Tilbúin að hitta Dag með tveimur skilyrðum

Formaður Eflingar hefur svarað borg­ar­stjóra og seg­ist vera til­búin að hitta hann á fundi með tveimur skil­yrðum.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar. Mynd: Bára Huld Beck

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, hefur svarað Degi B. Egg­erts­syni, borg­ar­stjóra í Reykja­vík, á Facebook en hún seg­ist vera til­búin að hitta hann á fundi – eins og hann leggi til – en þó með tveimur skil­yrðum.

Í fyrsta lagi að hann birti opin­ber­lega það til­boð sem samn­inga­nefnd Eflingar var kynnt á samn­inga­fundi þann 19. febr­úar síð­ast­lið­inn, dag­inn sem hann mætti í Kast­ljós­svið­talið, þannig að allir geti borið til­boðið saman við ummæli hans í Kast­ljós­inu.

Í öðru lagi að hann fall­ist á að mæta sér eða öðrum full­trúa Eflingar í setti í útvarps- eða sjón­varps­við­tali áður en vikan er úti.

„Ef þú fellst á þetta þá skal ég koma og hitta þig til fundar á hvaða tíma sem hentar þér,“ skrifar Sólveig Anna á Facebook-síðu Dags.

Efling bauðst til að fresta verkfallsaðgerðum

[links]For­mál­inn er sá að Efl­ing bauðst í gær­morgun til að fresta verk­falls­að­gerðum í tvo sól­ar­hringa gegn því að borg­ar­stjóri veitti skrif­lega stað­fest­ingu á „Kast­ljós­stil­boð­in­u“. Erindi þessa efnis var sent til borg­ar­stjóra með afriti á rík­is­sátta­semj­ara og var frestur til svars gef­inn til klukkan 16:00 í gær.

Viðar Þor­steins­son, fram­kvæmda­stjóri Eflingar, stað­festi það við Kjarnann í gær að Dagur hefði ekki svarað fyrir þann tíma og yrði því ekk­ert af frestun verk­falls­að­gerða.

Segist standa við allt sem fram kom í Kastljósi

Dagur svar­aði aftur á móti á Facebook í gær eftir klukkan 16:00 en í stöðu­upp­færslu sagð­ist hann standa við allt sem hann sagði í Kast­ljósi á sínum tíma en að það væri ekki gagn­legt þegar reynt væri að að snúa út úr þeim yfir­lýs­ingum eða standa í skeyta­send­ingum í fjöl­miðlum til að leysa kjara­deil­ur.

Hann sagði að í stað þess að standa í frek­ari skeyta­send­ingum í fjöl­miðlum vildi hann bjóða Sól­veigu Önnu til fundar til að ræða hina erf­iðu stöðu við­ræðna og hvar beri á milli aðila.

Í við­brögðum Dags sagð­ist hann fagna því að Efl­ing opn­aði á að fresta verk­föllum og sagð­ist standa við allt sem hann sagði í Kast­ljósi á sínum tíma. „Gott til­boð borg­ar­innar um að hækka laun Efl­ing­ar­fólks hjá borg­inni liggur fyr­ir, með sér­stakri áherslu á að bæta lægstu laun og kjör kvenna­stétta. Til­boðið er á grunni lífs­kjara­samn­ing­anna, með leng­ingu orlofs og útfærslu á stytt­ingu vinnu­vik­unn­ar,“ skrif­aði hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár