdum full­yrð­ingum um að ástæða upp­sagn­anna væri hag­ræð­ing í rekstri og upp­sagnir nauð­syn­legar til að mæta aðhalds­kröfu.

Unnur Sverr­is­dóttir for­stjóri Vinnu­mála­stofn­unar segir í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Kjarnans, þar sem hún er spurð hvort rétt hafi verið staðið að þessum upp­sögnum og öllum ferlum fylgt, að hún sem for­stjóri sé bundin þagn­ar­skyldu um allt sem lýtur að málum ein­stakra starfs­manna hjá stofn­un­inni og sé henni því ómögu­legt að svara þeim spurn­ingum sem blaða­maður setur fram í fyr­ir­spurn­inni.

Hún var einnig spurð hvort farið hefði verið eftir starfs­reglum stjórn­enda stofn­ana sem fjár­mála­ráðu­neytið gefur út og hvort upp­sagn­irnar færu á mis við jafn­rétt­islög, eins og kon­urnar halda fram.

„Almennt vil ég þó taka fram að hjá Vinnu­mála­stofnun er þess gætt í hví­vetna að farið sé að þeim lögum og reglum sem gilda þegar kemur að starfs­lokum starfs­manna stofn­un­ar­innar auk þess sem reynt er að sýna eins mikla nær­gætni og unnt er við erf­iðar aðstæður,“ segir hún jafn­framt.

Komið fram við þær „eins og sakamenn“

Flestar kvenn­anna mættu á fund Sameykis í fyrra­dag og greindu frá upp­lifun sinni af upp­sögn­unum og fram­göngu stjórn­enda við að „bók­staf­lega henda þeim út“. Þórarinn segir að ekki verði annað séð en að allur mála­til­bún­ing­ur­inn um ein­hverja óút­skýrða aðhalds­kröfu sé hreinn upp­spuni. Á sama tíma og gengið sé fram af full­komnu virð­ing­ar­leysi við umræddar konur, hafi aðrir starfs­menn verið fast­ráðnir – jafn­vel starfs­menn sem hafi verið laus­ráðnir áður.

Því sé ekk­ert sem bendir til þess að um hag­ræð­ingar- og aðhalds­kröfu sé að ræða vegna upp­sagn­anna sem er sögð ástæðan í upp­sagn­ar­bréfi. Enda sé ekki einu orði minnst á það í upp­sagn­ar­bréfi hvaðan sú krafa sé komin eða hvernig stofn­un­inni var gert að fylgja henni.

Þórarinn segir að kon­unum hafi verið gert skylt að yfir­gefa vinnu­stað­inn sam­stundis og reynt að sjá til þess að þær yfir­gæfu vinnu­stað sinn til margra ára til þess að koma í veg fyrir að þær hittu starfs­fé­laga sína. Óskum um að ljúka vinnu­deg­inum hafi verið hafnað og öllum aðgangi þeirra að tölvu­kerfum, póst­forritum og innra sam­skipta­neti sem starfi þeirra tengd­ist hafi verið lokað um leið og þeim var vísað út.

Konurnar lýsa þess­ari fram­komu þannig að komið hafi verið fram við þær eins og saka­menn. Yfirmenn hafi lokað sig af áður en til upp­sagn­anna kom, við­mót þeirra hafi verið kulda­legt og þeim sýnd van­virð­ing. Tvær kvenn­anna segja jafn­framt frá því að þær hafi verið í nokk­urra daga veik­indum vegna flensu­far­ald­urs­ins, þegar tveir yfir­menn þeirra hafi komið saman á sitt­hvort heim­ili þeirra til að afhenda þeim upp­sagn­ar­bréfið þegar þær voru heima vegna veik­inda.

Upplifði einelti frá yfirmanni um langt skeið

Þórarinn segir að kon­urnar hafi lýst afar sér­stakri fram­komu yfir­manna sem í ein­hverjum til­fellum verði ekki betur séð en að ein­kennst hafi af hroka og geð­þótta­á­kvörð­unum. Þá segir ein kvenn­anna að hún hafi upp­lifað ein­elti frá yfir­manni sínum um langt skeið og orðið kvíðin fyrir því að mæta honum. Nokkrar kvenn­anna íhugi að kæra stjórn­and­ann vegna ein­eltis á vinnu­stað.

Fram kemur hjá Þórarni að kon­unum sem sagt var upp störfum hafi langan starfs­aldur hjá Vinnu­mála­stofnun. Hann segir að stofn­unin hafi ekki virt leið­bein­ingar fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins um hvernig standa beri að upp­sögnum rík­is­starfs­manna en þar segir meðal ann­ars að slík ákvörðun verði að byggj­ast á lögum og mál­efna­legum sjón­ar­miðum.

Framkvæmd uppsagna hefur mikil áhrif á viðhorf starfsmanna og almennings til stofnunar

Í leið­bein­ingum fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins segir að upp­sagnir starfs­manna séu alltaf erf­iðar, sér­stak­lega fyrir starfs­menn en einnig fyrir stjórn­endur. Þegar nauð­syn­legt er að segja upp starfs­mönnum reyni fyrir alvöru á hæfni stjórn­enda og starfs­manna­stefnu stofn­unar. „Fram­kvæmd upp­sagna hefur mikil áhrif á við­horf starfs­manna og almenn­ings til stofn­unar, einnig löngu eftir að upp­sagnir eru um garð gengnar. Því er mik­il­vægt að fram­kvæmdin sé vand­lega und­ir­búin, hún sé fag­leg, að farið sér eftir lögum og reglum og að virð­ing sé borin fyrir hlut­að­eig­andi aðilum.“

Þórarinn segir að Vinnu­mála­stofnun hafi gert fast­ráðn­ing­ar­samn­ing við þrjá laus­ráðna starfs­menn stofn­un­ar­innar áður en til upp­sagna starfs­mann­anna tveggja kom. Þórarinn telur í því ljósi að upp­sagn­irnar séu því ekki vegna kröfu fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins um hag­ræð­ingu hjá stofn­un­inni.

Í upp­sagn­ar­bréfi stendur aftur á móti að ástæður upp­sagn­anna séu vegna hag­ræð­ingar í starf­semi og séu nauð­syn­legar til að mæta aðhalds­kröfum. Samkvæmt Þórarni til­greindi Vinnu­mála­stofnun kon­unum ekki hvaða hag­ræð­inga­kröfur fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins væri um að ræða eða hvernig mæta ætti hag­ræð­ing­ar­verk­efn­inu með aðhaldi og end­ur­skipu­lagn­ingu í rekstr­ar­legum útgjöldum.

Framkoma stjórnenda ofbeldiskennd, ógnandi og niðurlægjandi

Þórarinn telur að stofn­unin þurfi jafn­framt að svara því hvort upp­sagn­irnar fari á mis við jafn­rétt­islög því um er að ræða upp­sagnir kvenna. Hann segir að stjórn­endur Vinnu­mála­stofn­unar hafi heldur ekki virt leið­bein­ingar fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins um upp­sagn­ar­við­töl þar sem kemur skýrt fram að boða þurfi starfs­mann í við­tal vegna upp­sagn­ar­innar en stjórn­end­urnir hafi forð­ast að eiga sam­tal vegna þeirra. Í leið­bein­ing­unum segir:

„Hugs­an­legt er að ein­hverjir stjórn­endur bregð­ist við ástand­inu með því að fela sig inni á skrif­stofum sínum á bak við luktar dyr undir því yfir­skini að hafa mikið að gera. Slík hegðun sýnir tak­mark­aða virð­ingu þeirra fyrir starfs­fólki sínu sem hefur þörf fyrir sýni­legan stjórn­anda sem kemur fram af mynd­ug­leika og skiln­ingi á við­brögðum starfs­fólks.“

Þórarinn greinir frá því að stjórn­endur Vinnu­mála­stofn­unar hafi forð­ast að eiga sam­tal vegna upp­sagna kvenn­anna, kallað við­kom­andi inn á skrif­stofu, afhent upp­sagn­ar­bréf og óskað eftir því að starfs­menn­irnir yfir­gæfu vinnu­stað­inn án tafar án þess að koma við á starfs­stöðvum sínum eða kveðja sam­starfs­fé­laga sína og sagt að starfs­krafta þeirri væri ekki óskað á upp­sagn­ar­tíma. Að ekki sé minnst á að sækja að starfs­fólki sínu veiku í flensu, „þramm­andi inn á gafl á þeirra eigin heim­ili til að henda upp­sögnum í við­kom­andi“. Upp­sagn­irnar hafi verið óvæntar og fram­koma stjórn­end­anna hafi verið ofbeld­is­kennd, ógn­andi og nið­ur­lægj­andi í garð þeirra.

„Þessi fram­koma er algjör­lega for­kast­an­leg,“ segir Þórarinn að lokum og segir að Sameyki muni beita sér af mik­illi ákveðni í að sækja rétt kvenn­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár