Ætlast til þess að samfélagslegir hagsmunir ráði för en ekki hagsmunir peningaaflanna

Forseti ASÍ segir fjöl­mörg verk­efni sem stjórn­völd gáfu lof­orð um í tengslum við núgild­andi kjara­samn­inga út af standa. Þá segir hún að „sum­ar­gjöf“ Icelandair til flug­freyja muni lita þau verk­efni sem fram undan eru hjá verka­lýðs­hreyf­ing­unni.

Drífa Snædal er forseti ASÍ.
Drífa Snædal er for­seti ASÍ. Mynd: Bára Huld Beck

Nú er ekki tím­inn til að skera niður í rík­is­rekstri að mati Drífu Snædal, Forseta ASÍ, enda geti það dýpkað krepp­una með alvar­legum og lang­vinnum afleið­ingum fyrir ein­stak­linga og sam­fé­lagið allt að hennar mati. Þetta kemur fram í nýjum pistli sem hún sendi frá sér í dag.

Í pistl­inum bendir hún á að staðan á vinnu­mark­aði sé slæm, atvinnu­leysi nálægt tíu pró­sentum og óvissa mikil. „Þarna skiptir öllu að fólk hafi greiðan aðgang að þeim úrræðum sem í boði eru, lögð verði áhersla á fjölgun starfa hjá hinu opin­bera og í nýsköpun og þeim sem eru atvinnu­laus gefin tæki­færi á end­ur­menntun. Síðast en ekki síst verður að hækka atvinnu­leys­is­bætur strax enda hafa þær ekki haldið í við lág­marks­laun,“ segir Drífa í pistli sínum.

Kjarasamningar mögulega endurskoðaðir í september

Þá bendir hún á að mögu­leiki sé á end­ur­skoðun kjara­samn­inga sem und­ir­rit­aðir voru í apríl 2019 verði end­ur­skoð­aðir nú í sept­em­ber. For­sendur til grund­vallar kjara­samn­ing­unum eru þrjár; að kaup­máttur auk­ist, vextir lækki og og að stjórn­völd standi við þau lof­orð sem gefin voru í tengslum við samn­ing­ana.

For­sendu­nefnd sem skipuð er full­trúum frá ASÍ og SA muni koma saman til að úrskurða hvort for­sendur hafi stað­ist. Drífa bendir á að kaup­máttur hefur auk­ist, vextir lækkað „en út af standa fjöl­mörg þeirra verk­efna sem stjórn­völd gáfu lof­orð um.“

Aðstæður á vinnumarkaði „sérlega krefjandi“

Hún kallar eftir því að stjórn­völd komi að borð­inu þar sem þau hafi ekki staðið að fullu við sinn hluta sam­komu­lags­ins og þar sem að aðstæður á vinnu­mark­aði séu „sér­lega krefj­andi nú um stundir og verða það áfram.“

Hún segir að aðgerðir Icelandair í kjara­við­ræðum félags­ins við Flug­freyju­fé­lag Íslands muni lita þau verk­efni sem fram undan eru. „Það er því ólíð­andi að Samtök atvinnu­lífs­ins skuli í sumar hafa gengið gegn reglum á vinnu­mark­aði með því að styðja Icelandair í for­dæma­lausum aðgerðum gegn flug­freyjum og þjónum. Það var örlaga­ríkur föstu­dagur í júlí þegar stjórn­endur Icelandair lýstu því yfir að þeir ætl­uðu að snið­ganga við­semj­endur og semja við aðra um kaup og kjör.“

„Sumargjöf“ Icelandair elti verkalýðshreyfinguna inn í haustið

Sú aðferð að atvinnu­rek­endur reyni að búa til sín eigin stétt­ar­fé­lög og gangi til samn­inga við þau sé þekkt úti í heimi að sögn Drífu sem bendir á að það sé ekki í hendi atvinnu­rek­enda að fá að velja og hafna við hverja þeir semja. „Það verður ekki látið við­gang­ast á íslenskum vinnu­mark­aði og þó að flug­freyjur hafi gengið frá samn­ingum þá mun þessi „sum­ar­gjöf“ elta okkur inn í haustið og lita þau verk­efni sem framundan eru. Samn­ings­réttur vinn­andi fólks verður var­inn!“

Undir lok pistils­ins segir Drífa að verka­lýðs­hreyf­ingin ætlist til þess að sam­fé­lags­legir hags­munir ráði för, „ekki hags­munir hinna fáu, ekki hags­munir pen­inga­afl­anna.“ Almanna­hagur þurfi að vera horn­steinn allra ákvarð­ana ef ætl­unin er að koma stand­andi út úr þeirri kreppu sem almenn­ingur standi frammi fyrir. Hún segir verk­efni vetr­ar­ins vera mörg en að verka­lýðs­hreyf­ingin sé sterk og til­búin í það sem koma skal.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár