Segja nýtt frumvarp ríkisstjórnarinnar fela í sér aðför að kjörum lífeyrisþega lífeyrissjóða

Tveir reynslu­mestu stjórn­endur íslenska líf­eyr­is­kerf­is­ins frá því að það var sett á fót segja að verði fram­lögð frum­varps­drög að lögum muni það hafa í för með sér veru­lega kaup­mátt­ar­skerð­ingu líf­eyr­is­þegar.

Hrafn Magnússon, Bjarni Benediktsson og Þorgeir Eyjólfsson.
Hrafn Magn­ús­son, Bjarni Bene­dikts­son og Þorgeir Eyj­ólfs­son. Mynd: Samsett

„Í far­vatn­inu er aðför að kjörum líf­eyr­is­þega líf­eyr­is­sjóð­anna. Atlagan að kjörum líf­eyr­is­þega er hluti fyr­ir­hug­aðra breyt­inga á ýmsum lögum vegna lög­fest­ingar hækk­unar lág­marks­ið­gjalds til líf­eyr­is­sjóða. Skerð­ingin á kjörum líf­eyr­is­þeg­anna er með öllu óskyld og óvið­kom­andi lög­fest­ingu lág­marks­ið­gjalds­ins.“ Svona hefst grein í Morg­un­blað­inu í dag sem er skrifuð af tveimur reynslu­mestu stjórn­endur íslenska líf­eyr­is­kerf­is­ins frá því að það var sett á fót, Hrafni Magn­ús­syni, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra Lands­sam­taka líf­eyr­is­sjóða til 36 ára, og Þorgeiri Eyj­ólfs­syni, sem var fram­kvæmda­stjóri Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna í ald­ar­fjórð­ung.

Drög að ofan­greindu frum­varpi voru birt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda 18. mars síð­ast­lið­inn. Þau eru lögð fram af fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu sem stýrt er af Bjarna Bene­dikts­syni. Efni frum­varps­ins er sagt vera liður í stuðn­ingi rík­is­stjórn­ar­innar við gerð lífs­kjara­samn­ings­ins frá árinu 2019. Í þeim samn­ingi skuld­bundu stjórn­völd sig meðal ann­ars að hækka lág­marks­ið­gjald til líf­eyr­is­sjóða og að ráð­stafa mætti sér­eign­ar­sparnað til hús­næð­is­kaupa eða til lækk­unar hús­næð­is­lána. Frum­varpið var áður lagt fram í apríl í fyrra, en þá lagði efna­hags- og við­skipta­nefnd þings­ins til að það yrði end­ur­skoðað með til­liti til þeirra umsagna sem bár­ust um það. Eftir að hafa unnið úr umsögn­unum hefur ráð­herr­ann nú lagt fram frum­varpið aftur með nokkrum breyt­ing­um.

[adspot]Nú er til­gangur þess tíund­aður í fimm liðum. Í fyrsta lagi á að lög­festa lög­bundna hækkun mót­fram­lags launa­greið­enda á almennum vinnu­mark­aði til líf­eyr­is­sjóðs úr átta pró­sentum í 11,5 pró­sent. Í öðru lagi er lagt til að sjóð­fé­lagar geti ráð­stafað hækkun mót­fram­lags­ins til þess er mun kall­ast til­greind sér­eign, í stað þess að ráð­stafa hækk­un­inni í sam­trygg­ing­ar­deildir líf­eyr­is­sjóða. Í þriðja lagi eru til­lögur að auknum heim­ildum til þess að nýta úrræði líf­eyr­is­sparn­aðar til fyrstu kaupa á fast­eign. Í fjórða lagi er lagt til að til­greindur verði á skýran hátt sá hluti líf­eyr­is­sparn­aðar sem kemur ekki til lækk­unar við ákvörðun um elli­líf­eyri, tekju­trygg­ingu og ráð­stöf­un­arfé sam­kvæmt lögum um almanna­trygg­inga.

Og svo er, í fimmta lagi, lagt til að verð­lags­upp­færslur líf­eyr­is­greiðslna eigi sér stað einu sinni á ári í stað mán­að­ar­lega eins og nú er. Það er sá hluti sem Hrafn og Þorgeir gagn­rýna harð­lega.

„Ekki eins og lífeyrisþegar landsins hafi verið ofaldir af stjórnvöldum“

Í grein­inni segja þeir að með þess­ari breyt­ingu eigi að skerða lífs­kjör líf­eyr­is­þeg­anna með því að í stað þess að greiðslur líf­eyris frá líf­eyr­is­sjóð­unum taki mán­að­ar­legum breyt­ingum vísi­tölu neyslu­verðs sé ætl­unin að verð­bæta líf­eyr­inn einu sinni á ári. „Þannig hækki líf­eyrir í útgreiðslu árlega í jan­úar ár hvert um hækkun neyslu­verð­vísi­tölu næst­lið­ins árs. Kaup­máttur líf­eyris líf­eyr­is­þeg­anna mun því lækka sem nemur verð­bótum sem ann­ars bæt­ast við líf­eyr­is­greiðslu hvers mán­aðar innan árs­ins.“

Hrafn og Þorgeir segja að nei­kvæðar afleið­ingar hinna fyr­ir­hug­uðu breyt­inga megi sjá með því að horfa á hver áhrifin yrðu á yfir­stand­andi ári ef laga­breyt­ingin hefði tekið gildi í upp­hafi árs 2022. Miðað við þá 6,7 pró­sent verð­bólgu sem mælist nú myndi kaup­mátt­ar­skerð­ing líf­eyr­is­þega verða um það bil þrjú pró­sent ef breyt­ingin hefði þegar tekið gildi.

Í drögum að frum­varp­inu er breyt­ingin á verð­lags­upp­færslu líf­eyr­is­greiðslna rök­studd með eft­ir­far­andi hætti: „Er þetta gert til þess að draga úr mis­ræmi milli tekju­á­ætl­unar líf­eyr­is­þega og raun­veru­legra tekna hans sem leiða gjarnan til þess að líf­eyr­is­þegi þarf að end­ur­greiða þegar fengnar greiðslur frá almanna­trygg­ingum. Tillagan er til hags­bóta fyrir líf­eyr­is­þega og Trygg­inga­stofnun.“

[links]Hrafn og Þorgeir segja að í stað þess að ráð­ast í það sem þeir kalla „veru­lega kaup­mátt­ar­skerð­ingu líf­eyris“ til að draga úr fyrr­greindu mis­ræmi gæti Trygg­inga­stofnun auð­veld­lega upp­fært tekju­á­ætlun líf­eyr­is­þeg­anna þannig að áætlað sé fyrir verð­lags­breyt­ingum líf­eyr­is­greiðslna mán­að­anna sem eftir lifa á hverju ári.

Þeir vitna svo í umsögn Seðla­banka Íslands um frum­varps­drögin, þar sem fram kemur að bank­inn telji að með breyt­ing­unni verði líf­eyr­is­þegar af verð­bótum sem ann­ars bætt­ust við innan hvers alm­an­aks­árs. „Jafn­framt að hann telji eðli­legt að fram­kvæmdin sé með sama hætti og gildir um verð­tryggðar fjár­fest­ingar, sem eru verð­bættar minnst mán­að­ar­lega. Horft til nokk­urra ára safn­ast kaup­mátt­ar­skerð­ingin upp.“

Hrafn og Þorgeir segja í lok grein­ar­innar að ólík­legt sé að líf­eyr­is­þegar telji fyr­ir­hug­aða breyt­ingu á verð­trygg­ingu líf­eyris sér til hags­bóta þegar hún upp­söfnuð yfir fimm ára tíma­bil sam­svarar sam­an­lagt allt frá einni til tveggja mán­aða líf­eyr­is­greiðslna yfir tíma­bilið sem þá vantar til að standa straum af brýn­ustu nauð­synjum. „Ekki eins og líf­eyr­is­þegar lands­ins hafi verið ofaldir af stjórn­völdum. En það er efni í aðra og mun sorg­legri grein.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár