Bláfugl hefur flutt hergögn til Póllands á vegum íslenskra stjórnvalda

Und­an­farnar vikur hefur Bláfugl farið nokkrar ferðir fyrir íslenska utan­rík­is­ráðu­neytið með her­gögn sem ætluð eru til notk­unar í Úkraínu. Her­gagna­flutn­ingar flug­fé­lags­ins komust í fréttir í Toskana-hér­aði á Ítalíu í síð­asta mán­uði.

Flug­fé­lagið Bláfugl, Bluebird Nordic, hefur verið ráðið af íslenska utan­rík­is­ráðu­neyt­inu til þess að ann­ast flutn­ing á varn­ingi, þar á meðal her­gögnum, vegna stríðs­ins í Úkraínu. Flugvél félags­ins flutti meðal ann­ars her­gögn frá Pisa á Ítalíu til Rzeszów, nærri landa­mærum Póllands og Úkraínu þann 12. mars og hefur félagið farið fleiri ferðir síðan.

Undir lok febr­ú­ar­mán­aðar var sagt frá því að Air Atlanta hefði verið fengið til þess að ann­ast flug á vegum íslenskra stjórn­valda með ein­hvern varn­ing, þar á meðal her­gögn, sem flytja átti til Úkraínu. Ekki hefur áður verið greint frá því að Bláfugl hafi einnig verið að sinna slíku flugi.

Starf­semi Bláfugls er að mestu leyti úti í heimi þrátt fyrir að það sé með íslenskt flug­rekstr­ar­leyfi, en félagið er í eigu Avia Solutions Group, sem er með höf­uð­stöðvar á Kýpur. Félagið hefur, frá því að nýir eig­endur keyptu það árið 2020, helst verið í umræð­unni hér­lendis vegna deilna um kjara­mál við Félag íslenskra atvinnu­flug­manna.

Ekki þörf á sérstöku vopnaflutningaleyfi fyrir ríkisflug

Umræddar flug­ferðir Bláfugls und­an­farnar vikur eru sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu skil­greindar sem rík­is­flug, en reglu­gerð nr. 464/2019 um flutn­ing her­gagna með loft­förum til handa íslenskum flug­rek­anda nær ekki yfir rík­is­flug, heldur ein­ungis almennt flug. Það þarf því ekki sér­stakt útgefið leyfi ráðu­neyt­is­ins til þess að sinna her­gagna­flutn­ingum í skil­greindu rík­is­flugi.

[adspot]

Air Atlanta er eina flug­fé­lagið með íslenskt flug­rekstr­ar­leyfi sem hefur fengið útgefin sér­stök leyfi það sem af er ári til þess að sinna almennu flugi með her­gögn, en félagið hefur í áraraðir sinnt vopna­flutn­ingum fyrir við­skipta­vini sína.

Alls þrettán ferðir í heildina

Í svari frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu til Kjarnans sem barst skömmu eftir að þessi frétt birt­ist segir að íslensk stjórn­völd hafa á und­an­förnum vikum haft milli­göngu um flutn­ing á her­gögnum frá ýmsum Evr­ópu­ríkjum til Úkraínu. Alls eru ferð­irnar þrettán tals­ins, sam­kvæmt svari ráðu­neyt­is­ins.

„Hefur þetta verið gert til að svara ákalli úkra­ínskra stjórn­valda um slíka aðstoð. Íslensk stjórn­völd hafa leigt frakt­flug­fé­lagar frá flug­fé­lög­unum Air Atlanta og Bluebird Nordic til þess­ara verk­efna og hafa alls þrettán slíkar frakt­flug­ferðir verið farnar í sam­starfi við Albaníu, Slóveníu, Ítalíu, Króatíu og Portúgal til áfanga­staða nærri landa­mærum Úkraínu. Flutn­ing­arnir eru í fyllsta sam­ræmi við íslensk lög og reglur,“ segir í svari utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins.

Umfjöllun um óvæntan varning í ítölskum miðlum

Sigurður Örn Ágústs­son for­stjóri Bláfugls sagði frá því í tölvu­pósti til allra starfs­manna félags­ins í gær, sem Kjarninn hefur séð, að flug­fé­lagið hefði flutt skot­færi af ein­hverju tagi í leiguflugi á vegum íslenska utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins frá Písa á Ítalíu til Póllands 12. mars.

Efni tölvu­pósts­ins laut að fréttum sem höfðu verið sagðar í hér­aðs­frétta­miðlum í Toskana-hér­aði á Ítalíu um miðjan síð­asta mánuð, þess efnis að borg­ara­legir hlað­menn á flug­vell­inum í Písa hefðu ekki verið með­vit­aðir um að þeir ættu að fara að hlaða her­gögnum um borð í vél Bláfugls.

„Í leiguflugi fyrir utan­rík­is­ráðu­neytið frá Písa til Póllands þann 12. mars, virt­ust hlað­menn­irnir í Písa vera undr­andi á farm­inum, sem inni­hélt meðal ann­ars skot­færi, þrátt fyrir að öll papp­írs­vinnan hafi verið full­komin og öll leyfi hafi verið í lagi, og neit­uðu til að byrja með að ferma vél­ina. Síðar fermdu þeir þó vél­ina, þar sem þeir sáu að öll leyfi og papp­írs­vinna var í lagi, og flugið hélt af stað á áætlun. Og flugið var hægt að sjá á Flightradar allan tím­ann,“ sagði Sigurður í tölvu­póst­inum, sem var á ensku en er hér þýddur af blaða­manni.

Í umfjöll­unum staðar- og hér­aðsmiðla í Toskana-hér­aði kom fram að stétt­ar­fé­lag hlaðmanna hafi lýst yfir óánægju með það að borg­ara­legir starfs­menn flug­vall­ar­ins hafi verið látnir með­höndla her­gögn. Einnig hefur verið gagn­rýnt að þeim hafi verið hlaðið um borð í vél Bláfugls á borg­ara­legu svæði flug­vall­ar­ins, en ekki þeim hluta hans sem hugs­aður er undir hern­að­ar­starf­semi. Haft hefur verið eftir for­seta Toscana Aer­oporti, félags sem rekur flug­velli hér­aðs­ins, að það verði ekki látið end­ur­taka sig.

Í sam­tali við Kjarnann segir Sigurður Örn að Bláfugl hafi ekk­ert að gera með skipu­lagn­ingu á því hvar á vell­inum varn­ingnum var komið um borð í vél­ina. Félagið hafi verið með alla papp­íra á hreinu og öll til­skilin leyfi til þess að flytja varn­ing­inn.

„Það er alveg krist­al­tært,“ segir Sigurður Örn, sem seg­ist ósáttur með umfjöllun ítal­skra miðla um málið, en í einum miðli var stærsta eig­anda Bláfugls, litáíska auð­mann­inum Gediminas Ziemelis, spyrt saman við rúss­neskan olíg­arka.

Sigurður Örn sagði einnig frá því í tölvu­pósti til starfs­manna Bláfugls að félagið hefði haldið áfram að fljúga sam­kvæmt samn­ingi við íslenska utan­rík­is­ráðu­neytið frá hinum ýmsu flug­völlum í Evrópu til Póllands, með varn­ing sem fluttur er til Úkraínu þar sem hann „hjálpi Úkraínu að berj­ast gegn inn­rás­ar­her og alræði.“

Sigurður Örn segir við Kjarnann að flugið fyrir utan­rík­is­ráðu­neytið sé svona „aðeins póli­tískt erfitt“ í ljósi stöð­unnar í heims­mál­unum.

Hann bætir því þó við að Bláfugl sé stolt af því að geta tekið þátt í að færa Úkra­ínu­mönnum her­gögn sem nýt­ist í bar­átt­unni við Rússa.

Er að hætta sem forstjóri

Í dag sendi Sigurður Örn svo annan tölvu­póst á starfs­menn félags­ins, þar sem hann sagði frá því að frá og með morg­un­deg­inum yrði hann ekki lengur for­stjóri Bláfugls, heldur tæki Audrone Keinyté við stjórn­un­ar­hlut­verk­inu.

Sigurður verður þó áfram stjórn­ar­for­maður flug­fé­lags­ins og segir að alltaf hafi verið horft til þess að hann staldr­aði stutt við í starfi for­stjóra.

Í sam­tali við Kjarnann sagði Sigurður Örn aðspurður að til­kynn­ingin þess efnis að hann væri að færa sig til innan fyr­ir­tæk­is­ins hefði ekk­ert með flug félags­ins fyrir utan­rík­is­ráðu­neytið að gera.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár