Spurði hvort Katrín væri sammála Bjarna varðandi hækkun atvinnuleysisbóta

For­sæt­is­ráð­herra svar­aði spurn­ingu for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar varð­andi það hvort hún væri sam­mála fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um að hækkun grunnatvinnu­leys­is­bóta „hefði letj­andi áhrif á atvinnu­leit­endur“.

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar.
Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra treystir sér ekki til þess að halda því fram að hækkun grunnatvinnu­leys­is­bóta hafi letj­andi áhrif á atvinnu­leyt­endur. Þetta kom fram í svari hennar í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag.

Logi Ein­ars­son for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar sagði að hann og Katrín deildu örugg­lega þeirri sýn að veiru­far­ald­ur­inn væri engum hér að kenna. „Formaður Sam­fylk­ing­ar­innar og for­maður Vinstri grænna hljóta að vera sam­mála um það að eitt af brýn­ustu verk­efnum okkar nú er að koma í veg fyrir neyð fólks og að ójöfn­uður auk­ist í krepp­unni. Það blasir hins vegar því miður við að tugir þús­unda manna munu missa vinn­una og heim­ili verða fyrir gríð­ar­legu tekju­falli, ráð­stöf­un­ar­tekjur munu jafn­vel helm­ing­ast. Það þýðir að fleiri ein­stak­lingar geta ekki borgað af lánum, ekki borgað leigu, ekki sent börnin sín í tóm­stundir og þurfa jafn­vel að neita sér um að sækja nauð­syn­lega lækn­is­þjón­ustu.“

Hann telur það vissu­lega vera gott að til standi að lengja tíma­bil tekju­tengdra atvinnu­leys­is­bóta um þrjá mán­uði „en það stendur ekki til að hreyfa við grunnatvinnu­leys­is­bót­unum þrátt fyrir að þús­undir séu nú þegar á þeim“.

Þá vís­aði Logi í orð Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem „hefur haldið því fram að slík hækkun hafi letj­andi áhrif á atvinnu­leit­endur“. Hann spurði því for­sæt­is­ráð­herr­ann hvort hún væri sam­mála þeirri full­yrð­ingu.

[adspot]

Forgangsraða aðgerðum

„Svo að ég svari síð­ustu spurn­ing­unni beint þá myndi ég ekki treysta mér til að halda því fram. Hins vegar vil ég minna á það hér að þessi rík­is­stjórn hefur stigið mjög stór skref þegar kemur að mál­efnum atvinnu­leys­is­trygg­inga. Ég vil rifja það upp að árið 2018 voru grunnatvinnu­leys­is­bætur 227.000 krónur,“ sagði Katrín.

Þetta hefði verið staðan þá eftir tíð tveggja hægri stjórna í land­inu. Atvinnu­leys­is­bætur hefðu ekki hækkað umfram vísi­tölu­hækkun frá því í hrun­inu. Þá hefði það verið þessi rík­is­stjórn sem ákvað að hækka þær og hækka sömu­leiðis þak tekju­tengdra atvinnu­leys­is­bóta og hámarks­greiðslur úr Ábyrgða­sjóði launa. Ef þetta hefði ekki verið gert væru atvinnu­leys­is­bætur í dag um það bil 238.000 krónur, þ.e. þær hefðu hækkað sam­kvæmt vísi­tölu neyslu­verðs.

„Þetta var sú staða sem rík­is­stjórnin kom að. Við töldum fyr­ir­sjá­an­legt að meira álag yrði á atvinnu­leys­is­trygg­inga­kerfið og þess vegna réð­umst við í þá aðgerð að hækka grunnatvinnu­leys­is­bætur. Hins vegar er það svo að við höfum for­gangs­raðað aðgerðum. Þetta var í for­gangi þá, þ.e. að hækka grunnatvinnu­leys­is­bætur og greiðslur úr Ábyrgða­sjóði launa, og ég er viss um að það hefur skipt veru­legu máli. Það nýjasta sem við höfum kynnt í þessu er hins vegar að lengja tíma­bil tekju­teng­ingar og það gerum við vegna þeirrar stöðu sem nú er uppi, þar sem margir hafa verið að missa vinn­una vegna heims­far­ald­urs. Við erum að reyna að brúa það bil sem fólk stendur frammi fyrir sem verður fyrir atvinnu­missi,“ sagði Katrín.

Mik­il­væg­asta verk­efnið fyrir Ísland væri hins vegar að skapa hér fleiri störf og verja þau störf sem fyrir eru. „Þess vegna er það ákvörðun rík­is­stjórn­ar­innar að ráð­ast ekki í nið­ur­skurð hjá hinu opin­bera, að verja kerfin okkar, að vera ekki að ráð­ast í nið­ur­skurð á þessum tímum heldur einmitt auka opin­bera fjár­fest­ingu þannig að við getum skapað fleiri störf.“

Ekki töfruð fram störf á næstu vikum

Logi þakk­aði afdrátt­ar­laust svar við spurn­ingu hans. „En hér erum við ekki í sagn­fræði og deilum ekki um að það hafa verið stigið góð skref og þau ber að þakka, þá breytir það því ekki að hér verða ekki töfruð fram störf á næstu vikum – jafn­vel þótt við gætum vissu­lega gert meira heldur en rík­is­stjórnin hefur ætlað sér. Og þess vegna verður maður að spyrja: Hvað ætlar rík­is­stjórnin að gera til þess að verja það fólk sem nú þarf að lifa á 240.000 þús­und krónum eftir skatt en hefur haft mál­efna­legar ástæður til þess að gera alls konar skuld­bind­ingar miðað við miklu hærri laun?“

Hann spurði hvort til greina kæmi – þrátt fyrir allt – að hækka grunnatvinnu­leys­is­bætur.

Útilokar engar aðgerðir

Katrín sagði að henni fynd­ist áhuga­vert að þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar væru búnir að ákveða að allt sem gerst hefði í gær væri orðin sagn­fræði. „Mér finnst það skemmti­legur sam­hljómur hér með þing­mönnum stjórn­ar­and­stöð­unnar. Ég er ekki viss um að sagn­fræð­ingar myndu kalla það sagn­fræði sem verið var að kynna í fyrra­dag – en gott og vel, þetta er kannski til marks um að stjórn­ar­and­staðan hafi fundið ein­hvern sam­hljóm.“ Hún óskaði stjórn­ar­and­stöð­unni til ham­ingju með það.

„Ég vil taka það fram hér að engar aðgerðir eru úti­lok­aðar í þeim aðstæðum sem við erum í, það er ekki þannig. Þetta fannst okkur vera mik­il­væg­asta skrefið að stíga núna, það er að segja að lengja þetta tekju­tengda tíma­bil til þess að koma til móts við þá sem hafa verið að missa vinn­una í far­aldr­inum. Og ég tel að það sé mjög gott skref,“ sagði hún.

For­sæt­is­ráð­herra vildi einnig rifja það upp að rík­is­stjórnin hefði tryggt stuðn­ing til tekju­lágra fjöl­skyldna með því að styðja við tóm­stundir barna. „Þessi rík­is­stjórn er líka núna að kynna mennta­úr­ræði fyrir atvinnu­leit­endur upp á tvo millj­arða króna sem ég held að við hátt­virtur þing­maður séum sam­mála um að sé eitt það mik­il­væg­asta sem við getum gert í þessum aðstæðum sem núna blasa við. Þannig að ég held að núna þegar við ræðum þessi mál að við verðum að horfa á þetta sam­hengi hlut­anna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár