Guðmundur Jónatan Baldursson gefur kost á sér til formennsku í Eflingu

Stjórn­ar­maður í Eflingu hefur ákveðið að bjóða sig fram til for­manns Eflingar. Fram­boðin eru nú orðin tvö.

Guðmundur Jónatan Baldursson
Guð­mundur Jónatan Bald­urs­son Mynd: Skjáskot/Vísir

Guð­mundur Jónatan Bald­urs­son, stjórn­ar­maður í Eflingu, hefur ákveðið að gefa kost á sér til for­mennsku í Eflingu í kosn­ingu meðal félags­fólks þann 15. febr­úar næst­kom­andi.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Guðmundi sem birt er á Vísi.

„Ég hef setið í stjórn Eflingar allt frá árinu 2018. Aðra reynslu af stjórnun hef ég í gegnum störf mín sem for­stöðu­maður íþrótta­mið­stöðva. Ég starf­aði og gegndi hlut­verki trún­að­ar­manns hjá Grey Line Allra handa um ára­bil. Nú starfa ég hjá verk­taka­fyr­ir­tæk­inu Faxaverk sem vöru­bíl­stjóri ásamt annarri véla­vinnu.“

„Efling-stétt­ar­fé­lag er næst fjöl­menn­asta stétt­ar­fé­lag lands­ins með hátt í 30.000 ófag­lærða félags­menn þegar félagið er fjöl­menn­ast á sumrin. Þar af er ríf­lega helm­ingur af erlendum upp­runa. Brýnt er að til for­mennsku í félag­inu velj­ist Efl­ing­ar­fé­lagi með hald­góða reynslu af verka­manna­störfum, félags- og stjórn­un­ar­störfum innan stétt­ar­fé­lags­ins. Hann þarf að vera til­búin til að axla ábyrgð og hafa hug­rekki til að takast á við erf­iðar áskor­anir.

Með reynslu minni af vinnu­mark­aði og stjórnun Eflingar tel ég að ég hafi til að bera hvort tveggja. Skemmst er að minn­ast bar­áttu minnar gegn yfir­hylm­ingu fyrr­ver­andi for­manns gagn­vart arfa­lé­legum stjórn­ar­háttum fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra félags­ins. Hegðun fram­kvæmda­stjór­ans hefur ekki aðeins kostað félagið dýr­mætan þekk­ing­ar­leka vegna óeðli­lega mik­illar starfs­manna­veltu heldur tugi millj­óna króna í starfs­loka­samn­ingum. Ótalin er van­líðan núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­manna og fjöl­skyldna þeirra,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Guð­mundur segir að ef honum verði trúað fyrir for­mennsku í Eflingu muni hann starfa af ein­hug fyrir alla Efl­ing­ar­fé­laga, inn­lenda sem erlenda, og stuðla að jafn­launa­stefnu.

„Einnig mun ég vinna að þeirri nýbreytni að deild­ar­skipta félag­inu með það að leið­ar­ljósi að starfs­menn innan hvers geira Eflingar eins og t.d. leik­skóla­starfs­fólk, hóp­ferða­bíl­stjórar, starfs­fólk í umönnun geti stofnað stjórnir innan sinna raða og haft áhrif á sína eigin kjara­samn­inga­gerð. Markmið með þessum áherslum er að efla stétt­ar­vit­und innan Eflingar og einnig að stuðla að því að hópar geti sjálfir komið með beinni hætti að sínum kröfu­gerðum. Á end­anum er það alltaf aðal­stjórn Eflingar sem hefur úrskurð­ar­vald.

Einnig mun ég fara yfir allar greiðslur úr sjóðum Eflingar og birta þær opin­ber­lega,“ segir í til­kynn­ingu Guð­mundar.

Kjarninn greindi frá því í gær að Ólöf Helga Adolfs­dóttir vara­for­maður Efl­ingar hefði ákveðið að bjóða sig fram til for­manns stétt­ar­fé­lags­ins svo fram­boðin eru nú orðin tvö.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár