Ólöf Helga Adolfsdóttir býður sig fram til formanns Eflingar

Vara­for­maður Eflingar hefur ákveðið að bjóða sig fram til for­manns stétt­ar­fé­lags­ins. Hún seg­ist þekkja af eigin raun hversu mik­il­væg öflug og skipu­lögð verka­lýðs­hreyf­ingin sé launa­fólki and­spænis ægi­valdi fyr­ir­tækja og sam­taka atvinnu­rek­enda.

Ólöf Helga Adolfsdóttir
Ólöf Helga Adolfs­dóttir Mynd: Þórunn Hafstað

Ólöf Helga Adolfs­dóttir vara­for­maður Eflingar hefur ákveðið að bjóða sig fram til for­manns stétt­ar­fé­lags­ins til næstu tveggja ára, og gefur hún kost á sér til setu í stjórn Eflingar á þeim lista sem upp­still­ing­ar­nefnd mun setja saman.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem Ólöfu Helga sendi á fjöl­miðla í dag en stjórn­ar­kosn­ing í Efl­ingu, þar með talin kosn­ing nýs for­manns, mun fara fram fyrir 15. febr­úar næst­kom­andi.

„Ég hef verið virk í verka­lýðs­bar­átt­unni und­an­farin ár og setið í stjórn Eflingar frá árinu 2019. Frá því í byrjun nóv­em­ber sl. hef ég gegnt emb­ætti vara­for­manns og starfað ásamt Agniezsku Ewu Ziólkowsku að því að halda starf­semi Eflingar gang­andi í gegnum róst­ur­sama tíma eftir að þáver­andi for­maður félags­ins sagði af sér emb­ætti og fram­kvæmda­stjóri sagði upp störfum,“ segir hún og vísar í þær vend­ingar sem áttu sér stað innan Eflingar á síð­asta ári þar sem Sólveig Anna Jóns­dóttir, þáver­andi for­maður félags­ins, og fram­kvæmda­stjór­inn, Viðar Þor­steins­son, hættu störfum eftir deilur innan félags­ins.

Fram kemur hjá Ólöfu Helgu að hún hafi verið virk í verka­lýðs­málum í starfi hennar sem hlaðmaður á Reykja­vík­ur­flug­velli en þar vann hún í fimm ár og gegndi emb­ætti trún­að­ar­manns þar til henni var sagt upp störfum.

„Það er erfitt að missa vinn­una og fram­færsl­una, ekki síst fyrir okkur sem höfum ein­göngu starfað í lág­launa­störfum og eigum því ekki borð fyrir báru þegar í harð­bakk­ann slær. En það er líka sárt að vera vísað á dyr af óljósum ástæðum, sem virð­ast ekki vera aðrar en þær að ég sinnti hlut­verki trún­að­ar­manns af alúð á tímum þar sem vegið var að kjörum og rétt­indum starfs­fólks. Við þessar aðstæður átti ég skjól hjá mínu stétt­ar­fé­lagi sem reis upp mér til varnar. Ég þekki því af eigin raun hversu mik­il­væg öflug og skipu­lögð verka­lýðs­hreyf­ingin er launa­fólki and­spænis ægi­valdi fyr­ir­tækja og sam­taka atvinnu­rek­enda,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Segist hún bjóða sig fram til for­manns Eflingar því hún hafi áhuga á að beina öllum kröftum sínum að verka­lýðs­bar­áttu.

„Ásamt stjórn, samn­inga­nefnd og trún­að­ar­ráði vil ég leiða Eflingu – næst­stærsta stétt­ar­fé­lag lands­ins og stærsta félag verka- og lág­launa­fólks – í gegnum kjara­samn­inga sem eru lausir síðar á þessu ári.

Ég vil leggja mitt af mörkum til að styrkja stöðu trún­að­ar­manna og efla þá í starfi. Ég vil halda áfram því öfl­uga starfi sem Efling hefur unnið að síð­ustu ár og lýtur m.a. að þjón­ustu við erlenda félags­menn og þátt­töku þeirra í starfi hreyf­ing­ar­innar. Ég vil takast á við vanda ungs fólks á vinnu­mark­aði og þeirra sem eru utan náms og vinnu af fullum þunga. Síðast en ekki síst vil ég vinna að því ásamt stjórn og skrif­stofu að efla þjón­ustu við félags­menn enn frekar, byggja upp fræðslu­starf, auka lýð­ræði innan félags­ins og tryggja aðgengi félaga að upp­lýs­ingum um starf­semi Eflingar,“ segir hún enn fremur í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár