Borgarstjóri með um sexfalt hærri laun en fólkið á lægstu laununum

Borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins veltir því fyrir sér hvernig maður, sem er með um tvær millj­ónir í laun á mán­uði, hafi meiri áhyggjur af verk­föllum en vel­ferð starfs­fólks sem heyri beint undir hann.

Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins.
Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins, spyr í stöðu­upp­færslu á Facebook hversu bilað það sé að borg­ar­stjór­inn, Dagur B. Egg­erts­son, sem er með um tvær millj­ónir í laun á mán­uði, hafi meiri áhyggjur af verk­föllum en vel­ferð starfs­fólks sem heyri beint undir hann.

Hún spyr jafn­framt hversu bilað það sé að mán­að­ar­laun borg­ar­stjóra séu um sexfalt hærri en það sem fólk á lægstu launum þurfi að skrimta á. Samkvæmt upp­lýs­ingum á vef Reykja­vík­ur­borgar þiggur borg­ar­stjóri laun frá borg­inni að starfs­kostn­aði með­töldum sam­kvæmt ráðn­ing­ar­bréfi að upp­hæð 1.976.025 krónur. Auk þess fær hann þóknun fyrir stjórn­ar­for­mennsku í Slökkvi­lið­inu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, eða 229.151 krónur.

Ástæðan fyrir skrifum hennar er frétt Vísis þar sem fram kemur að Dagur seg­ist hafa áhyggjur af fyr­ir­hug­uðum verk­falls­að­gerðum félags­manna Eflingar sem starfa hjá Reykja­vík­ur­borg. Það sé alvar­legt mál ef þau verði að veru­leika en nú standi yfir und­ir­bún­ingur ef til þess kemur. Hann von­ist þó til að samn­ingar náist áður en til verk­falla kemur.

[links]Sanna heldur áfram að velta fyrir sér launum í borg­inni og spyr enn fremur hversu bilað það sé að for­maður borg­ar­ráðs fái 439.743 krónur á mán­uði fyrir skatt ofan á grunn­laun sín vegna stjórn­ar­setu á vegum Reykja­vík­ur­borgar, á meðan lægstu laun borg­ar­innar nái ekki einu sinni þeirri upp­hæð.

„Hversu bilað er það að eftir marga mán­uði, sé ekki enn búið að semja við starfs­fólk borg­ar­innar sem fær svo lág laun sem duga ekki út mán­uð­inn?

Hversu bilað er það að þegar þess er kraf­ist að eðli­leg launa­leið­rétt­ing eigi sér stað, séu fyrstu við­brögðin þau að það megi ekki hækka fólkið á botn­inum of mikið þá gætu aðrir farið að biðja um meira?“ spyr hún.

Að lokum veltir Sanna því fyrir sér hvernig það gangi upp að meiri­hluti borg­ar­stjórnar seg­ist berj­ast fyrir femínískum gildum á meðan „við sjáum hér stóran hóp kvenna berj­ast við efna­hags­legt órétt­læti sem vinnu­veit­and­inn þeirra Reykja­vík­ur­borg veldur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár