Telur að Íslendingar ættu að vera stoltir af öflugu almannatryggingakerfi

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra og þing­maður Flokks fólks­ins ræddu líf­eyr­is­mál á þingi í gær.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, þing­maður Flokks fólks­ins, og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra deildu ekki sömu skoðun varð­andi líf­eyr­is­sjóðs­kerfið hér á landi í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í gær. Bjarni sagði meðal ann­ars að „við ættum að vera stolt af því hversu ótrú­lega öfl­ugt almanna­trygg­inga­kerfi við höfum byggt upp til að styðja við fólk sem ekki hefur náð að leggja til hliðar í líf­eyr­is­sparnað“.

Þing­mað­ur­inn hóf mál sitt á því að segja að ein­stak­lingur sem hefði verið með 400 þús­und krónur í mán­að­ar­laun mætti reikna með að fá 50 pró­sent af því, eða um 200.000 krónur, úr líf­eyr­is­sjóði. „Þessi ein­stak­lingur verður fyrir skerð­ingu, 45 pró­sent skerð­ingu, allt að frá 60 pró­sent og upp undir 80 pró­sent skerð­ingu, þegar hann skráir sig hjá Trygg­inga­stofnun rík­is­ins. Með­al­launin í við­kom­andi stétt eru enn 400.000 og þar af leið­andi á hann enga mögu­leika á að kom­ast upp í það sem hann hafði áður fyrir utan það að hann er kom­inn í fátækt.

Á sama tíma og 60 til 80 pró­sent skerð­ingar og skattar ganga yfir þessa elli­líf­eyr­is­þega erum við með arð­greiðslur upp á millj­arða og þar er verið að ríf­ast um hvort verið sé að skatta millj­arð­ana um 10 pró­sent eða 20 pró­sent. Er þetta eðli­legt? Finnst hæst­virtum fjár­mála­ráð­herra þetta eðli­legt? Finnst honum þetta eðli­leg skipt­ing? Ætti ekki að snúa þessu algjör­lega við?“ spurði Guð­mundur Ingi.

„Er sann­gjarnt að þeir sem fá millj­arða fái 10 til 20 pró­sent skatt af arð­inum sínum? Ættu þeir sem eru með lög­þving­aðan eign­ar­rétt­ar­var­inn líf­eyr­is­sjóð þá ekki frekar að fá svona 10 til 20 pró­sent eða bara fjár­magnstekju­skatt á sitt?“ spurði hann enn fremur.

Íslendingar að gera betur en flestir

Bjarni svar­aði og sagð­ist ætla að gera sitt besta til að bregð­ast við þegar farið væri svona vítt yfir völl­inn. „Ég ætla byrja á því að segja að ríkið tekur engan tekju­skatt af 200.000 króna líf­eyr­is­tekjum elli­líf­eyr­is­þega, bara engan. Hins vegar myndi við­kom­andi skila útsvari til sveit­ar­fé­lags. Hátt­virtur þing­maður gerir athuga­semd við það að sá sem hefur haft ein­hverjar til­teknar mán­að­ar­tekjur yfir starfsæv­ina skuli ekki halda þeim þegar hann gengur á líf­eyr­is­aldur. En þannig er líf­eyr­is­kerfið okkar ekki byggt upp. Við gerum ekki ráð fyrir því almennt að fólk haldi að fullu óbreyttum launum á elli­líf­eyr­is­aldri, enda eru menn almennt sam­mála um að það sé óþarfi.“

Sagði hann að þetta breytti því þó ekki að of stór hópur hér á landi hefði ekki náð að nýta starfsæv­ina til að tryggja sér við­un­andi fram­færslu á grund­velli eig­inn sparn­aðar í gegnum líf­eyr­is­kerfið yfir starfsæv­ina.

„Þá koma rétt­indi úr almanna­trygg­ingum til sög­unnar til að bæta stöð­una. Það fer eftir því hvernig maður horfir síðan á sam­spil þess­ara kerfa hvort menn kalli það skerð­ingu eða aukin rétt­indi sem kemur frá almanna­trygg­ingum. Ég lít þannig á að við ættum að vera stolt af því hversu ótrú­lega öfl­ugt almanna­trygg­inga­kerfi við höfum byggt upp til að styðja við fólk sem ekki hefur náð að leggja til hliðar í líf­eyr­is­sparnað það sem þarf til að fram­fleyta sér á efri árum. Það erum við að gera betur en flestir og við erum að gera það mun betur en lang­flestir.

Við höfum sömu­leiðis stigið risa­stór skref á nán­ast hverju ári und­an­farin ár þannig að til dæmis frá árinu 2015 höfum við aukið ráð­stöf­un­ar­tekjur þeirra sem þiggja bætur frá almanna­trygg­ingum að með­al­tali um um það bil 25 pró­sent. Ég er að tala um kaup­mátt ráð­stöf­un­ar­tekna, 25 pró­sent aukn­ing frá 2015. Þetta eru auð­vitað ótrú­legar fram­farir á ekki lengri tíma,“ sagði Bjarni.

„Þið viljið hafa þá fátæku fátækari og þá ríku ríkari“

Guð­mundur Ingi spurði í annað sinn og sagði að enn einu sinni væri verið að snúa út úr hlut­unum. „Auðvitað lifir eng­inn á með­al­tali af ein­hverju mjög lágu sem hefur við­geng­ist. Við vitum að neyslu­vísi­talan hefur ekki komið nálægt launa­vísi­tölu­þróun. Það vantar að minnsta kosti 30 pró­sent upp á. En það er fullt af stéttum, til dæmis banka­stjórar, hæsta­rétt­ar­dóm­arar, jafn­vel ráð­herrar og þing­menn, sem fá og halda sínum launum alveg 100 pró­sent eftir að farið er á eft­ir­laun. Þannig að það er verið að mis­muna.“

Spurði hann því hvort það væri eðli­legt að því rík­ari sem fólk yrði og því meiri pen­ing sem það fengi því meira héldi fólk eftir og því minna sem fólk hefði því minna fengi það.

„Ef þú telur virki­lega að þetta sé sann­gjarnt áttu bara að segja að þetta sé það sem þið voruð stefna á og að þetta sé það sem þið viljið hafa. Þið viljið hafa þá fátæku fátæk­ari og þá ríku rík­ari,“ sagði þing­mað­ur­inn.

Þegar á heildina er litið erum við að gera mjög vel

Bjarni kom í pontu í annað sinn og sagði að hann sæti þarna undir langri bunu af rang­færslum.

„Í fyrsta lagi hafa kjör þeirra sem minnst hafa milli hand­anna af þeim sem fá bætur frá almanna­trygg­ingum batnað hrað­ast á und­an­förnum árum. Kjör þeirra hafa batnað hraðar en þeirra sem hafa meira á milli hand­anna en þiggja þó eitt­hvað úr almanna­trygg­inga­kerf­inu.

Má ég vekja athygli á einni stað­reynd? Það er ekk­ert sjálf­sagt að ríki séu í aðstöðu til þess að bæta þeim upp sem ekki hafa náð að nýta starfsæv­ina til að leggja til hliðar eða byggja upp líf­eyr­is­rétt­indi með jafn mynd­ar­legum hætti og við Íslend­ingar höfum gert og erum sífellt að bæta í. Það er ekki sjálf­sagt. En á sama tíma og við erum að gera það erum við líka, þeir sem eru núna á vinnu­mark­aði, að greiða fyrir ófjár­magn­aðar líf­eyr­is­skuld­bind­ingar fyrri ára. Það erum við að gera á hverju ári. Við erum að borga 7 til 8 millj­arða á ári og munum gera núna í 30 til 35 ár. Þar fyrir utan eru vinn­andi ein­stak­lingar í dag að taka á sig að leggja til hliðar þannig að eng­inn annar þurfi að taka til eftir þá. Ofan á allt þetta erum við að fjár­magna almanna­trygg­ingar. Þannig að ég segi: Þegar á heild­ina er litið erum við að gera mjög vel,“ sagði ráð­herr­ann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár