Leggur til þensluaðgerðir á húsnæðismarkaði

Fjár­mála­ráð­herra hyggst auka heim­ildir fólks til að ráð­stafa sér­eign­ar­sparn­að­inum sínum skatt­frjálst til fyrstu fast­eigna­kaupa. Það gæti unnið gegn mark­miðum Seðla­bank­ans um að draga úr eft­ir­spurn­ar­þrýst­ingi á hús­næð­is­mark­aði.

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra segir að stjórn­völd ættu að veita ein­stak­lingum frek­ari stuðn­ing við fyrstu hús­næð­is­kaup, en hann leggur til að þeir fái auknar heim­ildir til að ráð­stafa sér­eign­ar­sparn­aði sínum skatt­frjálst. Þetta kemur fram í nýjum drögum að frum­varpi ráð­herr­ans um líf­eyr­is­greiðslur og til­greinda sér­eign sem nálg­ast má í Sam­ráðs­gátt stjórn­valda.

Liður í lífskjarasamningnum

Drögin voru kynnt á vef Stjórn­ar­ráðs­ins í síð­ustu viku, en þar kemur fram að efni frum­varps­ins væri liður í stuðn­ingi rík­is­stjórn­ar­innar við gerð lífs­kjara­samn­ings­ins frá árinu 2019. Í þeim samn­ingi skuld­bundu stjórn­völd sig meðal ann­ars að hækka lág­marks­ið­gjald til líf­eyr­is­sjóða og að ráð­stafa mætti sér­eign­ar­sparnað til hús­næð­is­kaupa eða til lækk­unar hús­næð­is­lána.

Frum­varpið var áður lagt fram í apríl í fyrra, en þá lagði efna­hags- og við­skipta­nefnd þings­ins til að það yrði end­ur­skoðað með til­liti til þeirra umsagna sem bár­ust um það. Eftir að hafa unnið úr umsögn­unum hefur ráð­herr­ann nú lagt fram frum­varpið aftur með nokkrum breyt­ingum.

Í nýju frum­varpi er mót­fram­lag vinnu­veit­enda í líf­eyr­is­sjóð hærra, auk þess sem sjóð­fé­lagar geta ráð­stafað hluta af því fram­lagi í svo­kall­aðri til­greindri sér­eign. Þessa til­greindu sér­eign munu sjóð­fé­lagar svo geta nýtt sér skatt­frjálst upp í fyrstu fast­eigna­kaupin sín.

Aukin eftirspurn gegn markmiðum Seðlabankans

Í nýjasta hefti Fjár­mála­stöð­ug­leika segir Seðla­bank­inn að mikið ójafn­vægi sé á milli fram­boðs og eft­ir­spurnar á hús­næð­is­mark­aðnum sem hafi leitt til mik­illar hækk­unar á hús­næð­is­verði nýlega. Samkvæmt bank­anum ýttu margir þættir undir eft­ir­spurn eftir að far­sóttin náði til lands­ins, t.a.m. auk­inn sparn­aður vegna tak­mark­aðra neyslu­mögu­leika, mikil kaup­mátt­ar­aukn­ing heim­ila og vaxta­lækk­anir Seðla­bank­ans.

Bankinn segir að ójafn­vægið sem ríkir á hús­næð­is­mark­aðnum bendi til þess að áhætta á bólu­myndun sé að aukast tölu­vert þessi miss­erin. Hins vegar von­ast hann til þess að vaxta­hækk­anir und­an­far­inna mán­aða og þrengri skil­yrði fyrir lán­töku minnki þetta ójafn­vægi með því að draga úr eft­ir­spurn.

Aftur á móti má búast við því að auknar heim­ildir til skatt­frjálsrar ráð­stöf­unar á sér­eign­ar­sparn­aði í fyrstu fast­eign hafi þver­öfug áhrif og auki eft­ir­spurn á hús­næð­is­mark­aði, þar sem þær auka aðgengi heim­ila að fjár­magni til hús­næð­is­kaupa. Ef slíkum eft­ir­spurn­ar­kippi er ekki mætt með sam­svar­andi aukn­ingu fram­boðs mun hús­næð­is­verð hækka enn frekar.

Bjarni segir í frum­varpi sínu að ráð­stöfun sér­eign­ar­sparn­aðar til íbúða­kaupa auð­veldi heim­ilum með með­al­tekjur og lágar tekjur að fara á íbúða­markað og styrki eig­in­fjár­stöðu þeirra. Samkvæmt nýút­gef­inni grein­ingu ASÍ hefur úrræðið, sem hefur verið til í ein­hverri mynd frá árinu 2014, þó fyrst og fremst gagn­ast tekju­hæstu hópum sam­fé­lags­ins.

Áhrif aðgerð­ar­innar á eft­ir­spurn á fast­eigna­mark­aðnum eru ekki metin í frum­varp­inu, en þó er bætt við að almennt hækki fast­eigna­verð með fleiri úrræðum til þess að styðja við fast­eigna­kaup. Aftur á móti segir ráð­herr­ann að aðgerðin muni að öllum lík­indum auka íbúða­fjár­fest­ingu, en ekki sé ljóst hversu mikil sú aukn­ing verði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár