Tilboð Eflingar kostar tæpa fjóra bragga á ári

Fram kom á kynn­ingu Eflingar á kostn­að­ar­mati vegna til­boðs stétt­ar­fé­lags­ins til Reykja­vík­ur­borgar að kostn­að­ar­auki vegna hækkun launa næmi tæpum fjórum bröggum árið 2023.

„Þegar leið­rétt­ing á kjörum ríf­lega 1.800 borg­ar­starfs­manna og fjöl­skyldna þeirra er komin til áhrifa væri það á við tæp­lega fjóra bragga á árs­grund­velli. Á samn­ings­tím­anum myndi rekstr­ar­af­gangur borg­ar­innar dekka kostn­að­inn marg­falt.“

Þetta kom fram á blaða­manna­fundi Eflingar sem hald­inn var í til­efni kjara­deilu við Reykja­vík­ur­borg en hann fór fram í Bragg­anum, Naut­hóls­vegi 100, í dag.

Viðar Þor­steins­son, fram­kvæmda­stjóri Eflingar, gerði grein fyrir því hvað launa­hækk­anir á lægstu launum starfs­manna borg­ar­innar myndu kosta Reykja­vík­ur­borg í sam­an­burði við kostnað sveit­ar­fé­lags­ins við nýlega end­ur­nýjun Braggans. Hann sagði að fjár­magnið væri fyrir hendi hjá Reykja­vík­ur­borg.

[links]Þá kom fram á kynn­ing­unni að fram­kvæmd launa­hækk­unar næmi um 22 til 52 þús­und krónur á mán­uði fyrir laun undir 445 þús­und á mán­uði. Launa­hækk­unin yrði fram­kvæmt í tveimur áföngum. Í fyrsta lagi þann 1. sept­em­ber næst­kom­andi þar sem 56 pró­sent af kostn­að­ar­á­hrifum myndu koma fram og í öðru lagi þann 1. mars á næsta ári þar sem 100 pró­sent af kostn­að­ar­á­hrifum myndu koma fram.

Áætluð með­al­tals­hækkun á mann er reiknuð út frá fjölda í hverjum launa­flokki, starfs­hlut­falli og álögum vegna vakta­vinnu og yfir­vinnu. Gert er ráð fyrir 24 pró­sent við­bót vegna launa­kostn­aðar og 1.850 starfs­mönnum.

Borgin gerir ráð fyrir rekstrarafgangi

Enn fremur benti Viðar á að fjár­hags­á­ætlun Reykja­vík­ur­borgar 2020-2024 hefði nú þegar verið kynnt þar sem gert væri ráð fyrir taxta­hækk­unum sem samið hefði verið um á almennum vinnu­mark­aði í apríl 2019 og sem Efling hefði fall­ist á gagn­vart borg­inni. Einnig væri gert ráð fyrir launa­skriði í áætl­un­inni.

„Fjár­hags­á­ætlun Reykja­vík­ur­borgar fyrir árin 2020-2024 gerir ráð fyrir miklum rekstr­ar­af­gangi og mjög vax­andi eftir 2021. Rekstr­ar­af­gangur (rekstr­ar­nið­ur­staða með fjár­magnsliðum) er á bil­inu 2-7 millj­arðar á ári á tíma­bil­inu 2020 til 2023,“ kom fram í kynn­ing­unni.

Samkvæmt nið­ur­stöðum Eflingar yrðu launa­hækk­anir 0,39 til 1,87 pró­sent heild­ar­aukn­ing á launa­kostn­aði borg­ar­innar á samn­ings­tím­anum og 22 pró­sent af rekstr­ar­af­gangi borg­ar­innar árið 2023 þegar kostn­aður væri að fullu kom­inn fram í lok samn­ings­tíma. Að með­al­tali væru þær 35 pró­sent af rekstr­ar­af­gangi yfir samn­ings­tím­ann. Þar með næmi árlegur kostn­að­ar­auki, þegar hann væri að fullu fram kom­inn, tæp­lega fjórum bröggum, eins og fram hefur komið.

Axlaði pólitíska ábyrgð og sýndi hugrekki

Viðar benti á fund­inum á for­dæmi þessu til stuðn­ings þegar Steinunn Valdís Ósk­ars­dóttir þáver­andi borg­ar­stjóri skip­aði jafn­rétt­is­ráð­gjafa Reykja­vík­ur­borgar í samn­inga­nefnd borg­ar­innar árið 2005. Í sam­tali við Morg­un­blaðið á sínum tíma sagð­ist Steinunn Valdís með þessum hætti vilja sýna vilja sinn í verki í því að jafna launa­mun kynj­anna og hækka laun kvenna sem væru að stórum hluta starfs­menn borg­ar­innar.

Viðar sagði að hún hefði með þessu axlað póli­tíska ábyrgð, stigið fram og sýnt hug­rekki.

Gefur lítið fyrir að hækkanir muni valda „höfrungahlaupi“

Fram­kvæmda­stjór­inn svar­aði í gær á Facebook-síðu sinni þeirri spurn­ingu hvort þessar launa­hækk­anir myndu valda svoköll­uðu „höfr­unga­hlaupi“ og sagði að slíkt myndi ger­ast þegar hópar á með­al­launum og háum launum tækju til sín launa­hækk­anir lægra laun­aðra hópa í pró­sentum og fengju þannig út hærri krónu­tölu­hækk­anir fyrir sig. Þannig leiddu hækk­anir lægstu launa ekki til breyttrar sam­setn­ingar á launa­stig­anum, og ekki til jöfn­uðar.

„Höfr­unga­hlaup er ekki þegar lægstu laun eru hækkuð með stig­lækk­andi krónu­tölu­hækk­unum ein­göngu á neðsta bili launa­ska­l­ans. Það er hnit­miðuð aðgerð sem leiðir til auk­ins jöfn­uðar. Hún er and­stæðan við höfr­unga­hlaup. Í slíkri aðgerð er ekk­ert, hvorki pró­senta né krónu­tala, sem hærra laun­uðum hópum býðst að end­ur­taka,“ skrif­aði hann.

Þá telur hann að slíka aðgerð hjá einu stétt­ar­fé­lagi megi end­ur­taka hjá öðrum stétt­ar­fé­lögum með félags­menn á sömu launa­bilum, án þess að það feli í sér höfr­unga­hlaup.

Hægt er að horfa á upp­töku af blaða­manna­fund­inum hér fyrir neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár