Dagur segist standa við Kastljósstilboðið og býður Sólveigu Önnu til fundar

Borg­ar­stjóri hefur sent Eflingu við­brögð við til­boði um að fresta verk­falli í tvo sól­ar­hringa.

Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri Reykja­víkur, segir að hann standi „að sjálf­sögðu við allt sem ég sagði í Kast­ljósi á sínum tíma en það er ekki gagn­legt þegar reynt er að að snúa út úr þeim yfir­lýs­ingum eða standa í skeyta­send­ingum í fjöl­miðlum til að leysa kjara­deilur.“

[links]Hann segir að í stað þess að standa í frek­ari skeyta­send­ingum í fjöl­miðlum vilji hann bjóða Sólveigu Önnu Jóns­dóttur, for­manni Eflingar, til fundar til að ræða hina erf­iðu stöðu við­ræðna og hvar ber á milli aðila.

Þetta segir Dagur í stöðu­upp­færslu sem hann birti á Facebook rétt í þessu sem við­bragð við erindi sem samn­inga­nefnd Eflingar sendi honum fyrr í dag og fór fram á svar fyrir klukkan 16. Í við­brögðum Dags seg­ist hann fagna því að Efling opni á að fresta verk­föllum og seg­ist standa við allt sem hann sagði í Kast­ljósi á sínum tíma. „Gott til­boð borg­ar­innar um að hækka laun Efl­ing­ar­fólks hjá borg­inni liggur fyrir, með sér­stakri áherslu á að bæta lægstu laun og kjör kvenna­stétta. Tilboðið er á grunni lífs­kjara­samn­ing­anna, með leng­ingu orlofs og útfærslu á stytt­ingu vinnu­vik­unnar.“

[adspot]Í morgun bauðst Efling til að fresta verk­falls­að­gerðum í tvo sól­ar­hringa gegn því að Dagur veitti skrif­lega stað­fest­ingu á „Kast­ljós­stil­boð­in­u“, en þar var vísað í yfir­lýs­ingar hans í Kast­ljósi 19. febr­úar þar sem hann ræddi um 110 þús­und króna grunn­launa­hækkun á samn­ings­tíma fyrir ófag­lærðan Efl­ing­ar­starfs­mann. „Heild­stætt til­boð í þá veru hefur ekki komið fram á samn­inga­fundum þrátt fyrir athuga­semdir og óskir samn­inga­nefndar Efl­ing­ar,“ sagði í til­kynn­ing­unn­i.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár