Hafnar „ávirðingum“ í skýrslu innri endurskoðanda Reykjavíkurborgar

Fram­kvæmda­stjóri SORPU segir að á þeim 12 ára tíma sem hann hefur gegnt stöðu fram­kvæmda­stjóra hafi aldrei verið gerðar athuga­semdir við störf hans.

Björn H. Halldórsson
Björn H. Hall­dórs­son Mynd: Samsett mynd

Fram­kvæmda­stjóri SORPU, Björn H. Hall­dórs­son, hafnar „þeim ávirð­ingum“ sem á hann eru bornar í skýrslu innri end­ur­skoð­anda Reykja­vík­ur­borgar í yfir­lýs­ingu sem hann sendi frá sér í kvöld.

Stjórn Sorpu ákvað á stjórn­ar­fundi í dag að afþakka vinnu­fram­lag Björns á meðan að mál hans eru til með­ferðar innan stjórn­ar, að því er fram kemur í til­kynn­ingu sem stjórn Sorpu sendi frá sér vegna skýrslu innri end­ur­skoð­unar Reykja­vík­ur­borgar um ástæður fram­úr­keyrslu sem varð á áætl­uðum fram­kvæmda­kostn­aði vegna bygg­ingar gas- og jarð­gerð­ar­stöðvar í Álfs­nesi og mót­töku­stöðvar í Gufu­nesi.

Hann bendir á að á þeim 12 ára tíma sem hann hefur gegnt stöðu fram­kvæmda­stjóra SORPU hafi aldrei verið gerðar athuga­semdir við störf hans. Eigi það meðal ann­ars við um fram­setn­ingu rekstr­ar­á­ætl­ana á stjórn­ar­fundum, frá­vika­grein­ingu vegna þeirra og áætl­ana­gerð vegna fram­kvæmda á vegum fyr­ir­tæk­is­ins.

Ekki innri endurskoðandi SORPU

[links]Björn telur reyndar að innri end­ur­skoð­andi sé ekki innri end­ur­skoð­andi SORPU og þekki því tak­markað til fyr­ir­tæk­is­ins eða starfs­um­hverfis og starfa hans.

„Skýrsla innri end­ur­skoð­anda Reykja­vík­ur­borgar ein­kenn­ist af röngum, ótraustum og sam­heng­is­lausum álykt­unum um for­sendur og gæði starfa minna. Við gerð skýrsl­unnar hafa t.d. verið dregnar veiga­miklar álykt­anir af skjölum sem aldrei hafa komið fyrir sjónir mínar. Sýnir það, eitt og sér, hversu óáreið­an­leg skýrslan er,“ segir hann.

Þá séu álykt­anir innri end­ur­skoð­anda í and­stöðu við áður yfir­lýstar skoð­anir hans í skýrslu um verk­legar fram­kvæmdir og inn­kaupa­mál hjá Reykja­vík­ur­borg, sem sé svo nýleg að vera frá mars 2019. Um sam­an­burð á kostn­aði vegna mann­virkja­gerðar við frum­kostn­að­ar­á­ætlun segi innri end­ur­skoð­andi í þeirri skýrslu á bls. 16:

„Í fjöl­miðlaum­fjöllun um kostnað vegna mann­virkja­gerðar er kostn­aður oft mið­aður við frum­kostn­að­ar­á­ætlun sem er algjör­lega óraun­hæft því miða skal við kostn­að­ar­á­ætlun um full­hannað mann­virki.“

Björn segir að þrátt fyrir að innri end­ur­skoð­andi segi þetta „algjör­lega óraun­hæft“ fram­kvæmi hann sam­an­burð af þessum toga í málum SORPU með því að nota margra ára gamlar kostn­að­ar­á­ætl­anir sem SORPA hafi stuðst við áður og jafn­vel löngu áður en gas- og jarð­gerð­ar­stöðin hafi verið full­hönnuð.

„Ef beitt væri sams konar sam­an­burði og innri end­ur­skoð­andi telur rétt að gera í fram­an­greindri skýrslu, og stuðst við áætl­anir sem lágu fyrir þegar samið var við verk­taka eftir samn­ings­kaupa­ferli (þá reyndar ekki full­hannað verk), væru frá­vik frá áætlun aðeins í kringum 11,7%, sem er innan almennra óvissu­við­miða um + 10-15%. Væri því helst sann­gjarnt að álykta að kostn­að­ar­á­ætl­anir hafi stað­ist fremur vel en illa. Ég hef aðeins nýlega fengið afhent þau gögn sem innri end­ur­skoð­andi Reykja­vík­ur­borgar seg­ist hafa aflað sér í tengslum við gerð skýrsl­unnar og vinn að gerð athuga­semda um hana. Þar til ég hef lokið gerð þeirra mun ég ekki tjá mig frekar um efni hennar,“ skrifar hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár