Samsetning tekna landsmanna breyttist talsvert árið 2020 miðað við fyrra ár

Kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn leiddi til þess að hlut­fall tekna ann­arra en atvinnu- og fjár­magnstekna af heild­ar­tekjum jókst mikið milli ára, summa tekna vegna atvinnu­leys­is­bóta jókst til dæmis um 240 pró­sent. Hæstar tekjur hefur fólk á aldr­inum 45 til 49 ára.

Meðaltal árstekna hér á landi er um 7,1 milljón en miðgildi árstekna er um 5,9 milljónir.
Meðaltal árs­tekna hér á landi er um 7,1 milljón en mið­gildi árs­tekna er um 5,9 millj­ónir. Mynd: Bára Huld Beck

Nokkur breyt­ing varð á sam­setn­ingu tekna ein­stak­linga á Íslandi á árinu 2020 miðað við árið á undan. Aðrar tekjur en atvinnu­tekjur og fjár­magnstekjur sóttu veru­lega í sig veðrið á árinu en hlut­fall ann­arra tekna í heild­ar­tekjum lands­manna fór úr 20,6 pró­sentum upp í 24,7 pró­sent, sam­kvæmt nýjum tölum frá Hagstofu Íslands. Það er um fimmt­ungs­hækkun. Til ann­arra tekna telj­ast meðal ann­ars atvinnu­leys­is­bætur, félags­leg aðstoð og líf­eyris- og bóta­greiðslur. Hlutfall atvinnu­tekna nam 68,5 pró­sentum og hlut­fall fjár­magnstekna nam 6,8 pró­sentum. Til atvinnu­tekna telj­ast launa­tekjur og aðrar starfstengdar tekjur, til dæmis öku­tækja­styrkur, dag­pen­ingar, hlunn­indi og reiknað end­ur­gjald. Til fjár­magnstekna telj­ast til að mynda vaxta­tekjur, arður, sölu­hagn­aður og leigu­tekjur utan rekstrar.

Þessi aukn­ing á öðrum greiðslum má meðal ann­ars rekja til kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins en í til­kynn­ingu á vef Hag­stof­unnar segir að summa tekna vegna atvinnu­leys­is­bóta jókst um 240 pró­sent milli ára og félags­leg aðstoð um 31 pró­sent á verð­lagi árs­ins 2020. Þá var á síð­asta ári greiddur út sér­stakur barna­bóta­auki til þeirra sem telj­ast fram­fær­endur barna auk þess sem sér­stök heim­ild var veitt til úttektar á sér­eign­ar­sparn­aði. Þær greiðslur telj­ast til ann­arra tekna.

Mikil aukn­ing varð á atvinnu­leysi snemma strax snemma í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum. Í mars í fyrra var almennt atvinnu­leysi 5,7 pró­sent og sam­tals 9,2 pró­sent, það er sé tekið til­lit til þeirra sem voru í minnk­uðu starfs­hlut­falli. Til sam­an­burðar var atvinnu­leysi 5 pró­sent í mán­uð­inum á undan. Hæst fór atvinnu­leysið í apríl þegar það var sam­tals 17,8 pró­sent að teknu til­liti til þeirra sem voru í minnk­uðu starfs­hlut­falli. Í þeim mán­uði var almennt atvinnu­leysi 7,5 pró­sent. Almenna atvinnu­leysið fór svo stíg­andi þegar leið á árið og í des­em­ber var almennt atvinnu­leysi 10,7 pró­sent en sam­tals 12,1 pró­sent.

Heildartekjur sambærilegar og fyrri ár

Í fyrra námu heild­ar­tekjur ein­stak­linga á Íslandi að með­al­tali 7,1 milljón króna eða um 591 þús­und krónur á mán­uði. Miðgildi heild­ar­tekna var aftur á móti lægra, um 5,9 millj­ónir á ári eða um 488 þús­und krónur á mán­uði. Samkvæmt til­kynn­ingu Hag­stof­unnar hafa með­al­tekjur hækkað árlega um rúm­lega 3 pró­sent en verð­lags­leiðiréttar heild­ar­tekjur eru nær óbreyttar á tíma­bil­inu.

Tekjur þeirra sem yngstir eru voru lægstar árið 2020, en sér­stak­lega er vakin athygli á því í til­kynn­ingu Hag­stof­unnar að margir í yngstu ald­urs­hóp­unum búa enn í for­eldra­húsum. Að með­al­tali voru heild­ar­tekjur ein­stak­linga á aldr­inum 16 til 19 ára um 117 þús­und krónur á mán­uði. Í næsta ald­urs­hópi fyrir ofan, hjá 20 til 24 voru heild­ar­tekjur á mán­uði um 318 þús­und krónur að með­al­tali á árinu 2020. Hæstu heild­ar­tekj­urnar höfðu ein­stak­lingar í ald­urs­hópnum 45 til 49 ára, tekjur þeirra námu um 786 þús­und krónum að með­al­tali í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

AðsentKjaramál

Jóhannes Hraunfjörð Karlsson

Fleygur í þjóð­ar­sál: Hug­leið­ingar um almanna­trygg­ingar, við­bót­ar­líf­eyri og dóm um líf­eyr­is­sjóði í árs­lok 2021

Jóhannes Hraun­fjörð Karlsson segir að núver­andi for­sæt­is­ráð­herra hafa fært almennt sið­ferði niður. Í hennar tíð hafi laun þing­manna og emb­ætt­is­manna marg­fald­ast og séu nú að auki vísi­tölu­bundin en slíkt tíðk­ist hvergi nema um lág­marks­laun.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár