„Kemur til greina að hækka veiðigjöld í ljósi aðstæðna til að jafna byrðarnar í samfélaginu?“

Formaður Sam­fylk­ing­ar­innar spurði for­sæt­is­ráð­herra á þingi í dag hvort til greina kæmi að hækka veiði­gjöld, að minnsta kosti tíma­bundið, í ljósi aðstæðna til að jafna byrð­arnar í sam­fé­lag­inu.

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar.
Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, og Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra ræddu veiði­gjöld í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag í sam­hengi við það ástand sem nú er uppi vegna COVID-19 far­ald­urs. Spurði þing­mað­ur­inn ráð­herr­ann hvort til greina kæmi að hækka veiði­gjöldin tíma­bundið og hvort henni fynd­ist hlut­fallið vera eðli­legt.

„Ef ein­hver hefur velkst í vafa um mik­il­vægi sam­neysl­unnar og nauð­syn á getu stjórn­valda til að grípa inn í með stór­felldum hætti hefur þeirri óvissu von­andi verið eytt núna í COVID-far­aldr­inum. Um allan heim hafa stjórn­völd gripið til stór­tækra aðgerða til að aðstoða atvinnu­líf og ein­stak­linga með áður óþekktum hætti, líka hér á Íslandi. En þó það hafi verið gert er jafn ljóst að við deilum um áhersl­urnar,“ sagði Logi.

Telur hann og flokkur hans að of litlu hafi verið varið í að aðstoða tug­þús­undir manna sem misst hafa vinn­una og allt of lítil áform um að skapa ný störf. „Nú eru 27.000 manns atvinnu­lausir og sam­kvæmt könnun rann­sókna­stofn­unar vinnu­mark­að­ar­ins á um helm­ingur þessa fólks erfitt með að ná endum saman. Þrír hópar skera sig úr; inn­flytj­endur, konur og ungt fólk,“ benti hann á.

Vill athuga forgangsröðina

Logi vék einn fremur að stöðu unga fólks­ins. „42 pró­sent segj­ast búa við slæma and­lega heilsu og 60 pró­sent hafa þurft að neita sér um lækn­is­þjón­ustu á síð­asta hálfa ári. Allar aðvör­un­ar­bjöllur klingja, skamm­tíma­á­hrifin aug­ljós en því miður lang­tíma­á­hrifin líka. Rík­is­stjórnin telur sig ekki geta gert meira fyrir þennan hóp en skoðum aðeins for­gangs­röð­un­ina.“

Benti hann í því sam­bandi á að á síð­asta ári hefði útgerðin greitt sér 4,8 millj­arða í veiði­gjöld. „Sú tala segir kannski ekki mikið nema þegar við horfum á sam­hengið. Á sama tíma greiddu sjö eig­endur stærstu útgerð­ar­fyr­ir­tækj­anna sér marg­faldan þann arð á við það sem greitt er í veiði­gjöld og innan við 10 pró­sent af sam­an­lögðum rekstr­ar­hagn­aði fyr­ir­tækja.“

Spurði hann því ráð­herra hvort hún teldi þetta hlut­fall vera eðli­legt og sann­gjarnt eða kæmi ef til vill til greina að hækka veiði­gjöld, að minnsta kosti tíma­bundið, í ljósi aðstæðna til að jafna byrð­arnar í sam­fé­lag­inu.

Sammála um mikilvægi samneyslunnar

Katrín svar­aði og sagð­ist geta tekið undir með Loga að það væri mjög mik­il­vægt að þau skoð­uðu sér­stak­lega hvað þau gætu gert til að koma til móts við þessa hópa. „Rík­is­stjórnin hefur staðið fyrir því að atvinnu­leys­is­bætur hafa verið hækk­aðar um 35 pró­sent á kjör­tíma­bil­inu einmitt til að mæta atvinnu­leit­endum. Það er líka mik­il­vægt að við veltum því fyrir okkur hvað fleira er hægt að gera. Ég minni á að skatt­byrði þessa hóps var lækkuð. Og af því að hv. þing­maður nefnir líka ungt fólk þá vil ég minna á hækkun barna­bóta sem vissu­lega kemur sér vel fyrir barna­fólk sem flest hvað er ungt að aldri. En við þurfum að taka þetta til skoð­unar og ég nefni sér­stak­lega inn­flytj­endur í þessum hópi sem eru auð­vitað lang­flestir líka í hópi atvinnu­leit­enda.“

Þá telur Katrín að hún og þing­mað­ur­inn séu sam­mála um mik­il­vægi sam­neysl­unnar og um þau mark­mið að hana eigi að nýta til að jafna kjörin „eins og við höfum verið að gera í þessum málum“.

Hvað varðar veiði­gjöldin þá vildi hún minna á að sú breyt­ing sem gerð var á því gjaldi á þessu kjör­tíma­bili hefði verið að afkomu­tengja það. „Það er rétt að útgerðin skil­aði 4,8 millj­örðum á nýliðnu ári. Árið 2021 er gert ráð fyrir að sú álagn­ing nemi 7,5 millj­örðum sem bygg­ist á afkomu veiða árs­ins 2019. Hér var ég meðal ann­ars sökuð um að standa fyrir lækkun veiði­gjalds og vænt­an­lega verð ég þá núna sögð vera að hækka veiði­gjald. Hvorugt á við rök að styðj­ast. Það sem var gert var að afkomu­tengja veiði­gjaldið. Síðan er hægt að ræða það hvert hlut­fallið eigi nákvæm­lega að vera. En ég velti því fyrir mér hvort hátt­virtur þing­maður sé mér ekki sam­mála um að það sé eðli­legt að þetta gjald fylgi afkomu fyr­ir­tækj­anna þannig að þegar vel árar í sjáv­ar­út­vegi, eins og gerð­ist 2019, þá skili það sér inn í rík­is­sjóð,“ sagði ráð­herr­ann.

Spurði sömu spurningar aftur

Logi kom aftur í pontu og sagði að hann teldi langeðli­leg­ast að réttasta gjaldið feng­ist með því að láta fyr­ir­tækin bjóða í þessa tak­mörk­uðu auð­lind og það ættu þau svo sann­ar­lega að gera.

„Ég spyr hins vegar ráð­herra aftur hvort henni finn­ist í ljósi þess­ara aðstæðna þetta hlut­fall vera sann­gjarnt þegar fyr­ir­tækin eru að moka út arði. Við getum ekki búið við það að örfáar fjöl­skyldur hér í land­inu séu að mylja undir sig millj­arða fyrir nýt­ingu á tak­mörk­uðum, sam­eig­in­legum auð­lindum þjóð­ar­innar á meðan tug­þús­undir manna eiga erfitt með að ná endum saman, geta ekki sótt sér lækn­is­þjón­ustu og börn þeirra munu kannski líða skort sem mun hafa áhrif á þau alla ævi.“

Spurði hann því aftur: „Kemur til greina að hækka veiði­gjöldin tíma­bundið og finnst hæst­virtum ráð­herra þetta hlut­fall, sem hún vissu­lega ákvað, vera eðli­legt?“

Sanngjarnar tillögur – Hlutfallið ásættanlegt

Katrín svar­aði í annað sinn og sagði að Logi setta þetta í sam­hengi við aðgerðir til að stuðla að jöfn­uði í sam­fé­lag­inu og allt það sem hún taldi upp í fyrri ræðu stefndi í þá átt.

„Ég nefndi reyndar ekki kostnað í heil­brigð­is­kerf­inu, sem hátt­virtur þing­maður kom inn á, en á þessu kjör­tíma­bili mun kostn­aður fólks á Íslandi við heil­brigð­is­þjón­ustu lækka þannig að við verðum komin á par við önnur Norð­ur­lönd þangað sem hv. þing­maður hefur einmitt viljað beina sinni flug­vél þegar hann er spurður um það hvaða sam­fé­lags­gerð hann vilji leggja til. Skiptir það máli fyrir þá sem höllustum fæti standa? Ég segi já við því.

Hvað varðar veiði­gjöldin, af því að hátt­virtur þing­maður vill setja þau í þetta sam­hengi, þá fannst mér það vera sann­gjarnar til­lögur sem við sam­þykktum á þing­inu þar sem ákveðið var að leggja til 33 pró­sent gjald af afkomu fisk­veiða sam­kvæmt útreikn­ingum og nýj­ustu skatt­fram­tölum. Spurn­ingin sem hátt­virtur þing­maður setur fram er þessi: Er það sann­gjarnt hlut­fall? Auðvitað á eftir að koma reynsla á það. Í raun og veru erum við að sjá veiði­gjaldið hækka um 56 pró­sent, vænt­an­lega 2021, af því við erum að afkomu­tengja það. Mér fannst þetta hlut­fall ásætt­an­legt, enda studdi ég það frum­varp sem lagt var fram fyrir rúmu ári eða svo,“ sagði hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár