Stéttarfélag flugmanna „fordæmir viðskipti ríkisstjórnarinnar við Bláfugl“

Félag íslenskra atvinnu­flug­manna for­dæmir að rík­is­stjórnin, í umboði íslenskra skatt­greið­enda, stundi við­skipti við flug­fé­lagið Bláfugl. Stétt­ar­fé­lagið segir flug­fé­lagið hafa stundað félags­leg und­ir­boð og gervi­verk­töku.

Jón Þór Þorvaldsson, sem tekið hefur sæti á þingi fyrir Miðflokkinn, er formaður FÍA.
Jón Þór Þor­valds­son, sem tekið hefur sæti á þingi fyrir Mið­flokk­inn, er for­maður FÍA. Mynd: Miðflokkurinn

Félag íslenskra atvinnu­flug­manna (FÍA) for­dæmir að íslenska utan­rík­is­ráðu­neytið hafi ráðið flug­fé­lagið Bláfugl, Bluebird Nordic, til þess að ann­ast flutn­ing á her­gögnum og öðrum varn­ingi vegna stríðs­ins í Úkraínu. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu sem félagið sendi frá sér í dag.

Kjarninn sagði frá því á mánu­dag að Bláfugl hefði tekið að sér nokkur flug fyrir utan­rík­is­ráðu­neytið, en ráðu­neytið hefur hefur lagt fram leiguflug­vélar til aðstoðar banda­lags­ríkjum sem eru að flytja meðal ann­ars her­gögn þétt upp að landa­mærum Úkraínu.[links]

Utan­rík­is­ráðu­neytið sjálft var ekki búið að segja frá því að Bláfugl, sem hefur verið í miklum deilum við stétt­ar­fé­lag flug­manna und­an­farin ár og verið harð­lega gagn­rýnt af Alþýðu­sam­bandi Íslands sömu­leiðis, hefði verið ráðið til verks­ins.

Sérstök frétta­til­kynn­ing var þó send út um fyrsta frakt­flugið á vegum íslenskra stjórn­valda og tekið fram að það hefði verið með vél frá Air Atlanta.

Síðan þá hafa verið farnar allt í allt þrettán ferðir á vegum íslenskra stjórn­valda með vélum bæði Atlanta og Bláfugls, sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem Kjarninn fékk frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu á mánu­dag.

Félagsleg undirboð og gerviverktaka

Í yfir­lýs­ingu FÍA í dag segir að félagið hafi ítrekað bent á það hvernig Bláfugl, sem starfar á grund­velli íslensks flug­rekstr­ar­leyfis og lúti íslenskum lögum, hafi „brotið gegn íslenskri vinnu­lög­gjöf með félags­legum und­ir­boðum og gervi­verk­töku, og snið­gengið kjara­samn­ing sinn við FÍA.“

[adspot]

„Bláfugl hefur auk þess alfarið hundsað nið­ur­stöðu Félags­dóms sem féll þann 16. sept­em­ber síð­ast­lið­inn og með því gert alvar­lega atlögu að stjórn­ar­skrár­vörðum rétti stétt­ar­fé­laga og rétt­indum íslensks launa­fólks sem vinnur sam­kvæmt kjara­samn­ingi,“ segir einnig í yfir­lýs­ingu FÍA.

Þar segir einnig að það hljóti að vera „krafa okkar allra að íslensk fyr­ir­tæki virði gild­andi lög, kjara­samn­inga og nið­ur­stöður dóm­stóla“ og að það sé „með öllu óásætt­an­legt að það fái að við­gang­ast að íslenska ríkið, í umboði skatt­greið­enda, eigi við­skipti við slíkt félag.“

Starf­semi Bláfugls er að mestu leyti úti í heimi þrátt fyrir að það sé með íslenskt flug­rekstr­ar­leyfi, en félagið er í eigu Avia Solutions Group, sem er með höf­uð­stöðvar á Kýp­ur.

Stærsti ein­staki eig­andi félags­ins er litáíski auð­mað­ur­inn Gediminas Ziem­elis. Avia Solutions Group keypti Bláfugl af fyrri íslenskum eig­endum árið 2020.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár